Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
MATUR
Suðrænt,
safaríkt
og sætt
Fáir ávextir eru jafn himneskir
og mangó. Skærgula og safaríka
kjötið í ávextinum bragðbætir
allan mat. Þetta sérkennilega
sæta bragð lífgar upp á matinn
og er þessi ávöxtur vinsæll um
heim allan. Nota má mangó á
margan hátt en það passar með
bæði sætum og sterkum mat.
Það er einnig mikið notað í
boost-drykki, salsa og er frábært
út á skyr, gríska jógúrt og hafra-
grautinn. Svo er líka gott að
borða það eintómt!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
FISKURINN
1 tsk parikukrydd
½ tsk kummín
3⁄4 tsk salt
1⁄4 tsk svartur pipar
500 g hvítur fiskur, þarf að vera frekar stífur
1 msk olía
8 litlar tortillur
MANGÓ- OG AVÓKADÓSALSA
½ mangó skorið í bita
1 avókadó skorið í bita
1⁄4 bolli af rauðlauk, smátt skornum
½ jalapeñopipar skorinn smátt
2 msk kóríander smátt skorið
1 msk sítrónusafi
Setjið paprikukrydd, kummín, salt og pipar í skál og
veltið fiskinum upp úr kryddblöndunni. Setjið olíu á
pönnu og steikið fiskinn í tvær mínútur á hvorri hlið
eða þar til hann er eldaður í gegn.
Setjið allt hráefnið fyrir salsað saman í skál og
hrærið vel, bragðbætið með salti og pipar.
Hitið tortillakökurnar í ofni. Skerið fiskinn í bita og
setjið jafnt í tortillurnar, bætið síðan tveimur mat-
skeiðum af salsa á hverju köku.
Frá krom.is.
Fiski-taco með mangósalsa
Fyrir 6
750 g risarækjur (eldaðar)
6 skalotlaukar, skornir smátt
150 g majónes
¼ bolli sweet chili sauce
150 g blandað salat
3 meðalstór mangó, skorin
1⁄3 bolli ferskt kóríander
Takið skel af rækjum. Skerið laukinn og geymið í smástund í ísköldu
vatni. Blandið saman majónesi og chili-sósu í skál.
Setjið salatið í stóra skál með mangói og rækjum. Hellið sósunni yfir,
aðallega yfir rækjurnar. Að lokum takið þið laukinn úr vatni og dreifið
yfir ásamt kóríanderlaufunum.
Rækju- og mangósalat