Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016 Það glittir í Þórðargleðina hjá sumum frjáls- hyggjumönnum yfir hnign- un Venesúela. Á Facebook eru hnyttin „mím“ á ferð- inni þar sem Venesúela er niðurlag brandarans. Er ekki að furða að frjálshyggjumenn stökkvi á Venesúela, enda virðist landið vera nýjasta dæmið um þær ófarir sem sósía- lismi getur haft í för með sér og hægt að vísa til ástandsins í Karakas í rök- ræðum við fylgismenn Bernie Sanders eða Je- remy Corbyn. Það var ekki jafn auðvelt að gera grín að Venesúela fyrir þremur árum eða svo. Árið 2013 birtist grein í vinstrisinnaða vefritinu Salon þar sem „efnahagsundur“ Hugo Chavez var lofsamað. Fyrstu tíu árin sem Chavez var við völd hafði landsframleiðsla tvöfaldast, ungbarnadauði minnkað um helming, fátækum fækkað og allt virt- ist á réttri leið. Tíminn leiddi þó í ljós að það sem bar hagsældina uppi var ekki stórnsnilli Chavez og félaga. Annars vegar reyndust framfarirnar í Venesúela svipaðar og í öðrum löndum álfunnar. Hins vegar skemmdi ekki fyrir að verð á olíu rauk upp, en í gegnum þjóðnýt- ingu og háa skatta fær rík- issjóður til sín bróðurpart- inn af olíutekjunum. Stjórnmálafræðingurinn Juan Carlos Hidalgo hjá Cato stofnuninni reiknaði út að á einum og hálfum áratug hefðu tekjur rík- isstjórnar Venesúela af ol- íuauðlindinni numið 1.000 milljörðum dala. Reiknað á verðlagi dagsins í dag væri það á við 11 Marshall- áætlanir. Olían hélt Venesúela á floti, en jafnvel áður en ol- íuverð hrundi voru brestir komnir í ljós, og árið 2014 var 17% halli á fjárlögum. Um mitt árið 2014 hríðlækkaði verð á olíu og lífið í Venesúela snarversnaði. Í viðleitni sinni til að laga vandann virðast stjórnvöld hafa gert öll þau mistök sem hægt er að gera, með enn meiri höftum og enn meiri miðstýringu sem aukið hefur enn meira á skortinn. Verðbólgan mælist núna 720% og á stærsti peningaseðill landsins ekki að duga fyrir einni sígar- ettu. Það er til gamall brandari eitt-hvað á þessa leið: hvað notaðijafnaðarmaðurinn á undan kertum. Svarið: Ljósaperur. Brandarinn virðist núna orðinn að veruleika í Venesúela. Bólívarska byltingin svokallaða, sem Hugo heit- inn Chavez var höfundurinn að, hef- ur kallað mikinn skort yfir þjóðina og virðist núna vera að versna til muna. Lýsingarnar á aðstæðum íbúa landsins eru átakanlegar. Brand- arinn er ekki lengur fyndinn þegar skrúfað er fyrir rafmagnið og lyfja- skápar spítalanna eru tómir. Stytting vinnuvikunnar Í vikunni gaf forseti landsins, sósía- listinn Nicolás Maduro, út tilskipun þess efnis að vinnuvika opinberra starfsmanna yrði stytt niður í tvo daga. Er þetta liður í viðbrögðum ríkisins við miklum rafmagnsskorti. Maduro segir ekki við ríkisstjórn- ina að sakast þó rafmagn og vatn skorti. Nú gengur veðrafyrirbrigðið El Niño yfir og geisa miklir þurrkar í landinu. Er svo komið að vatns- magnið er í algjöru lágmarki í Guri uppistöðulóninu sem alla jafna full- nægir um 60% af rafmagnsþörf landsins. Andstæðingar Maduro kenna ófullnægjandi áætlanagerð Maduro og forvera hans, Chavez, um þá stöðu sem upp er komin. Stjórnvöld þjóðnýttu alla rafmagnsframleiðslu í landinu árið 2007 og hefur fjárfest- ingu