Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016 Kadýrov hunsar rússnesk lög en notast við lög er byggjast að hluta á sharia-reglum ísl- ams. Nýlega gaf hann skipun um að konur skyldu ávallt bera andlitsblæju í opinberum byggingum. 47 ára Tsjetsjeni giftist nýlega 17 ára stúlku þótt hann ætti konu fyrir. Málið vakti mikla athygli og hneykslun í Rússlandi enda fjölkvæni bannað þar með lögum. En Kadýrov fagnaði, ræddi um „brúð- kaup þessa ár- þúsunds“. Pútín samþykkti með þögninni. Ramsan Kadýrov, forseti sjálf-stjórnarlýðveldisins Tjetsníuí Kákasus, er vægast sagt umdeildur leiðtogi og stjórnar- andstæðingar segja hann vera sam- viskulausan hrotta og morðingja á mála hjá Pútín. En vinskapur hans og Rússlandsforseta er mikill og pen- ingar til uppbyggingar í stríðshrjáðri Tjetsníu hafa streymt úr ríkis- kassanum í Moskvu, sem stendur um 85% af opinberum útgjöldum Tjets- níu. Héraðið, sem er með rösklega milljón íbúa, aðallega múslíma, er nú orðið vel stætt. Stefna Kadýrovs í Tjetsníu er skýr. „Ég ræð og enginn annar. Skilið?“ sagði hann á sjónvarpsfundi með embættismönnum 2011. Svo mikið er sjálfstæði hins 39 ára gamla Kadý- rovs að deild öryggislögreglunnar, FSB, í Tjetsníu hlýðir nú ekki skip- unum yfirmanna í Moskvu. Þeir eru sagðir hata Kadýrov og liðsmenn hans en geta lítið sem ekkert aðhafst. Húsbóndinn í Kreml hefur ákveðið að öllu skipti að Tjetsnía sé til friðs. Þegar Kadýrov sinnaðist við deild FSB í Tjetsníu lét hann logsuðumenn loka dyrum aðalstöðva hennar og skipaði sjálfur nýjan yfirmann. Hann hefur einnig gefið skipun um að láta skjóta á FSB-menn frá öðrum hlut- um Rússlands ef þeir fari inn fyrir landamærin án leyfis. Heimildarmenn, bæði stuðnings- menn og andstæðingar stjórnvalda í Kreml, fullyrða að Kadýrov sé þrátt fyrir allt vinsæll í héraði sínu. Og ekki má gleyma því að Tjetsenar ráða nú í fyrsta sinn yfir eigin landi, þótt það sé að nafninu til enn hluti Rússlands. Þá stöðu þakka margir Tjetsenar klók- indum Kadýrovs, segir í grein Joshua Jaffa í The New Yorker. En liðsmenn öryggissveita forset- ans, kadýrovtsí, beita margvíslegum hótunum, morðum og mannránum til að hræða hugsanlega óvini í héraðinu. Og brenna hús ættingja uppreisnar- manna. Kadýrovtsí-liðar eru sterk- lega grunaðir um að hafa myrt rúss- neska stjórnarandstæðinginn Borís Nemtsov í Moskvu í fyrra, einnig mannréttindafrömuðina Önnu Polít- kovskaju og Natalíu Estemírovu. Engar öruggar sannanir hafa fengist enda leyfir Kadýrov ekki að liðsmenn hans í héraðinu séu yfirheyrðir. Kadýrov naut lengi hylli meðal Rússa fyrir að koma á friði í Tjetsníu en nú hefur stuðningur við hann hrapað í 17%. „Pútín hefur skapað vandamál sem hann veit ekki hvernig hann á að leysa,“ segir Ilja Jasín, þekktur and- ófsmaður og náinn vinur Nemtsovs heitins. Karlmennið ógurlega Ímyndin sem Kadýrov hefur byggt upp er þrenns konar: Hann er sauð- tryggur Kremlverjum, styður ákaft íslam og jafnframt er hann karlmenni sem ekkert hræðist, lætur mynda sig með villidýrum og haldandi á eit- urslöngu, klæðist oft hermannabún- ingi, hnyklar