Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Side 12
FORSETAVAKTIN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016
Tveir frambjóðendur til embætt-is forseta Íslands heltust í vik-unni úr margumtalaðri lest:
Bæring Ólafsson á mánudaginn og
Hrannar Pétursson á miðvikudag.
Báðir kváðust hætta við í ljósi mjög
breyttra aðstæðna, eftir að sitjandi
forseti ákvað að bjóða sig fram aftur.
Þá eru nokkrir enn undir feldinum,
sem heldur er ekki sjaldnar nefndur
þessi dægrin en lestin góða.
Eftir því sem næst verður komist
eru 11 ákveðnir í að gefa kost á sér,
þegar þetta er skrifað síðdegis á
föstudegi: Benedikt Kristján Mewes,
Ástþór Magnússon, Elísabet Jökuls-
dóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir,
Ólafur Ragnar Grímsson, Andri
Snær Magnason, Ari Jósepsson,
Halla Tómasdóttir, Hildur Þórð-
ardóttir, Magnús Ingi Magnússon og
Sturla Jónsson.
Undir feldinum
Þau, sem vitað er að íhuga alvarlega
að gefa kost á sér, eru Guðrún Nor-
dal, prófessor og forstöðumaður
Árnastofnunar, Sigrún Stef-
ánsdóttir, forseti hug- og fé-
lagsvísindasviðs Háskólans á Ak-
ureyri, Berglind Ásgeirsdóttir,
sendiherra Íslands í Frakklandi og
Guðni Th. Jóhannesson, lektor í
sagnfræði við Háskóla Íslands.
Nokkrir frambjóðenda komu í
fyrsta skipti fram saman í vikunni, á
fundi sem Stúdentafélag Háskólans í
Reykjavík stóð fyrir. Þar notaði
Hrannar einmitt tækifærið og til-
kynnti ákvörðun sína.
Öllum frambjóðendum var boðið á
fundinn en Andri Snær, Ástþór,
Benedikt, Guðrún Margrét, Halla,
Hildur og Hrannar þáðu boðið, aðrir
afþökkuðu.
Segja má að með fundinum hafi
„alvöru“ kosningabarátta farið af
stað. Barátta var reyndar ekki mikil
á fundinum, fólk kynnti sig og
stefnumálin, nema hvað Ástþór
Magnússon skaut býsna föstum
skotum á Andra Snæ, að sögn
fréttavefjar Morgunblaðsins, mbl.is,
og á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta,
sem hann sagði hafa orðið uppvísan
að lygum.
Andri Snær sagðist, á fundinum,
hafa boðið sig fram því hann vildi sjá
Íslendinga standa fyrir eitthvað
mikilvægt og legði fram þrjár stórar
hugmyndir til að það yrði að veru-
leika á næstu árum. Hann nefndi
náttúru, lýðræði og menningu í
þeim efnum. Lagði áherslu á stofn-
un þjóðgarðs á Miðhálendinu, sem
hann sagðist telja myndu verða eina
þeirra stóru hugmynda sem kynslóð
hans gæti lagt fram, að lokið verði
við gerð nýrrar stjórnarskár og að
hlúð verði að tungumálakennslu
barna sem flytja til Íslands.
Ástþór Magnússon deild hart á
aðra frambjóðendur sem fyrr segir.
Sagði hann einn þeirra - og vísaði
bersýnilega til Andra Snæs, sessu-
nautar síns, hafa verið á ríkisspena í
níu ár og sæktist nú eftir að komast
á stærri spena. Ástþór hefur
löngum lagt megin áherslu á frið-
armál og sagðist nú lofa því að ná
600 milljörðum króna til Íslands
með því að gera friðariðnað að
þriðja megin atvinnuvegi landsins.
Benedikt Kristján Mewes sagðist
á fundinum vonast til þess að hann
yrði fyrsti samkynhneigði forseti
heims, en tók reyndar fram að ekki
væri víst að hann yrði í framboði að
þessu sinni. Frambjóðandinn hefur
ekki tjáð sig um það frekar síðan en
benti á, á Facebook síðu sinni, að
hann hefði fengið 0,0% í nýjustu
skoðanakönnun MMR.
