Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 31
1.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
SÆTT EGGJABRAUÐ MEÐ VANILLU,
SÝRÐUM RJÓMA OG JARÐARBERJUM
1 stk, hvítt brauð (óskorið – skorið í fjórar
þykkar sneiðar)
4 egg
2 msk, rjómi
5 msk, mjólk
rifinn börkur af ½ appelsínu
½ tsk, kanill
100 g smjör
1 box jarðarber
1 kvistur mynta (fínt skorin)
2 msk. flórsykur
Blandið saman eggjum, rjóma, mjólk,
appelsínuberki og kanil. Dýfið einni
brauðsneið í einu ofan í blönduna. Hitið
pönnu við meðalhita og setjið smjörið á
pönnuna. Steikið brauðið á hvorri hlið þar
til sneiðarnar eru orðnar gylltar að lit.
Skerið jarðarberin í fernt og setjið í skál
með myntunni. Setjið flórsykurinn í sigti
með litlum götum og dreifið flórsykri
jafnt yfir brauðsneiðarnar.
VANILLUSÝRÐUR RJÓMI
1 dós 36 % sýrður rjómi
1 msk. flórsykur
1 tsk. vanilludropar
Setjið allt hráefnið saman í skál og
blandið saman. Dreifið yfir brauðið.
Eggjabrauð
Eyþórs
Uppskrift fyrir 8
1 stk. eggaldin (gróft skorið)
1 stk. rauð paprika (kjarnhreinsuð og gróft
skorin)
1 stk. laukur (gróft skorin)
2 stk. hvítlauksgeiri (fínt skorin)
4 g oregano
2 g chili-flögur
4 stk. tómatar (skornir)
2 msk. kapers
200 g ólífur
20 g steinselja (gróft skorin)
balsamedik
fínt salt
Hitið pönnu með ólífuolíu og steikið
eggaldin þar til það fer að brúnast.
Bætið papriku, lauk, hvítlauk, oreganó
og chili-flögum út á pönnuna og eldið
saman þar til allt er orðið mjúkt. Bætið
tómötum út á pönnuna ásamt kapers
og ólífum og eldið við vægan hita í 5
minútur.
Smakkið til með balsamediki og salti
og bætið í lokin steinseljunni saman við.
SALTFISKHNAKKAR
1.600 g saltfiskhnakkar
700 ml ólífuolía
200 g hveiti
Skerið saltfiskhnakkana í 200 g steikur
og veltið þeim upp úr hveitinu. Hitið
pönnu með vel af ólífuolíu þar til fer að
rjúka úr henni. Steikið saltfiskinn þar til
hann er gylltur allan hringinn.
Berið fram með steiktum kartöflum,
góðri jómfrúarólífuolíu og klettasalati.
Steiktur saltfiskhnakki
með caponata og jómfrúarólífuolíu
Steiktur humar
með saffran arancini, hvítlaukseggjakremi,
steiktu spínati, sellerí og appelsínu
við vægan hita. Bætið soðinu
svo út í pottinn og sjóðið við
vægan hita þar til grjónin eru
orðin mjúk í gegn. Setjið par-
mesanostinn út í og smakkið
til með saltinu og appelsínu-
safanum. Kælið blönduna og
gerið svo ca 20 g bollur úr öllu
saman.
Veltið bollunum upp úr
hveiti og svo eggjunum og svo
raspinum í lokin. Steikið við
180 gráðu hita í ca 2 mínútur í
djúpsteikingarpotti eða þar til
þær eru orðnar gylltar og fal-
legar á litinn.
HVÍTLAUKSEGGJAKREM
300 g smjör
3 stk. eggjarauður
1 stk. hvítlauksrif (fínt rifið)
sérríedik
salt
Bræðið smjörið í potti. Setjið
eggjarauðurnar í skál og þeyt-
ið yfir heitu vatnsbaði þar til
þær eru léttar og ljósar. Hellið
smjörinu saman við í mjórri
bunu og þeytið vel í á meðan.
Bætið fínt rifna hvítlauknum
út í og smakkið til með edik-
inu og saltinu og piparnum.
STEIKTUR HUMAR
24 pillaðir humarhalar
2 msk. smjör
sjávarsalt
½ sítróna
olífuolía til steikingar
Hitið pönnu með ólífuolíu þar
til fer að rjúka úr henni. Setjið
humarinn á pönnuna og steik-
ið hann þar til hann er orðinn
gylltur og snúið honum svo
við og bætið smjörinu út á
pönnuna steikið humarinn í ca
2 mínútur í viðbót. Takið
humarinn af pönnunni og
kryddið með saltinu og kreist-
ið sítrónusafann yfir hann.
STEIKT FENNELSELLERÍ –
SPÍNAT OG APPELSÍNA
150 g sellerí (fínt skorið)
150 g fennel (fínt skorið)
1 stk. appelsína
1 poki spínat
1 msk. smjör
sjávarsalt
fínt rifinn hvítlaukur
ólífuolía til steikingar
Skerið börkinn utan af appels-
ínunni og skerið laufin innan
úr henni og skerið í litla bita.
Hitið pott með olífuolíu og
smjöri. Setjið selleríið og
fennelið ofan í ásamt hvít-
lauknum og eldið við hálfan
straum í ca 3 mínútur. Bætið
appelsínunni og spínatinu út í
og eldið í 1 mínútu í viðbót og
smakkið til með saltinu.