Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
Laugavegi 99 – Sími 777 2281
(gengið inn frá Snorrabraut)
aff.is
Concept store
Stutt er síðan sunnudags-ritstjórn fjallaði um skugga-hliðar dýratengdrar ferða-
þjónustu. Ættu lesendur núna að vita
að vissara er að sneiða hjá fíla-
reiðtúrum, tígrisdýramusterum og
höfungasýningum og að fátt er
skemmtilegt við apa-uppistand eða
dansandi slöngur.
En svo eru staðir þar sem fer
hreint ágætlega um dýrin og jafnvel
að þau fagna því að fá til sín mennska
gesti. Þetta eru áfangastaðir sem
dýravinir ættu að hafa gaman af að
heimsækja og það án þess að hætta
sé á að það trufli lífríkið á staðnum
eða auki á þjáningar ferfætlinganna.
Svínaeyjan á Bahamaeyjum
Það eru ekki bara túristarnir sem
flatmaga alsælir og pattaralegir und-
ir pálmatrjánum á hvítum ströndum
Bahama-eyjaklasans suður í Karíba-
hafinu. Villtir grísir hafa lagt eina
eyjuna undir sig, verja þar dögunum
í að svamla í sjónum og hafa það gott.
Formlega heitir eyjan Big Major
Cay, þó hún sé oftast kölluð Svína-
eyjan í daglegu tali. Kallar það á
töluvert ferðalag að vitja grísanna og
á að vera best að fljúga til Nassau og
þaðan yfir til smáeyjunnar Staniel
Cay þar sem eru í boði ferðir á litlum
bátum til Svínaeyjunnar. Svínin
þykja hin mestu krútt og synda út til
bátanna þegar gesti ber að garði,
enda oft von á að ferðamennirnir hafi
tekið með sér góðan bita.
Ýmsar kenningar eru um hvernig
svínin komust á eyjuna. Er talið
mögulegt að sjómenn á ferð um
svæðið hafi skilið svínin eftir með það
fyrir augum að sækja þau síðar og
slátra þeim, en svo aldrei snúið aftur.
Aðrir halda að skip hafi farist á
svæðinu með svínin um borð og þeim
tekist að synda í land.
Kattaeyjan í Japan
Þekkirðu einhvern sem fær ekki nóg
af köttum? Þá er flugmiði aðra leið til
Aoshima málið. Eyjan er sunnarlega
á Japan og er
stútfull af kött-
um. Eyjan er
smá og sárafáir
sem búa þar
allt árið, ef kett-
irnir eru ekki
taldir með, en
áætlað er að kis-
urnar séu ekki færri en
120 talsins. Daglega
flytur lítil ferja gesti
til eyjunnar og tekur siglingin 30
mínútur. Yfirleitt safnast stór hópur
katta saman við bryggjuna til að taka
á móti ferðamönnunum.
Sagan segir að eyjarskeggjar hafi
ræktað silkiorma og flutt inn ketti til
að halda í skefj-
um músum sem
áttu það til að
éta ormana.
Silkiræktin er
löngu hætt og
þegar íbúum tók
að fækka blés
kattastofninn út.
Af heimildum má
ráða að heimamenn
reyni að sinna kött-
unum eftir bestu getu, þó hægt gangi
að gelda.
Japanska kanínueyjan
Á eyjunni Okunoshima eru bæði
hundar og kettir bannaðir. Er það
gert til að vernda þann aragrúa kan-
ína sem búa á þessari litlu eyju stutt
frá Hiroshima. Eins og með katta-
eyjuna Aoshima eru ýmsar kenn-
ingar um hvernig eyjan fylltist af
kanínum. Sumir telja líklegt að kan-
ínuskarinn tengist efnavopnaverk-
smiðju sem var á eyjunni og að for-
feður kanínanna hafi verið notaðir
við prófanir á rannsóknarstofu verk-
smiðjunnar.
Kanínurnar þurfa ekkert að óttast
og eru orðnar mjög gæfar. Um leið
og gestir stíga fæti á eyjuna geta þeir
vænst þess að kanínur hrúgist að fót-
unum sér. Ólíkt Aoshima er ögn betri
aðstaða fyrir ferðamenn á kanínueyj-
unni, með tjaldsvæðum, veitingasölu
og safni með sýningu um eitur-
efnahernað.
Rebbaþorpið í Japan
Greinilegt er að Japanir kunna að
meta krúttleg og loðin dýr. Auk þess
að geta heimsótt eyjur fullar af kan-
ínum og köttum er þar rekið refa-
athvarfið Zao Fox Village í Miyagi-
sýslu, ekki langt frá Fukushima.
Einn ferðablaðamaður kallar at-
hvarfið „krúttlegasta stað í heimi“,
en þar búa rösklega hundrað refir af
sex tegundum. Gestir þurfa að fylgja
ákveðnum reglum um það hvernig
þeir umgangast refina. Dýrin eru
villt en sumir refirnir gæfir. Er fólki
ráðið frá því að reyna að klappa
rebbunum og hvað þá raska ró refa
sem hafa tekið sér frí frá gest-
gjafastörfunum til að fá sér blund.
Fílahótelið í Sambíu
Flest hótel-lobbí eru eins: lummulegt
sófasett í einu horninu, rekki með
upplituðum bæklingum, nokkrar
pottaplöntur og … hjörð af fílum?
Gestir Mfuwe Lodge-hótelsins í
South Luangwa-þjóðgarðinum í
Sambíu gætu þurft að deila anddyr-
inu með fílafjölskyldu sem hefur það
fyrir venju að rölta þar í gegn á tíma-
bilinu október til desember. Fílarnir
hafa uppgötvað villt mangótré sem
stendur við hótelið og ber safaríka
ávexti. Eins og gáfuðum skepnum
sæmir fara fílarnir stystu leiðina að
kræsingunum og liggur hún í gegn-
um hótelið, fram hjá gesta-
móttökunni.
Þar sem krúttleg dýr ráða ríkjum
Svamlandi svín, kelnar kanínur og fílar
í mangóleit laða að ferðamennina
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Ljósmynd / Wikipedia - Name1857 (CC)
Ljósmynd / Wikipedia - cdorobek (CC)
Ljósmynd / Bush Camp Company
Ljósmynd / Sigurður Ægisson
Ljósmynd / Wikipedia - Hima Kakiko (CC)
Flugvellir eru kjörnir fyrir gönguferðir. Þegar fyrirséð er að eyða þurfi
nokkrum tímum á flugvelli er óþarfi að sitja kyrr allan tímann, enda
kyrrsetan næg í vélinni. Betur fer á að nýta tímann í að ganga um.
Í gönguferð á flugvelliFERÐALÖG