Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Síða 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016 LESBÓK Smásögur heimsins: Norður-Ameríka heitir smásagnasafnsem kom út í vikunni, en í því er að finna smásögur eftir nokkra helstu meistara þessara listar vest- an hafs á síðustu hundrað árum. Þetta er fyrsta bindið í fimm binda ritröð sem á spanna allan heiminn, en í þessu fyrsta bindi eru sögur eftir Sherwood Anderson, Er- nest Hemingway, William Faulkner, Ralph Ellison, Philip Roth, Flan- nery O’Connor, Raymond Carver, Susan Sontag, Amy Tan, Joyce Ca- rol Oates, Sherman Alexie, Jhumpa Lahiri og Alice Munro. Ritnefnd raðarinnar skipa Rúnar Helgi Vignisson, Kristin Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, en þýðendur sagnanna eru Ágúst Borgþór Sverrisson, Árni Ósk- arsson, Ástráður Eysteinsson, Guð- rún Inga Ragnarsdóttir, Jón Karl Helgason, Rúnar Helgi Vignisson og Silja Aðalsteinsdóttir. Vonast eftir að fá að gera sjötta bindið Eins og fram kom er hér hafin fimm binda ritröð og Rúnar Helgi segir að næst á dagskrá sé Rómanska- Ameríka, sem búið sé að velja efni í að mestu leyti, síðan komi Evrópa, þá Asía og Eyjaálfa saman og loks Afríka. „Við sjáum fyrir okkur fimm bindi, en vonumst reyndar eftir því að fá að gera sjötta bindið, sem myndi þá geyma sígildar sögur, en við ákváðum að fara ekki lengra aft- ur en um hundrað ár og slepptum því Tjekov og Gogol, Maupassant og fleirum sem gaman hefði verið að hafa með. Við sjáum hvað setur með það, ég held að útgefandanum hafi þótt nóg að hafa bindin fimm, en það fer náttúrlega eftir því hve vel geng- ur að selja bækurnar.“ Rúnar segir að Norður-Ameríka hafi orðið fyrir valinu sem fyrsta bindi útgáfunnar þar sem það hafi verið lengst komið og því auðveld- ara að byrja þar. Í bókinni eru ein- mitt margir fremstu smásagnahöf- undar seinni tíma, eða í það minnsta þeir sem þekktastir eru á Vest- urlöndum og þar með talið hér á landi, „og svo er Norður-Ameríka helsta varpland smásögunnar og gríðarlega mikið skrifað af smásög- um þar og hefur verið í langan tíma. Síðan þegar fara að koma bindi frá öðrum heimsálfum þá fara að sjást höfundanöfn sem færri kannast við.“ Tuttugu ára aðdragandi Verkið á sér langan aðdraganda að sögn Rúnars og í raun má segja að hann hafi verið að vinna að því í hátt í tuttugu ár. „Það hófst með því að ég var beðinn að kenna námskeið í almennri bókmenntafræði sem hét smásagnafræði og uppúr því fékk ég þessa hugmynd. Ég hef svo kennt nokkur námskeið í smásagnafræði síðan og svo önnur sem tengjast sér- staklega umfangsmikilli leit að smá- sögum víða að úr heiminum. Ég hef líka tvívegis verið með sumarstarfs- menn sem hafa unnið við það ein- göngu að leita að smásögum og ég held það sé búið að kemba Þjóð- arbókhlöðuna að miklu leyti og meira en það náttúrlega. Það er leit- að eftir ýmsum leiðum og ég fór meira að segja í heilmikla ferð til Asíu í fyrra, fór á bókmenntaráð- stefnu, hitti fullt af fólki víða að úr Asíu og fékk þetta beint í æð, en með því að leita beint til landanna girðum við fyrir það að við veljum sögurnar eingöngu út frá okkar vestræna sjónarhorni,“ segir Rúnar og bætir því við hvað varðar vinnu við útgáfuna að eftir að þau Kristín og Jón Karl hafi slegist í hópinn fyr- ir um það bil tveimur árum hafi verkefnið farið á flug. „Þau hafa haft mikið um það að segja að þetta er komið út, enda eru þau bæði frá- bærir þýðendur og góðir ritstjórar. Við skiptumst líka á að vera aðalrit- stjórar. Ég er með Norður- Ameríku, Kristín verður með Róm- önsku-Ameríku og Jón Karl Evr- ópu, svo dæmi séu tekin.