Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 32
(38-42 gráðu heitt) og fara síðan í kalt
vatn í 10-30 sekúndur (15-20 gráðu
heitt) og gera þetta í þrígang.
Þakkaði víxlböðum titilinn
Það var samt sem áður ekki fyrr en
um 2002 að köld böð urðu jafn vinsæl
meðal íþróttafólks og almennings og
raun ber vitni. Það var þegar Paula
Radcliffe, breska maraþon-
hlaupadrottningin, þakkaði köldu
böðunum árangur sinn og sagði að
þau hjálpuðu sér að komast fyrr af
stað aftur. Síðan þá hafa vinsældir
köldu baðanna aukist jafnt og þétt
meðal íþróttafólks.
Vöðvarnir fljótari
að jafna sig
Víxlböð eru talin hjálpa íþróttfólki að
ná sér fyrr eftir æfingar og leiki, þeg-
ar álagið er mikið á líkamann. Bjarni
Páll Runólfsson, leikmaður í meist-
araflokki Víkings í knattspyrnu, segir
í samtali að leikmenn í meist-
araflokknum stundi að fara í víxlböð.
„Við förum í 2 mínútur í heitan pott
og svo 2 mínútur í kaldan pott. Þetta
hjálpar okkur eftir erfiðar æfingar
því vöðvarnir verða mun fljótari að
jafna sig við þetta, víxlböðin draga
líka úr verkjum. Reyndar eru öll
helstu knattspyrnulið erlendis komin
lengra á veg með þessa meðferð en
við, þau hafa sérstaka klefa, Ice
Chamber svokallaða, þar sem hita-
stigið fer verulega niður,“ segir
Bjarni. Hann segir að það fari eftir al-
varleika meiðsla leikmanna hversu
mikill kuldinn sé.
„Til dæmis fer Jamie Vardy, leik-
maður knattspyrnuliðsins Leicester, í
kæliherbergi sem er -135 gráður,“
segir Bjarni og segir að í slíkum of-
urkæliklefum sé notað fljótandi köfn-
unarefni sem gefur þetta lága hita-
stig. Hér á landi gangi
knattspyrnumenn þó ekki alveg
svona langt í kælingu. „Við förum eft-
ir erfiðar æfingar og svo daginn eftir
leiki en það er þó persónubundið hvað
menn gera og fer eftir því hvað vöðv-
arnir eru stífir. Við getum farið dag-
lega en það eru ekki allir sem kjósa
það,“ segir Bjarni. Hann tekur fram
að það séu samt sem áður ekki allir
leikmenn sem vilji fara í köldu böðin.
Fólki líður almennt betur
Sigurður B. Jónsson, yfirsjúkranudd-
ari hjá NLFÍ í Hveragerði, segir að
bæði kaldar bunur og víxlböð sem
hafi verið lengi í boði hjá heilsuhæl-
inu, sé mjög vinsælt og hafi almennt
góð áhrif á líðan fólks. „Fólk fær
kalda bunu á fæturna hjá okkur, bæði
að framan og aftan. Kalda vatnið ger-
ir það að verkum að æðarnar dragast
saman við áreitið á húðina og fólki líð-
ur vel að fá kalt vatn á sig eftir lík-
amlegt álag, hlaup og erfiðar æfingar.
Þetta hentar vel þeim sem mega ekki
vera í hita,“ segir Sigurður. Hann
segir að víxlböðin séu einnig í boði hjá
NLFÍ en á öðrum stað. „Kalda bunan
er á fingurbreidd og fær fólk vatnið á
sig upp að hnjám. Fólk vaknar eld-
snemma til að fara í kalda bunu, það
segir sitt um áhrifin. Kalda bunan
hressir fólk og margir segjast finna
mikinn mun á sér. Fólki líður al-
mennt betur, þetta er gott ráð við fó-
tapirringi og hefur í raun áhrif á lík-
amlega líðan almennt,“ segir
Sigurður.
Þeir sem vilja stunda köld böð og
eru með of háan blóðþrýsting ættu að
ráðfæra sig við lækni áður en farið er
af stað. Fólk með kuldaofnæmi, æða-
kölkun og fólk sem er að stíga upp úr
veikindum ætti einnig að ráðfæra sig
við lækni. Eins þeir sem hafa ray-
nauds-sjúkdóminn og veikburða fólk.
isfræðinnar en hann var uppi á 5. öld
f.Kr. Hippókretes mun bæði hafa not-
að víxlböð og heita og kalda bakstra
við störf sín. Það var síðan um 1890
þegar rússneskur prófessor í New
York-ríki að nafni Louis Sugarman
dýfði sér reglulega í kalt vatn við æf-
ingar sínar að vakin var almenn at-
hygli á athæfinu. Sugarman fékk
fljótt viðurnefnið „The human polar
bear“. Skömmu síðar hóf þýskur pró-
fessor að nafni Sebastian Kneipp
(1821-1897) að nota köld böð í heima-
landi sínu Þýskalandi. Hann prófaði
köld böð fyrst á sjálfum sér en
Kneipp var berklaveikur.
Hann var frumkvöðull í heilsuefl-
ingu og gaf út bókina My water cure
1886 sem varð metsölubók þess tíma.
Sagan segir að Kneipp hefði læknað
sig af berklum með köldum böðun.
Enn í dag eru Kneipp-böðin stunduð
á heilsustofnunum, þau breiddust út
um allt Þýskaland og víðar en komu
seint til Norðurlandanna. Böðin eiga
að gagnast við ýmsum kvillum og er
vísindalega staðfest að víxlböðin hafi
jákvæð áhrif á heilsu og líðan fólks.