og viðhaldi verið mjög ábóta- vant síðan þá, að sögn Financial Times. Vatn og rafmagn er skammtað og þarf fólk að láta sér nægja kertaljós þegar sólin er sest. Hitinn er brak- andi en loftkælingin gerir lítið gagn. Sjónvarpsstöðvarnar senda út fræðsluefni þar sem fólki er kennt að vaska upp með einum bolla af vatni. Þetta bætist við tómar hillur verslana og langar biðraðir eftir nauðþurftum. Mótmæli og gripdeildir Af fréttum má ætla að samfélagið sé komið að þolmörkum. Í borgunum var efnt til mótmæla í vikunni og á sumum stöðum fór múgurinn ráns- hendi um búðir og kveikti í bílum. Langar raðir mynduðust þar sem stjórnarandstaðan safnaði undir- skriftum gegn Maduro. Wall Street Journal segir þurfa 200.000 undir- skriftir í fyrstu lotu, og síðan 4 millj- ónir undirskrifta til viðbótar til að knýja fram nýjar kosningar. Ekkert fararsnið er samt á Mad- uro sem gefur lítið fyrir undir- skriftasöfnunina. „Byltingin mun halda áfram, og mun hafa þennan forseta til 2018,“ segir hann. Þurrkar og rafmagnsleysi auka á eymd íbúa Vene- súela. Andstæðingar Maduro safna undirskriftum til að knýja fram kosningu en forsetinn situr sem fastast AFP Ofan á mikinn vöruskort þurfa íbúar Venesúela núna að þola að rafmagn og vatn er skammtað. Ljósin slökkt hjá Bólívörsku byltingunni Grín gert að vinstrinu á Facebook ’ Mér finnst konur snotrari þegar þær kemba hárið með fingrunum og leyfa því að þorna á náttúrulegan hátt.“ Nicolás Maduro í ávarpi þar sem hann m.a. bað konur að nota ekki hárblásara til að spara rafmagn. ERLENT ÁSGEIR INGVARSSON ai@mbl.is NORÐUR-KÓREA Stjórnvöld í Norður- Kóreu gerðu tilraun með að skjóta tveimur meðaldrægum skot- flaugum á loft.Talið er að um sé að ræða svokallaðar Musdan eldflaugar með um 3.000 km drægi sem nota mætti til árása á skotmörk í Japan og Guam.Tilraunin misheppnaðist þó og eiga flaugarnar að hafa fallið til jarðar skömmu eftir flugtak. BANDARÍKIN Hillary Clinton og Donald Trump sigruðu í forkosningum sem fram fóru í fimm ríkjum Bandaríkjanna á þriðjudag. Trump vann í öllum ríkjunum fimm í forkjöri repúblíkana en Hillary tapaði einu ríkinu til Bernie Sanders.Trump er nú með 994 kjörmenn, 572 eftir í pottinum og þarf 1.237 til að tryggja sér tilnefningu. Hillary er með 2.165 fulltrúa, 1.243 í pottinum og þarf 2.383 til að verða næsta forsetaefni Demókrataflokksins. EVRÓPA Barack Obama fór í sína síðustu opinberu heimsókn til Evrópu. Í ferðinni lofaði hann m.a. að senda 250 manna viðbótarherlið til Sýrlands. Hann tjáði sig líka um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu Breta um útgöngu úr ESB og styggði útgöngusinna þegar hann sagði að Bretland myndi þurfa að fara „aftast í röðina“ ef ætti að gera sjálfstæðan fríverslunarsamning á milli landanna. BRETLAND Kviðdómur í Bretlandi komst að þeirri niðurstöðu að Hillsborough- slysið hefði borið að með saknæmum hætti og lögreglan gerst sek um grófa vanrækslu. Árið 2014 hófst ný réttarrannsókn á slysinu sem varð árið 1989 en þar létust 96 stuðningsmenn Liverpool þegar mikill troðningur varð á Hillsborough- leikvanginum í Sheffield í leik á móti Nottingham Forest.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.