óspart vöðvana. Eins og landsfaðirinn Pútín. Og Kadýrov er mjög áberandi í sjónvarpi og öðrum miðlum. Hann kallar rússneska stjórnarandstæðinga „sjakala“ og „óvini þjóðarinnar“. Þá beri að senda á geðsjúkrahús í Tjetsníu. En jafn- framt leggur hann áherslu á trúrækni sína, hefur bannað áfengi og konur verða að hlýða öllu sem eiginmenn þeirra og feður skipa. Þegar Kadýrov varð 35 ára var efnt til geysimikillar veislu í höf- uðstaðnum Grosní, meðal gesta voru leikararnir Hilary Swank og Jean- Claude Van Damme. Forsetinn fékk líka á sínum tíma Hollendinginn Ru- ud Gullit til að þjálfa knattspyrnulið Grosní. Afmælisveislan kostaði of fjár en hvaðan komu peningarnir? „Allah gaf okkur þá,“ sagði Kadýrov glað- beittur. Leiðtoginn hefur látið byggja handa sér mikla höll í fæðingarbæ sínum, með ljónabúrum, veð- hlaupahestum og útsýni að tilbúnu stöðuvatni og fossi. Hann notar af miklum dugnaði Instagram-síðu sína sem um 1,6 milljónir manna fylgjast með. Nýlega birti hann þar myndskeið af Míkhaíl Kasjanov, fyrrver- andi forsætisráðherra Rússlands og and- stæðingi Pút- íns. Höfuð Kasjanovs var sýnt í riffilsigti leyniskyttu! „Þeir sem ekki hafa skilið munu skilja,“ skrifaði Kadýrov. Varið hefur verið sem svarar minnst 14.000 milljónum dollara í að byggja upp Tjetsníu, einkum höf- uðstaðinn Grosní. Risið hafa nýtísku- legir skýjakljúfar við aðalgöturnar, þar eru glæsilegir íþróttaleikvangar og skemmtigarðar, 5 stjörnu hótel og moska sem rúmar 10.000 manns. Og það sem mestu skiptir fyrir örmagna og oft þakkláta íbúana: það ríkir frið- ur, að mestu. 14 féllu í átökum í fyrra en mannfallið minnkar stöðugt. Spurningin er hvort Kadýrov hefur ofmetnast en sumir stjórnmálaskýr- endur segja að honum sé óhætt. Pút- ín þarfnist hans til að halda aftur af Tjetsenum og hryðjuverkamönnum í Kákasus, þarfnist hans jafn mikið og Kadýrov þarfnist hans. Auk þess sé Tjetseninn eins og ýkt mynd af Pútín, enn grófari en sýni hvernig Pútín geti farið að haga sér ef Rússar dirfist að rísa upp. Kadýrov sé viðvörun. Forseti Tjetsníu hefur frá 2004 notið hylli Pútíns Rússlandsforseta fyrir að berja niður uppreisnina í héraðinu. En er skottið farið að dilla hundinum? Hamingjusöm? Fjölkvæni alveg í lagi Vladímír Pútín Rússlandsforseti með Ramsan Kadýrov, forseta Tjetsníu sem er hluti Rússlands. Kadýrov er í reynd orð- inn einráður í héraði sínu og ræður yfir mörg þúsund manna vopnuðu her- og lögregluliði. „Ég ræð og enginn annar. Skilið?“ ’ Þetta er gömul og margítrekuð saga: Kremlverjar taka ungan, eldspúandi dreka í fóstur, síðan verða þeir að halda áfram að mata hann til að koma í veg fyrir að hann kveiki í öllu. Anna Polítkovskaja, mannréttindasinni. Myrt 2006. ERLENT KRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is BRASILÍA BRASILÍUBORG Stærsti vikunni að hætta stjórnarsamstarfi viðVerkamannaflokk Dilmu Rousseff forseta. Stuðningur landsmanna við Rousseff hefur hrunið og svo gæti farið að hún yrði hrakin frá vegna spillingarmála. KÍNASÝRLAND DAMASKUS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.