Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 40
TÆKNI
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016
Alls nota 45 milljónir manns hlaupaforritið RunKeeper um heim
allan. Með smáforritinu er hægt að halda utan um hlaup og aðra
líkamsrækt og fylgjast með framförum.
Vinsæll hlaupafélagi
Hugsanlega þekkja ekki allirljósmyndafyrirtækiðSigma, þótt það þekki allir
ljósmyndafróðir, en það framleiðir
samnefndar ljósmyndavélar og er að
auki einn af helstu linsuframleið-
endum heims. Sigma-linsur eru
þekktari en myndavélarnar og þykja
almennt afbragðstæki, ekki síst á
síðustu árum, en hægt er að fá
Sigma-linsur fyrir Canon EF, Nikon
F, Minolta/Sony a og Pentax K.
Sigma er japanskt fyrirtæki,
stofnað 1961 af Michihiro Yamaki,
sem stýrði fyrirtækinu fram til 2012
þegar hann féll frá. Nýr stjórnar-
formaður tók til við að byggja fyrir-
tækið upp að nýju og fékk meðal
annars hönnuð frá Carl Zeiss til að
liðsinna sér með góðum árangri. Á
síðustu árum hefur fyrirtækinu fyrir
vikið vaxið fiskur um hrygg á lin-
susviðinu, sérstaklega með svo-
nefndri Art-framleiðslulínu. Svo vel
hefur Sigma gengið á undanförnum
árum og svo mikið hefur salan aukist
að Canon reyndi að kaupa fyrirtækið
á síðasta ári.
Af upptalningunni hér fyrir ofan
má ráða að hver framleiðandi er með
sína eigin linsufestingu, aðallega til
að tryggja að þeir sem kaupi af
þeim vél kaupi líka af þeim linsur,
og þótt vissulega sé hægt að kaupa
linsur fyrir viðkomandi vél frá öðrum
framleiðendum er það býsna mikið
stökk að skipta út myndavél og þurfa
þá að byggja upp nýtt linsusafn líka.
Í eina tíð var hægt að nota linsuhring
til að tengja linsu frá öðrum fram-
leiðanda við myndavél og það gat
gagnast vel þó að það breytti eðlilega
notkunarsviði linsunnar að einhverju
leyti. Eftir því sem linsur verða full-
komnari og rafeindavæddari vandast
þó málið, því að vél og linsa þurfa að
geta „talað“ saman ef vel á að vera.
Sigma á svar við þessu og kynnti í
vor nýjan linsuhring, hátæknivædd-
an, MC-11, sem gerir kleift að nota
til að mynda Canon eða Canon-
samhæfðar linsur við Sony E-mount
vélar og nýta allt það sem linsan býð-
ur upp á varðandi sjálfvirkan fókus
og hristivörn, svo dæmi séu tekin. Ef
notandi setur linsu við vélina sem
hringurinn ekki styður er hægt að
uppfæra hann, tengjast honum með
aðstoð borð- eða fartölvu, enda er á
MC-11 hringnum USB-tengi til þess
arna.
Hringurinn sjálfur er ekki eins
nettur og linsuhringir voru í eina tíð,
enda er þetta öllu meira apparat, en
sáraeinfalt að nota hann og svín-
virkar. Mjög snjöll lausn. Hann kost-
ar 45.900 kr. hjá Fotovali.
Eins og ég nefndi er Sigma aðal-
lega frægt fyrir ljósmyndalinsur og
segir sitt að fyrirtækið fékk þrenn
verðlaun á samkomu alþjóðlegra
samtaka ljósmyndatímarita, TIPA,
sem haldin var í byrjun mánaðarins.
Verðlaunin fékk Sigma fyrir bestu
stafrænu linsuna í þremur flokkum;
Sigma 50-100mm F1.8 DC HSM |
Art var valin besta aðdráttarlinsan,
Sigma 24-35mm F2 DG HSM | Art
var valin besta gleiðlinsan og Sigma
20mm F1.4 DG HSM | Art var valin
besta atvinnumannalinsan.
Svo vill til að fyrsta eintakið af
Sigma 50-100mm F1.8 DC HSM |
Art barst til landsins í vikunni og
gafst færi á að kynnast henni aðeins.
Eins og sjá má á myndinni hér fyrir
ofan er þetta afbragðslinsa sem ætl-
uð er fyrir APS-C vélar, þ.e. vélar
sem eru með svonefnda „crop“-
myndflögu.
Orðið „Art“ sem skeytt er aftan
við linsuheitið vísar til þess að þetta
er linsa í efsta gæðaflokki Sigma og
það á reyndar við um allar
verðlaunalinsurnar. Hún kostar líka
sitt, 209.900 kr. í Fotovali, og er
heilmikið apparat, hálft annað kíló
að þyngd. Það er mjög gott að sýsla
með hana og maður finnur strax að
smíðin á henni er fyrsta flokks. Mér
finnst það til að mynda kostur að það
er langur snúningur á fókusstill-
ingum.
Aðal hverrar linsu er þó eðlilega
glerið í henni og er það líka fyrsta
flokks, framúrskarandi og ótrúlega
tært – segir sitt að linsan er með f/1.8
út í gegn.
Það er engin hristivörn í linsunni,
sem einhverjum finnst eflaust ókost-
ur, en hefði bæði gert hana þyngri og
umfangsmeiri og einnig hækkað
verðið umtalsvert. Þetta er linsa sem
hentar vel til að taka portrettmyndir
og líka afbragð til að taka íþrótta-
myndir innanhúss svo dæmi séu tek-
in. Þetta er líka fyrirtaks linsa til að
taka vídeó.
Í linsunni er SpeedBooster, sem
nýtir myndflöguna betur, hleypir
meira ljósi á hana og gerir að verk-
um að ljósnæmi verður f/1.2. Tæknin
er frá fyrirtækinu Metabones og
upphaflega sniðin sem eins konar
millistykki fyrir fullframe linsur við
APS-C vélar.
Eins og viðbætur og millistykki al-
mennt getur SpeedBooster haft
áhrif á myndgæði og dregið úr hraða
á sjálfvirkum fókus svo það á ekki
alltaf við. Kemur annars eflaust að
góðum notum þar sem við á.
Sigma slær í gegn
Japanska fyrirtækið Sigma á sér áratuga sögu sem
framleiðandi á ljósmyndatæknivörum; sendi frá
sér fyrstu myndavélarnar og linsurnar fyrir hálfri
öld. Á síðustu árum hefur það sótt verulega í sig
veðrið með framúrskarandi linsum.
Ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa mynd með Sigma 50-100mm F1.8 DC HSM | Art linsunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’
Sigma er aðal-
lega frægt fyrir
ljósmyndalinsur
og segir sitt að
fyrirtækið fékk
þrenn verðlaun
á samkomu al-
þjóðlegra sam-
taka ljósmynda-
tímarita.
Græjan
Árni
Matthíasson
arnim@mbl.is
Sigma MC-11 - hátæknivæddur linsu-
hringur.
Sigma 50-100mm F1.8 DC HSM | Art
Sjá útsölustaði Crabtree & Evelyn á www.heggis.is