Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 36
FERÐALÖG
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016
Fyrir íbúum Lofoten í Norður-Noregi er tjaldurinn vorboði,eins og lóan er í augum Íslend-
inga. Og í ár kom hann þangað 15.
mars. Eins og hér á landi er þessi
vorboði þó meira eða minna tákn-
rænn; það er ekki þar með sagt að
um leið og fuglinn drepur niður fæti
bresti á með brakandi vorblíðu.
En nú er þó farið að hlýna í veðri,
heimamönnum til mikillar gleði, enda
segja þeir veturinn hafa verið helst
til snjóþungan.
Lofoten er heiti á eyjaklasa sem
liggur á 67.-68. breiddargráðu í
Norður-Atlantshafi, norður af heim-
skautsbaugi. Stærsti bærinn í Lofo-
ten heitir Svolvær, sem reyndar er á
fastalandinu, á svæðinu búa alls um
25.000 manns og sjávarútvegur og
fiskveiðar eru helstu atvinnugrein-
arnar. Vesturfjörður eða Vestfjorden
skilur stærstu eyjarnar; Austvågøy,
Moskenesøy, Vestvågøy, Flakstadøy
og Moskenesøy, frá meginlandinu en
þær eru allar tengdar með brúm og
göngum.
Rétt eins og hér á landi, hefur
ferðamönnum í Lofoten fjölgað ár frá
ári undanfarið, vetrarferðamennska
fer vaxandi og í janúar í ár komu
þangað 62% fleiri erlendir ferðamenn
en árið áður, samkvæmt umfjöllun
norska ríkisútvarpsins, NRK. Þar
segir líka að undanfarin tíu ár hafi
fjöldi þeirra ferðamanna, sem sækja
svæðið heim, þrefaldast og að árið
2014 hafi tekjur af ferðaþjónustu í
Norður-Noregi verið 16,5 milljarðar
norskra króna, rúmur 251 milljarður
íslenskra króna.
„Loksins er heimurinn búinn að
uppgötva Lofoten“ var staðhæft í
ferðatímariti fyrir nokkru. Umfjall-
anir í tímaritum og á ferðavefsíðum
undir fyrirsögnum á borð við „Heit-
asti kaldi áfangastaðurinn“ og
„Þangað þarftu að fara“ hafa verið
áberandi undanfarið ár og hefur það
vafalítið átt sinn þátt í þessari fjölg-
un. En eftir hverju eru allir þessir
ferðamenn að slægjast?
Suðrænar strendur á 68 °N
Fyrst og fremst er náttúrufegurð
óvíða meiri og útvistarmöguleikar eru
einstaklega fjölbreyttir allan ársins
hring, hvort sem hugurinn stendur til
þess að fara á skíði eða klífa fjöll.
Marglit hús í litlum fiskiþorpum, sem
kúra undir snarbröttum og ægiháum
fjöllum, áhugaverð söfn og skemmti-
legt mannlíf. Norðmenn eru nefnilega
einstakir höfðingjar heim að sækja.
Í fjörðum leynast lygnar víkur og
þar eru sandstrendur sem að sögn
heimamanna gefa suðrænum sólar-
ströndum ekkert eftir á sumrin. Svo
er það maturinn! Hann einn og sér er
vel heimsóknarinnar virði.
Blaðamaður sótti Lofoten heim
fyrir skömmu, var þar í nokkra daga
og hyggur á aðra ferð eins fljótt og
verða má. Því sá sem leggur leið sína
til Lofoten þarf að gefa sér þar góðan
tíma. Jafnvel færa bækistöð sína á
milli staða, því svæðið er víðfeðmt og
langan tíma getur tekið að komast á
milli staða.
Einn staður sem allir Lofoten-
farar ættu að heimsækja er Henn-
ingsvær, fiskiþorp sem er á nokkrum
smáeyjum. Bæinn prýða litrík
timburhús sem mörg hver hýsa litlar
sérverslanir og sælkerabúðir standa
við þröngar götur. Hafnarsvæðið er
einstaklega heillandi og vinsælt er að
heimsækja bæinn fyrir jólin, en þá
verður Henningsvær að litlum og
krúttlegum jólabæ. Í Henningsvær
er, líkt og víða á Lofoten-svæðinu,
boðið upp á gistingu í „rorbuer“, sem
Ljósmynd/Chris Craggs/nordnorge.com
Heitasti kaldi
áfangastaðurinn
Lofoten í Norður-Noregi er ægifagurt landsvæði sneisafullt af skemmti-
legheitum fyrir ævintýragjarna ferðalanga. Maturinn er góður, úti-
vistarmöguleikar eru fjölbreyttir og heimamenn taka vel á móti gestum.
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is
Náttúrufegurð er mikil
í Norður-Noregi og
fjallasýn fögur.
Í Lofoten eru fjölbreyttir útivistar-
möguleikar allan ársins hring.
Ljósmynd/Kristian Nashoug Vaagan/nordnorge.com
Talsvert er um haferni, konunga
fuglanna, í Lofoten.
Ljósmynd/Vebjørn Karlsen/nordnorge.com
Ljósmynd/Kristin Folsland/nordnorge.com
Það þykir mikil áskorun og ekki á færi nema mestu ofurhuga að stökkva á milli
horna Svolværgeitarinnar, klettadrangs í fjallinu Fløya fyrir ofan bæinn Svolvær.
Ferðaföt þarf að velja vel, sérstaklega fyrir lengri ferðir.
Föt úr ull og silki eru þægileg og halda sér betur en
aðrar flíkur. Þetta vita allir nútíma útilegumenn.
Ferðalangar velja efnin vel
Tilboðsverð kr. 159.615,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 199.518,-
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is