Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 20
AFP
R
íkjandi Evrópumeistarar í knatt-
spyrnu, FC Barcelona, eru með
níu stiga forskot á toppi spænsku
deildarinnar þegar átta umferð-
um er ólokið. Í vetur hafa þeir
skorað tæp þrjú mörk í leik að meðaltali þar
sem þríeykið MSN, Messi, Suárez og Neym-
ar, virðist geta skorað eftir því sem þá lystir.
Þegar Börsungar spila eiga þeir boltann, and-
stæðingurinn getur varla klukkað boltamann-
inn. Þeir spila úr erfiðum og þröngum leik-
stöðum eins og stórmeistari í skák snýr úr
vörn í sókn.
Leikmenn liðsins eru hvorki hávaxnir né
sérstaklega líkamlega sterkir. Tæknileg geta
þeirra er framúrskarandi þótt þeir nýti ekki
hvert tækifæri til þess að leika flóknar kúnst-
ir. Þeir sjá fegurðina í einfaldleikanum. Mót-
tökurnar eru áreynslulausar og svo mjúkar að
knötturinn steindrepst fyrir framan þá og
hver sending er rétt vigtuð og fellur hárná-
kvæmt fyrir fætur samherjans. Næsta skref,
næsta andartak, er ákveðið áður en sendingin
er framkvæmd. Og því er kannski ástæða til
þess að spyrja: Til hvers þarf leikmaður að
vera hávaxinn, stökkva hátt og líta á kappleik
eins og stríð ef hann er sneggri að hugsa en
andstæðingurinn?
Þannig spurði Johan Cruyff. Eftir stórbrot-
inn knattspyrnuferil tók hann við stjórn-
artaumunum hjá Barcelona árið 1988. Liðið
hafði þá um skeið átt nokkur mögur ár. Áður
hafði Cruyff tekið þátt í að móta knatt-
spyrnuakademíu félagsins, La Masía, sem er
að hluta til byggð á hinu margrómaða ung-
lingastarfi Ajax í Hollandi. Þar snýst allt um
tæknina og leikskilninginn. Hugmyndafræðin
totaal voetbal (e. Total Football) varð til hjá
Ajax og í Barcelona sameinaðist hún hug-
myndafræði Spánverja um hraðann, einnar
snertingar samleik – tiki taka. Á hverju ári
eru 300 leikmenn í La Masía þjálfaðir af 24
fyrrverandi atvinnumönnum í knattspyrnu.
Margir þeirra fóru sjálfir í gegnum unglinga-
starf félagsins sem leikmenn og þekkja því
hugmyndafræðina í þaula.
Draumaliðið sem mótaði
framtíð knattspyrnunnar
Undir stjórn Cruyff varð Barcelona eitt sterk-
asta lið heimsins. Liðið varð spænskur meist-
ari fjögur ár í röð, frá 1991 til 1994, og Evr-
ópumeistari árin 1989 og 1992. Alls vann liðið
ellefu titla undir stjórn Cruyff og fékk við-
urnefnið Draumaliðið. Varnartengiliðurinn
Eusebio, sem var lykilmaður í liði Cruyff, var
aðeins 23 ára gamall þegar Hollendingurinn
tók við þjálfun liðsins. Hann var viðstaddur
fyrsta liðsfund Cruyff sem hann lýsti svona:
„Hann náði í krítartöflu og teiknaði þrjá varn-
armenn, fjóra miðjumenn, tvo kantmenn og
einn framherja. Leikmennirnir litu hver á
annan og spurðu sig hvað í ósköpunum mað-
urinn væri að gera.Á þessum tímavoru leik-
kerfin 4-4-2 og 3-5-2 í hávegum höfð. Við trúð-
um ekki hversu mörgum sóknarsinnuðum
leikmönnum hann ætlaði að stilla upp. Á
þessu andartaki kenndi hann okkur knatt-
spyrnu upp á nýtt. Þetta var bylting sem mót-
aði framtíð spænskrar knattspyrnu.“
Cruyff var kokhraustur þegar hann út-
skýrði uppsprettu hugmyndarinnar á þann
veg að ef lið stillti upp fjórum varnarmönnum
á móti tveimur sóknarmönnum væru aðeins
sex leikmenn á móti átta á miðju vallarins.
Uppstilling með þeim hætti minnkaði líkurnar
á að liðið gæti sótt af krafti.
Vildi frekar vinna 5-4 en 1-0
„Ég var gagnrýndur fyrir að spila með aðeins
þrjá varnarmenn, sem er það heimskulegasta
sem ég hef heyrt,“ sagði Cruyff. „Það sem við
þurftum á að halda var að fjölga leikmönnum
á miðjusvæðinu. Ég vil frekar vinna 5-4 held-
Hann lét okkur skilja leikinn!
Einn fremsti knattspyrnumaður og þjálfari sögunnar, Johan Cruyff, lést í Barcelona hinn 24. mars síðastliðinn, 68 ára að aldri.
Hugmyndafræði Hollendingsins markaði djúp spor í knattspyrnuheiminum og fyrir þeim mun marka um ókomin ár.
Ingólfur Sigurðsson ingolfursigurdsson@gmail.com
Cruyff og önnur goðsögn, Pelé, draga í riðla á HM í Þýskalandi 2006.
AP
Cruyff í landsleik gegn Argentínu á HM í Vestur-Þýskalandi 1974.
AFP
Cruyff á hátindi ferils síns.
AFP
MINNING
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
Það er einfalt að leika knattspyrnu, enað leika einfalda knattspyrnu er eitt
hið erfiðasta sem hægt er að gera.“
É g ákvað að gerast þjálfari þegar mérvar tjáð að það gæti ég aldrei.“
Þú leikur knattspyrnu með höfðinu ogfæturnir eru til þess að hjálpa þér.“
Það er hræðilegt þegar efnilegum leik-mönnum er hafnað vegna tölfræði. Ef
farið væri eftir tölfræði hefði Ajax hafn-
að mér. Skilningur minn og tækni er ekki
mælanleg með tölum.“
JOHAN CRUYFF
1947-2016