Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 17
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 sinnum og svo kom barnið,“ segir hún en með henni í Ligeglad leika Helgi Björnsson og Vign- ir Rafn Valþórsson. „Hann er besti vinur minn, Vignir,“ segir hún. Ég spyr hvort hún sé að leika sjálfa sig eða karakter sem hún hefur þróað en báðar heita þær Anna og eru uppistandarar. „Já, þetta er kannski svolítið líkt uppistandskarakternum mínum. Hún er bara svolítið vitlaus og inn við beinið er hún ógeðslega óörugg og líður illa. Drekkur allt of mikið og langar að einhver elski sig. Sem er líka hluti af mér, þegar ég var ein í sex ár var ég bara alltaf að djamma og leita að kærasta. Skilurðu, við höfum öll verið þarna. En hún er bara ennþá þar. Þetta er bara önnur útgáfa af mér. Þetta er bara ég fyrir nokkrum árum,“ segir hún og skellihlær. „Ég segi ekki svona dónalegt við fólk en hún bara veit ekki betur.“ Getur alltaf varið hina Önnuna Eftir fyrsta þáttinn af Ligeglad hefur fólk verið að tjá sig á samfélagsmiðlum og er meirihluti ánægður, segir Anna Svava. „Ég hef bara heyrt sjúklega gott en aðeins of mikið því ég verð smá stressuð að þetta myndi þá falla, skilurðu,“ seg- ir hún. „Á twitter var 95% jákvætt.“ Uppistandarinn Anna í Ligeglad er ekkert sérlega góð við Vigni vin sinn, bendi ég henni á. „Já, en ég er skotin í honum og þetta er vinur minn. Ég varð að losna við hana (kærustu Vign- is). Ég er bara að hugsa um Vigga!“ Hún skellir allt í einu upp úr. „Ég get alltaf varið hana! Ég er að verja hana en hún er al- gjör tík! En hún er búin að fitna ógeðslega mik- ið og kúkaði á sig í uppistandinu. Vorkennirðu henni ekki smá?“ spyr hún mig. Ég umla eitt- hvað og hún heldur áfram. „Maður fær líka samúð með henni, hún er svo misheppnuð,“ segir Anna Svava en hún segir að þau hafi rifist mikið um það hversu langt þau ættu að ganga með persónuna Önnu, hversu mikil tík hún ætti að vera. Ég nefni að persónan sé frekar óþol- andi. „Bíddu bara, þú átt eftir að hata hana. Hún er ótrúlega óþolandi. Hún er samt skemmtileg en ég myndi ekki treysta henni, al- gerlega ekki,“ segir Anna Svava um Önnu. Helgi Björnsson leikur „sjálfan sig“. „Ég held hann verði aldrei kallaður annað núna en Helgi fucking Björnsson,“ segir Anna Svava og hlær. „Þetta er eins og með Önnu, Helgi er ekk- ert svona. Viggi er ekkert svona,“ segir hún. „Mér finnst flott hjá Skarphéðni á RÚV að taka sénsinn á svona þætti,“ segir hún en mörg- um mun finnast þættirnir fara yfir strikið. Það er spurningin, hvar er strikið hjá þér? Fólk þarf þá ekkert að horfa,“ segir Anna Svava en hún er sjálf mjög ánægð með þættina. Segja má að þetta sé nokkurs konar fjölskylduverkefni því bróðir hennar, Arnar Knútsson hjá Filmus, framleiðir þættina ásamt Karli Pétri Jónssyni. Ísbúðin Valdís sló í gegn Talið berst að ísbúðinni Valdísi sem þau Gylfi eiga og reka saman. Það er ævintýri sem hana óraði ekki fyrir að myndi vinda svona upp á sig. Anna Svava byrjar á byrjuninni. Hún segir frá því að Gylfi hafi búið í Danmörku í áraraðir og starfað þar sem kokkur. Hann hafi svo skilið og flutt heim með annan af tveimur sonum sínum. „Hann var atvinnulaus þegar ég kynntist hon- um, bjó hjá mömmu sinni og pabba í Keflavík. Svaf í gamla herberginu sínu með strákinn uppi í hjá sér,“ segir hún og hlær. „Hann keyrði um á litlum bíl eins og hárgreiðslukonur eiga.