Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 19
1.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
„Selfie“ með lunda er toppurinn
Ferðamannastraumurinn liggur ekki á þennan
stað landsins og því ríkir þar friður og ró fyrir þá
sem það kjósa. „Við njótum þeirrar sérstöðu að
vera eins langt frá Keflavík og Reykjavík og
mögulegt er á Íslandi. En auðvitað er hægt að
bæta við og nýta svæðið betur,“ segir hann. Marg-
ir sækja í að mynda þennan sjaldgæfa fugl sem
lundinn er. „Það var hérna um daginn kínverskur
náttúruljósmyndari sem valdi hundrað dýr í heim-
inum til að mynda og eitt af þeim var lundi. Hann
var hérna í nokkra daga. Sumir koma til að taka
myndir af Jökulsárlóninu og aðrir til að taka „sel-
fie“ í Bláa lóninu. En að taka „selfie“ með lunda,
það hlýtur að vera toppurinn,“ segir hann og hlær.
Blaðamaður viðurkennir að það hafi hann einmitt
gert. „Ég meina þú kemst ekkert hærra en það á
Íslandi!“
Fyrir þá sem vilja friðsæld
Arngrímur segir að í firðinum sé mikið og gott
göngusvæði sem sé vel skipulagt en hægt er að
fara í styttri og lengri ferðir. „Íslendingarnir eru
ekki mikið að koma til okkar, ekki miðað við þann
gönguáhuga sem ríkir. Það eru ekkert fleiri að
ganga hér en árið 2000. Þetta er tilbúið svæði til
að taka á móti fleiri ferðamönnum og þau eru
kannski ekkert mjög mörg á Íslandi,“ segir Arn-
grímur en segir alls ekki markmiðið að fylla fjörð-
inn af ferðamönnum. „Við viljum bara fá réttu
gestina með rétta hugarfarið. Þeir sem koma til
Íslands til að njóta friðsældar þurfa að fara að
hreyfa sig lengra frá Reykjavík heldur en var fyrir
tíu árum. Þá er þetta svæði sem er tilbúið,“ segir
hann. „Þetta eru spennandi tímar og við gerum
okkar besta til að taka vel á móti gestunum okkar.
Fagna lundanum á hverju vori. Það er notalegt að
sýna gestunum okkar lundann, sérstaklega kvölds
og morgna í töfrandi birtunni,“ segir hann. Blaða-
maður getur svo vottað að það er afskaplega nota-
legt eftir lundaskoðun að sitja í heitum potti í
tunglsljósi og horfa út á haf.
T
il að komast eins langt og hægt er frá
Reykjavík er tilvalið að skella sér á
Borgarfjörð eystra. Fjörðurinn er fag-
ur en við botn hans lúrir litla þorpið
Bakkagerði. Þar í sveitinni vinna
menn og konur við landbúnað, fiskveiðar og ferða-
mennsku. „Við lifum á náttúrunni eins og lundinn,
segir Arngrímur Viðar Ásgeirsson, eigandi ferða-
þjónustunnar Álfheima.
Lundinn dregur að sér ferðamenn
Arngrímur segir að lundinn og náttúran dragi að
sér ferðamenn sem kjósa fámennið, kyrrð og ró en
ágangur ferðamanna er þar enn lítill. Í kringum
40-50 þúsund ferðamenn koma á ári hverju til að
skoða lundann en aðal ferðatímabilið er frá
miðjum júní fram í miðjan ágúst.
Helmingur lundastofns heimsins verpir á Íslandi,
útskýrir Arngrímur. „Varpið gengur vel hérna fyrir
norðan og austan og er að bæta sig hér ef eitthvað
er. En svo er suðurströndin alveg katastrófa varð-
andi að koma upp ungum því að sandsílið hefur
fært sig vegna hlýnunar sjávar,“ segir hann.
Lundinn trygglyndur fugl
Í Hafnarhólma gerir lundinn sér heimili á sumrin.
Á veturna dvelur hann úti á hafi. „Þeir hafa ekki
vængi til að fljúga til heitu landanna,“ segir hann
en um miðjan apríl koma þeir í land til að verpa.
„Þeir koma heim og græja sumarhúsið sitt. Þeir
hitta sömu konuna þegar þeir koma heim við húsið
sitt og eru mjög tryggir sínum konum,“ segir hann.
Örugg aðstaða til fuglaskoðunar
Byggður var stígur og útsýnispallur uppi á Hafn-
arhólmanum árið 1996. Lundinn er því orðinn
mjög vanur að vera í návist við mannfólkið og leyf-
ir forvitnum ferðalöngum að góna á sig að vild.
„Þetta er mjög örugg og trygg aðstaða sem truflar
fuglinn ekki mjög mikið,“ segir Arngrímur en á
hólmanum má nú finna lítinn kofa þar sem fugla-
skoðaðar geta haldið til. Gott er að mynda lundann af útsýnispalli efst á hólmanum.
Búið er að smíða stíga og lítinn kofa til fuglaskoðunar í Hafnarhólmanum þar sem lundinn verpir.
Morgunblaðið/Ásdís
Lundanum fagnað
Á Borgarfirði eystra ríkir kyrrð og ró. Þar búa rúmlega 100 manns og tugþús-
undir lunda í sátt og samlyndi. Í hólma við höfnina verpir lundinn og kippir
sér ekki upp við ferðamenn með myndavélar. Á bilinu 40 til 50 þúsund ferða-
menn koma ár hvert á staðinn í þeim tilgangi að skoða og mynda lunda.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is