“ Ekki vandamál að finna sögur - Það gefur augaleið að tiltölulega hægur leikur hefur verið að finna þýðendur til að snara sögunum úr ensku og eins er væntanlega til- tölulega lítið mál að snara sögum frá Heimurinn birtist í smásögum Í nýrri ritröð munu birtast smásögur frá öllum heimshornum, en fyrirhugað er að bókaröðin Smásögur heimsins birti sögur frá Norður-Ameríku, Róm- önsku-Ameríku, Evrópu, þá Asíu, Eyjaálfu og Afríku. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Benedikt Jóhannsson sendi á dögunum frá sér ljóðabókina Á leiðinni sem hann gefur sjálfur út, en í ljóðunum styðst hann við ljóðstafi og rím. Þetta er önnur ljóðabók Benedikts, en bókin Á sléttunni kom út fyrir stuttu og hafði að geyma minningabrot frá bænum Stóru-Sandvík í Sandvíkurhreppi sem var. Benedikt hefur einnig skrifað nokkrar bækur og fjölda greina í fagi sínu, sálfræði, og á stund- um skreytt skrif sín með ljóðum. Óttar Guðmundsson geðlæknir hefur skoðað Ís- lendingasögurnar og Sturlungu í óvenjulegu ljósi - í metsölubókinni Hetjur og hugarvíl, sem kom út 2012, velti hann fyrir sér hvernig geð- sjúkdómar og persónuleikaraskanir birtast í sögunum. Í nýrri bók, Frygð og fornar hetjur, fjallar hann um kynlíf og ástir á söguöld, skoðar sög- urnar með augum geðlæknis, túlkar og les milli línanna. Frygð og fornar hetjur Hælið heitir ný skáldsaga eftir sænska rithöf- undinn Johan Theorin. Í bókinni segir frá því er ungur maður heldur til bæjar á vesturströnd Svíþjóðar til að taka að sér afleysingastarf í Rjóðrinu, leikskóla sem stendur við múra Sankta Patrícíu-öryggishælisins þar sem alvar- lega geðtruflað og hættulegt fólk er nauðung- arvistað, en börn fanganna eru í Rjóðrinu til þess að þau geti haldið tengslum við innilokaða foreldra sína. Elín Guðmundsdóttir þýddi. Hæli Johans Theorins Franski spennusagnahöfundurinn Pierre Lema- itre vakti athygli hér á landi á síðasta ári fyrir skáldsöguna Alex sem var lengi á metsölulista á síðasta ári. Nú er komin önnur bókin í þrí- leiknum um lögregluforingjann Camille Verhæ- ven, Iréne. Í bókinni segir frá eltingaleik Verhæven við þaulskipulagðan og kaldrifjaðan raðmorðingja sem beinir sjónum að einkalífi Verhævens og barnshafandi eiginkonu hans, Iréne. Friðrik Rafnsson þýddi. Önnur bók um Verhæven Palestínski rithöfundurinn Rabai al-Madhoun hlaut arabíska Booker- inn, sem svo er kallað, fyrir skáld- sögu sína Örlög: Hljómkviða hel- fararinnar og hörmunganna. Verðlaunin, sem veitt eru bestu skádsögu ársins sem rituð er á arabísku, voru veitt í Abu Dhabi á fimmtudag. Í bókinni segir frá örlögum land- flótta Palestínumanna. Rabai al- Madhoun fæddist á verndarsvæði Breta í Palestínu en hrakist þaðan með fjölskyldu sinni til Gaza- strandarinnar í átökunum vegna stofnunar Ísraels 1948. Þau átök kalla Palestínumenn hörmung- arnar, eða „nakba“, eins og vísað er til í heiti bókarinnar. Madoun er breskur þegn í dag og starfar sem blaðamaður. Verðlaununum var komið á 2008 og eru veitt í samvinnu Booker- verðlaunanna bresku og Samein- uðu arabísku furstadæmanna. Þau hafa verið umdeild og var Verð- launabók síðasta árs bönnuð í Sam- einuðu arabísku furstadæmunum. Palestínski rithöfundurinn og blaðaðmaðurinn Rabai al-Madhoun hefur skrifað bækur um hlutskipti landflótta Palestínumanna. Morgunblaðið/AFP Helför og hörmungar ARABÍSKUR BOOKER Ljóðabókin Á leiðinni Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.flugrutan.is • www.re.is BSÍ - Umferðarmiðstöðin Reykjavík Keflavíkurflugvöllur Kauptu miða núna á www.flugrutan.is *Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 4.000 kr. 2.200 kr.* FYRIR AÐEINS Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Umhverfisvænt VIÐ SKUTLUM ÞÉR! Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur & brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.