Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Qupperneq 48
É
g vildi að ég ætti hundr-
að ár eftir. Það er svo
margt sem ég á eftir að
sjá og gera.“
Bragi Ásgeirsson var
kominn á áttræðisaldur þegar hann
sagði þessi orð við mig niðri á gamla
Mogga í Kringlunni. Hann var þar
staddur í einni af fjölmörgum heim-
sóknum sínum vegna rýnisskrifa
sinna fyrir þetta blað, sem hann
sinnti með öðrum störfum í áratugi,
og fór að tala um ferðalög. Bragi
unni ferðalögum enda svalaði fátt
fróðleiksþorsta hans betur. Það var
ekki gamall maður og saddur sem
talaði, heldur bráðungur og leitandi.
Þarna var Bragi farinn að óttast að
hann kæmist ekki yfir allt sem hon-
um fannst hann þurfa að gera á
þessu tilverustigi. Til allrar ham-
ingju fékk hann góð tíu ár í viðbót.
Grípum aðeins niður í samtal sem
ég átti við Braga hér í blaðinu þegar
hann varð 75 ára vorið 2006:
„Ég hef óhemju áhuga á því að
ferðast, t.a.m. til Mið-Evrópu. Það
er svo margt ókannað. Ég hef mjög
gaman af því að ráfa einn um. Mín-
ar bestu minningar eru t.d. frá því
þegar ég var einn í tíu daga í Tókíó
og lærði á allt kerfið og fylgdist með
mannlífinu. Ég var alls staðar.
Þarna í Tókíó eru menn með gallerí
á efstu hæð í verslunarmiðstöðvum,
t.d. má finna Vatnaliljurnar eftir
van Gogh í slíku galleríi. Þetta þætti
ófínt hér.“
Var eins og fiskur í Chile
Bragi hafði dálæti á framandi
menningarsvæðum og um veturinn
dvaldist hann um tíma í Chile.
„Þetta var óhemju langt flug og ég
var svolítið banginn í upphafi. En ég
var hissa á því hvað ég þoldi þetta
vel. Ég var eins og fiskur þegar ég
kom til Santiago,“ sagði hann og
hló. „Svo fór ég í mikla göngu upp
brattar hlíðar í Valparaíso og
reyndist vera miklu sterkari en ég
átti von á.“
– Það er með öðrum orðum alveg
hægt að vera ungur 75 ára?
„Já, blessaður vertu. Unga fólkið
á ekki að hafa forgang á æskuna.“
– Hvers vegna ertu svona þrótt-
mikill?
„Ég hef ekki velt því fyrir mér.
Ég fylgist mjög vel með. Ferðast
um og skoða ólíka hluti, les mikið,
m.a. blöð og tímarit. Síðan gefa
söfnin mér mjög mikið. Það eykur
manni þrótt að skoða söfn og sjá
Apríl með Sundum. Olía á masonít, 2001.
Vildi að ég ætti 100 ár eftir!
Bragi Ásgeirsson, listmálari, kennari, greina-
höfundur og listrýnir, lést um páskana, 84 ára að
aldri. Hann gekk langan veg með þessu blaði og
lét mörg eftirminnileg orð falla gegnum tíðina.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Bragi Ásgeirsson á
vinnustofu sinni þegar
hann varð áttræður.
Morgunblaðið/Kristinn
Þetta málverk eftir Braga, sem hann kallaði Lífþrasir, var
gefið Lækjarskóla í Hafnarfirði við vígslu skólans.
Þetta verk, Sveifla frá 1958, er í eigu Morgunblaðsins. Þín bjarta mynd, þú ljósa man. 1977. Eigandi Árvakur.
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
LESBÓK