Guðrún Margrét Pálsdóttir lagði
áherslu á að Íslendingar hefðu kær-
leika að leiðarljósi, stæðu saman og
hjálpuðu hver öðrum.
Fortíð eða framtíð
Halla Tómasdóttir lýsti forsetakosn-
ingunum sem vali á milli fortíðar og
framtíðar, og Andri Snær hefur talað
á svipuðum nótum.
Halla sagðist þeirrar skoðunar að
íslenskir nemendur ættu að fara utan
til að öðlast reynslu í öðrum sam-
félögum en markmiðið ætti að vera
að skapa aðstæður hér á landi til að
þeir vilji snúa aftur heim.
Talaði Halla fyrir því að gildi þjóð-
fundar sem var haldinn árið 2009
yrðu innleidd um heiðarleika, rétt-
læti, virðingu og jafnrétti. Það væri
grunnur að góðu samfélagi.
Hildur Þórðardóttir sagðist alger-
lega óháð stjórnmálaflokkum og tók
fram að hún ætti engar eignir í
skattaskjólum. Nauðsynlegt væri að
kjósa fólk sem væri ekki hluti af kerf-
inu.
Hún sagðist vera stuðningsmaður
stjórnarskrárbreytinga og nauðsyn-
legt væri að forseti greiddi götu
þeirra vegna þess að þær væru upp-
hafið að nýju samfélagi sem lands-
menn þrái svo heitt að byggja.
Á fundinum voru frambjóðend-
urnir spurðir út í fullveldi Íslands og
hvernig þeir myndu bregðast við ef
skerða ætti það með alþjóðlegum
samningum eða aðild að ríkja-
samböndum. Flestir nefndu að þeir
myndu standa vörð um fullveldi Ís-
lands og allir nefndu að ákvarðanir
um slíkt ætti að bera undir þjóðina í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Spurð um framtíðarsýn fyrir ungt
fólk á Íslandi sagðist Halla vilja setja
jafnréttismál á oddinn og að Ísland
yrði fyrsta land í heimi til að brúa
kynjabilið.
Andri Snær lagði einnig áherslu á
að framþróun byggist á aukinni
þekkingu og tengdi það við núver-
andi undirstöður Íslands eins og
sjávarútveg. Mikilvægt væri að horfa
á verðmætin sem væru fyrir hendi og
margfalda þau. Í því fælust tækifæri
fyrir ungt fólk.
Yfirburðir Ólafs
Ein skoðanakönnun var birt í vikunni
og samkvæmt henni nýtur Ólafur
Ragnar Grímsson langmest stuðn-
ings. Zenter framkvæmdi könnunina
26. til 28. apríl, 821 svaraði og 41%
sagðist líklegast myndu kjósa Ólaf,
18,3% Andra Snæ og 6,2% Höllu.
15,2% höfðu ekki gert upp hug sinn
og 9% sögðust ætla að skila auðu.
Af þeim sem tóku afstöðu telja
57,6% líklegast að þau kjósi Ólaf,
25,8% Andra og 8,7% Höllu.
Tveir til hættir – ellefu í framboði
Tveir mánuðir eru til
kosninga og línur örlít-
ið farnar að skýrast. Þó
er enn beðið hugs-
anlegra framjóðenda
sem enn eru undir feldi
en gætu orðið öflugir.
Sjö frambjóðendur mættu til leiks í Háskólann í Reykjavík en voru sex í lok fundar þar sem Hrannar Pétursson dró framboð sitt til baka. Frá vinstri: Hrannar,
Hildur Þórðardóttir, Halla Tómasdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Benedikt Kristján Mewes, Ástþór Magnússon og Andri Snær Magnason.
Morgunblaðið/Golli
8 vikur
TIL KOSNINGA
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
KJÖREIGN FASTEIGNASALA – TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA Í 40 ÁR