Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 16
VIÐTAL
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
henni, hún taki því ekki vel. Ef hann gerir grín
að henni fái hún bara tár í augun en segir að sitt
grín á hans kostnað sé annað mál. „Þá er ég
bara í vinnunni. Ef einhver væri að gera grín að
mér uppi á sviði myndi ég geta tekið því,“ út-
skýrir hún.
Fékk að vera manneskja aftur
Þættirnir Ligeglad voru teknir upp á fjögurra
vikna tímabili síðastliðið haust og segir Anna
Svava vinnuna hafa verið mjög skemmtilega.
„Ég var mjög kvíðin að fara enda var ég ný-
byrjuð á þessum töflum; nýhætt að grenja. Ég
trúði ekki að ég væri að fara í þessar tökur. En
Gylfi bauðst til að koma út með strákinn og þá
hætti ég með hann á brjósti. Þetta var bara
stórkostlega gaman! Og frelsið, ég fékk bara að
vera ég sjálf, vera manneskja aftur, ekki bara
mamma,“ segir Anna Svava.
„Það var ótrúlega góð stemning úti,“ segir
hún og leggur áherslu á að þættirnir séu sam-
vinna margra. „Þetta er svo mikið „teamwork“
að vera í svona litlu „crew“, það er svo gaman.
Við búum saman, borðum saman og það hafa
allir miklu meira að segja,“ segir Anna Svava
og segir hún að það hafi verið hlustað á álit allra
um hvað væri fyndið eða ekki fyndið. Þættirnir
eru skrifaðir fyrirfram en Anna Svava segir að
mikið sé spunnið á staðnum.
Anna Svava segir að dvölin í Kaupmanna-
höfn hafi frekar tekið á Gylfa en hann var oft
einn að sinna litla drengnum sem þá var sex
mánaða. Honum hafi leiðst aleinum á hótelher-
berginu. „Maðurinn minn er nefnilega ofvirkur.
Hann getur ekki setið kyrr í eina sekúndu,
þannig að þetta átti ekkert vel við hann,“ segir
hún. Ert þú ekkert ofvirk? „Nei, ég held ekki.
Eða jú örugglega! Við eigum bara mjög vel
saman, við erum alltaf að bralla eitthvað og
gera eitthvað. Við erum að gera íbúð úti í bíl-
skúr núna. Það þurfti bara verkefni fyrir Gylfa,
hann þarf alltaf að vera að gera eitthvað, bora
eða eitthvað,“ segir hún.
Ligeglad um Önnu í Danmörku
Nýjasta útspil grínistans Önnu Svövu er þátt-
urinn Ligeglad sem RÚV hefur tekið til sýn-
inga og virðast viðtökurnar vera vonum framar.
Ég spyr um aðdragandann. „Við Arnór Pálmi
Arnarson, leikstjórinn, kynntumst þegar við
vorum að vinna við Hæ Gosa. Og við höfum
skrifað mikið saman og einu sinni vorum við
bara heima að hanga og þá fékk ég þessa hug-
mynd. Að gera þátt þar sem ég er að ferðast í
Danmörku að meika það,“ segir hún en hug-
myndin varð ekki strax að veruleika því ým-
islegt annað í lífinu gekk fyrir, eins og að eign-
ast barn. „Við erum búin að skrifa þetta þrisvar
Úti á Granda er ísbúðin Valdís sem hefur notið mikilla vinsælda allt frá opnun fyrir þremur árum.
Anna Svava, Arnar Orri, Gylfi Þór og Jökull stilltu sér upp í myndatöku fyrir skemmstu á ferming-
ardegi Jökuls, elsta sonar Gylfa.