Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Sá stíll á samskiptum að svara engu sem spurt er um heldur semja eiginspurningar og svara þeim hefur því miður gert vart við sig í stjórn-málum hér á landi að undanförnu. Reyndar er þetta ekkert nýtt, held-
ur líklega stíll sem fenginn er að láni frá stjórnmálamönnum fyrri tíðar.
Skemmst er að minnast þess þegar fyrrverandi forsætisráðherra var fyrr í
mánuðinum umkringdur fjölmiðlafólki nær samfleytt í þrjá daga en svaraði
samt engri spurningu sem að honum var beint.
Hann tók einfaldlega ekki við spurningum frá öðrum, heldur samdi þær
sjálfur og svaraði svo sínum heimatilbúnu spurningunum skriflega á eigin vef-
síðu.
Fleiri hafa notað þessa aðferð, sem hefur þann eina tilgang að stýra um-
fjöllun um óþægileg mál eða koma í
veg fyrir hana. Í besta falli er þessi
aðferð hallærisleg og í versta falli,
eins og þegar kjörnir fulltrúar eiga í
hlut, er hún ólýðræðisleg.
Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlut-
verki. Blaðamenn eru í þjónustu við
almenning við að veita upplýsingar
og varpa ljósi á það samfélag sem
við búum í. Stjórnmálamenn eru
kjörnir til starfa og verða að vera til-
búnir að svara fyrir verk sín, óháð
því hver spyr eða hvort spurning-
arnar eru þeim að skapi. Auðvitað er
óþægilegt að hafa hljóðnemafjöld í
andlitinu en það þýðir ekki að það sé
í lagi fyrir ráðamenn að sleppa því
að svara eðlilegum spurningum. Þá
er verið að hindra fjölmiðlafólk í að
vinna vinnu sína í þágu almennings.
Þegar spurningar fjölmiðlamanna
eru hunsaðar af stjórnmálamönnum
sem vilja stýra umfjöllun um sjálfa
sig er mikilvægt að fjölmiðlar standi sig og gleymi ekki spurningunum sem
ekki var svarað. Spurningarnar þarf að geyma og þeirra þarf að spyrja aftur
síðar þegar sá sem spurður var fæst til viðtals. Sé þeim enn ósvarað þarf að
spyrja þeirra aftur.
Það er fullkomlega óeðlilegt að stjórnmálamanni í valdastöðu komi til hugar
að spyrja sjálfan sig spurninga, svara þeim svo og telja að þar með sé öll sag-
an sögð. Það er ekki stjórnmálamanna að stýra umfjöllun um sig sjálfa og það
er ekki þeirra að skrifa eigin sögu.
Getty Images/iStockphoto
Spurt og svarað
...eða ekki svarað
’Blaðamenn eru íþjónustu við almenn-ing við að veita upplýs-ingar og varpa ljósi á það
samfélag sem við búum í.
Stjórnmálamenn eru
kjörnir til starfa og verða
að vera tilbúnir að svara
fyrir verk sín, óháð því
hver spyr eða hvort
spurningarnar eru þeim
að skapi.
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Ragnheiður Haraldsdóttir
Nei, ég hef ekki gert það frá því að
ég var lítil stúlka.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú
í kröfu-
göngu
1. maí?
Guðný Kristjánsdóttir
Nei, ég kemst ekki. Annars hefði ég
farið.
Helgi Ágústsson
Nei, alveg örugglega ekki.
Reynir Olgeirsson
Nei, ég reikna ekki með því. Ég verð
í afmæli 1. maí, annars hef ég oft
farið.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
1. Þú ætlar að
skemmta lýðnum í
Hafnarfirði á 1.
maí. Er eitthvað
fyndið við baráttu
verkalýðsins fyrir bætt-
um kjörum?
Það er eitthvað fyndið við allt. Krabba-
meinssjúklingar sem liggja banaleguna eiga
það meira að segja til að gera grín að aðstæðum
sínum. Verkalýðsbaràtta er reyndar ekki eins kröft-
ug í dag og áður og þar af leiðandi ekki jafn fyndin.
Við grínistar eigum betra með að vinna með öfga. Ann-
ars verð ég nú ekki bara að gera grín að verkalýðsbar-
àttu í dag, en ég verð fyndinn. Það er pottþétt.
2. Er góssentíð hjá grínurum landsins nú
þegar allt er í steik í landsmálunum?
Já, alveg tvímælalaust. Reyndar er þetta eiginlega aðeins
of mikið. Maður veit ekki hvar maður á að byrja að gera
grín.
3. Þú ert þekktur fyrir eftirhermur. Ertu að
æfa einhvern sérstakan núna?
Ég er núna að vinna mest í Ragga Bjarna, en ég hef aldrei
hermt eftir honum á skemmtun, bara á Snapchat. Kannski
geri ég það í dag.
4. Þú hefur hermt eftir mörgum tónlist-
armönnum, hermirðu líka eftir stjórnmála-
mönnum?
Ég held að Sigmundur Davíð sé sá eini og hann var nokkuð
auðveldur. Ég vona að hann verði áberandi næstu áratugina,
hvort sem það verður í stjórnmálum eða einhverju öðru.
5. Hvaða stjórnmálamaður er fyndnastur?
Sigmundur Davíð. Ég hef aldrei hlegið jafn mikið og þegar
hann var að tala við sænska sjónvarpsmanninn. Hann tafsaði
upp à 10.
6. Hvaða forsetaframbjóðanda heldurðu að sé
auðveldast að herma eftir?
Texas-Magga.
Morgunblaðið/Ásdís
SÓLMUNDUR HÓLM
SITUR FYRIR SVÖRUM
Eitthvað
fyndið
við allt
Forsíðumyndina tók
Ragnheiður Sigurð-
ardóttir Bjarnarson.
Sólmundur Hólm, eða Sóli Hólm eins og hann er kallaður, er eftirherma
og útvarpsmaður á Rás 2. Hann kemur víða fram og verður meðal ann-
ars með skemmtiatriði í Hafnarfirði í tilefni af hátíðarhöldum 1. maí.