“ Hún segir hann hafi þá fengið þá hugmynd að læra að búa til ís og opna ísbúð. Það varð úr og þau fengu húsnæði úti á Granda. „Ég var bú- in að hanna skrifstofu á efri hæðinni sem ég ætlaði að nota á daginn til að skrifa og EF ein- hver skyldi koma að kaupa ís gæti ég hlaupið niður og afgreitt, hjálpað Gylfa. Síðan nátt- úrlega gat ég aldrei notað þessa skrifstofu!“ segir hún og hlær. Velgengni Valdísar hefur farið fram úr þeirra björtustu vonum en þau bjuggust ekki við þessum miklu vinsældum. „Nei, ertu að grínast, bara alls ekki! Gylfi er bara snillingur. Við vorum líka einstaklega heppin að fá þetta húsnæði. Þegar við opnuðum vorum við ekki búin að ráða neina starfsmenn. Þetta átti bara að vera ég og hann en það endaði með að bróðir minn tók að sér peningamálin, mamma var í uppvaskinu og mamma Gylfa að baka vöfflur. Allir ættingjar okkar voru að vinna þar til við gátum ráðið fólk,“ segir hún. Í dag vinna þar fimm í fullri vinnu og 32 í hlutastörfum. Kvikmyndin Leynibrúðkaup Önnu Svövu fellur ekki verk úr hendi því á milli þess sem hún borgar út laun, hoppar upp á svið, stjórnar veislum og sér um lítið barn er hún varaformaður hjá SPES, hjálparsamtökum í Tógó í Afríku. Einnig hefur hún verið að skrifa handrit að kvikmynd sem á að bera nafnið Leynibrúðkaup. Myndin verður rómantísk gamanmynd byggð á brúðkaupi vinkonu henn- ar sem var haldið leyndu fyrir brúðinni fram á brúðkaupsdag. „Hún verður í anda Bridget Jones,“ segir Anna Svava en hún og Arnór vinna að handritinu saman. „Mig langar mikið að fara til Danmerkur að læra handritsgerð, það er á to-do listanum.“ Anna Svava ætlar ekki að leika í myndinni en er ákveðin í að ónefnd vinkona hennar muni leika hana sjálfa. „Ég er að skrifa fleiri handrit. Ég held að allir sem eru að skrifa handrit séu með svona fimm, sex handrit í skúffunni,“ segir hún. „En þessi bíómynd er það næsta sem ég ætla að gera. En svo veit maður ekki hvernig lífið er. Það gæti verið önnur Valdísarbúð, ég gæti orðið ólétt, ég gæti lent í hjólastól, ég gæti gert seríu tvo af Ligeglad. Pældu í því, ég gæti kannski orðið ólétt að tvíburum!“ segir hún og hlær. Eða þríburum! sting ég upp á. „Já! En svo er á dagskrá að starta sumrinu í Valdísi og gera það vel,“ segir Anna Svava sem borðar einungis ís sem heitir danskur lakkrís. „Planið er að starta sumrinu og fara í fellihýsið og ferðast um landið,“ segir Anna Svava. „Oh, ég er svo spennt!“ Hún lætur sig dreyma. „Smurð- ar samlokur; alltaf í sömu gallabuxunum; ferð bara í sund; úti allan daginn; grilla. Maður sef- ur svo vel og vaknar við fuglasöng,“ segir Anna Svava sem er komin hálfa leið í huganum út í ís- lenska sumarið. Við förum að slá botninn í samtalið og ég spyr hvort ég sé að gleyma einhverju. „Ég er góð manneskja!“ segir hún að lokum og skelli- hlær sínum smitandi hlátri. Það var oft mikið stuð í tökum í Danmörku. Móðir Önnu Svövu, Ásthildur Kjartansdóttir, sést hér með dóttur sinni og tengdasyni í danskri rigningu. Vignir Rafn, Anna Svava og Helgi Björnsson eru tríóið sem ferðast um Danmörku saman. „Ég held hann verði aldrei kallaður annað núna en Helgi fucking Björnsson,“ segir Anna Svava. Vignir Rafn Valþórsson leikur stórt hlutverk í Ligeglad en hún og Anna Svava eru bestu vinir. ’Hún er bara svolít-ið vitlaus og inn viðbeinið er hún ógeðslegaóörugg og líður illa. Drekkur allt of mikið og langar að einhver elski sig. Sem er líka hluti af mér, þegar ég var ein í sex ár var ég bara alltaf að djamma og leita að kærasta.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.