Víxlböð hafa áhrif á hjarta og æða-
kerfi, fótaóeirð sem getur stafað af
vandamálum í hjarta og æðakerfi, há-
an blóðþrýsting, svefnvandamál,
bólgur og verki. Auk þess eiga víxl-
böðin að auka efnaskipti. Kalda vatn-
ið hefur áhrif á ósjálfráða taugakerfið
sem stýrir hjartslætti og öndun, og
örvar hann. Við köld böð herpast æð-
arnar saman en víkka við að fara í
heit böð. Með því að stunda víxlböð
og lengja tímann í heitu og köldu
vatni er hægt að styrkja hjarta og
æðakerfið, skv. því sem kemur fram á
heimasíðu NLFÍ. Gott er að byrja á
að fara í 3-6 mínútur í heitt fótabað
Undanfarið hafa kaldir pottarverið vinsælir í sundlaugumReykjavíkur en þeir eru á
þremur stöðum, í Laugardalslaug,
Grafarvogslaug og í Vesturbæj-
arlaug. Kaldir pottar eru einnig við
sundlaugar víða um landið og má
nefna staði eins og Selfoss, Stykk-
ishólm og Akureyri.
Köldu pottarnir eru notaðir einir
sér eða í víxlböðum þar sem fólk fer
til skiptis í heitan pott og kaldan.
Hitastig köldu pottanna í Reykjavík
er yfirleitt um 4-8 gráður oig eru þeir
allir með hreinsibúnaði samkvæmt
kröfu Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ur. Segja má að þessi nýjung í sund-
laugum Reykjavíkur hafi tekið við af
heitu pottunum en allir sem geta farið
í heitu pottana geta líka notað köldu
pottana að sögn Hafliða Halldórs-
sonar, forstöðumanns Vesturbæj-
arsundlaugar. „Það er mikil eft-
irspurn eftir að komast í köldu
pottana. Eldra fólkið notar þá eins og
víxlböð en margir sem hafa verið í
Hveragerði á heilsuhælinu þar koma
hingað og fara til skiptis í heita pott-
inn og þann kalda. Fólk gengur í
kalda pottinum einn hring en sest
ekki niður. Þetta er gert til að fá blóð-
rásina af stað í fótumum,“ segir Haf-
liði. Hann segir að íþróttafólk noti
köldu pottana einnig mikið.
Í Vesturbæjarlauginni var tekinn
gamall barnapottur og sett í hann
kalt vatn, tilkostnaðurinn var því
sama og enginn. Potturinn þar er
raunar ögn heitari en hinir köldu
pottarnir eða um 8-12 gráðu heitur.
Ævaforn aðferð
Saga kaldra baða nær aftur til Hippó-
kretasar sem er kallaður faðir lækn-
Heitir pottar duga landanum ekki lengur einir og sér. Nú vill fólk fara helst í kaldan og heita pott til skiptis.
Morgunblaðið/Eggert
Vakna eld-
snemma til að
fara í kalda bunu
Kaldir pottar njóta vaxandi vinsælda hjá lands-
mönnum en þeir eru nú staðsettir víða á
höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Margir fara í
víxlböð og fara þá til skiptis í heitt og kalt vatn.
Íþróttafólk stundar víxlböð til að vera fljótara
að jafna sig eftir erfiðar æfingar.
Ragnheiður Linnet ragnheidur.linnet@gmail.com
Paula Radcliffe er einn besti lang-
hlaupari heims og á heimsmet í mara-
þonhlaupi. Hún baðar sig í heitu og
köldu vatni til skiptis.
REUTERS
HEILSA Ávaxta- og grænmetishristingar og nýkreistur safi er ágætur valkostur til að neyta þeirra enbetra er að borða matinn eins og hann kemur beint af jörðinni. Í ávöxtum eru ein- og tví-sykrur. Þegar ávextir og grænmeti eru maukuð í drykki fer sykurinn hraðar í líkama okkar og
við verðum ekki eins lengi södd og þegar við borðum matinn ómaukaðan.
Saddari með mat en mauki
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016
Veldu upplifun fram yfir kaup á hlutum. Þetta er mat
vísindamanna um þætti sem eiga þátt í að gera okkur
hamingjusöm. Sálfræðingar hafa komist að þeirri
niðurstöðu að hlutir sem við fjárfestum í veita okkur
ánægju í um 6-8 vikur en eftir það hverfur ánægjan.
Hins vegar er líftími upplifunar mun lengri og oft
tengd minningum lengi á eftir. Rannsóknir hafa sýnt
að áhrifin ná til þeirra sem eru í kringum okkur líka.
Við erum oft með vinum en félagssleg tengsl eru einn
af grunnþáttum góðrar heilsu. Við finnum líka aukinn
lífskraft við upplifun. Að iðka eða hlusta á fallega tón-
list hefur þau áhrif á fólk að gleðihormónið endorfín
losnar út í líkamann en það veitir okkur vellíðan. Slíkt
getur líka gerst við hreyfingu. Þegar við verjum tíma í
upplifun þá erum við ekki að bera okkur saman við
aðra eins og við gerum gjarnan þegar hlutir eru
keyptir. Auk þess getur upplifun verið ókeypis sem
dauðir hlutir eru ekki og upplifun skilur eitthvað eftir
sig og gefur þannig til baka. Því má segja að öll rök
hnígi að því að upplifun borgi sig.Vellíðan sem kemur í framhaldi af upplifun endist lengi.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
ÁNÆGJA MEIRI AF UPPLIFUN EN INNKAUPUM
Upplifun er góð fyrir heilsuna