Morgunblaðið - 04.05.2016, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. M A Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 103. tölublað 104. árgangur
MAN EKKI EFTIR
ÖÐRU EINS
ÆVINTÝRI
RÝNT Í HÖF-
UNDARÉTT Í
DANSSKÖPUN
HEILSUPASSI
FYRIR FÓLK MEÐ
ÞROSKAHÖMLUN
DANSFLOKKURINN 38 HEILSANMIN.INFO 12SIGUR LEICESTER ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Mýrdalshreppur Sveitarstjórnin hefur
lokað á skammtímaleigu húsnæðis.
Sveitarstjórnin í Mýrdalshreppi
hefur ákveðið að banna alla
skammtímalegu húsnæðis innan
sveitarfélagsins.
„Við viljum njóta þess sem ferða-
þjónustan skilar til uppbyggingar
og eflingar samfélagsins,“ segir Ás-
geir Magnússon sveitarstjóri, „en
viljum líka búa hér í venjulegu,
hefðbundnu samfélagi, þar sem íbú-
arnir stunda vinnu á staðnum og
greiða sína skatta og skyldur. Það
gagnast okkur lítið ef enginn býr í
húsunum hér og aðeins eru greidd
af þeim fasteignagjöld.“
Í Vík og nágrenni búa 540 manns
en gistirými á staðnum eru um
1.300. Hlutfallið er hvergi hærra
hér á landi. »2
Skammtímaleiga
húsnæðis bönnuð
í Mýrdalshreppi
Kannabis
» WHO áætlar að 182 milljónir
manna neyti kannabisefna.
» Árið 2014 leituðu 589 kanna-
bisfíklar á Vog.
» 95% kannabisfíkla á Vogi eru
með vímuefnafíkn á hástigi.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Kannabisneysla Íslendinga er meðal
þess mesta sem þekkist í heiminum
samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar,
WHO, þar sem segir að yfir 8%
landsmanna neyti efnisins. Þórarinn
Tyrfingsson, forstjóri sjúkrahússins
Vogs, segir að taka eigi slíkum al-
þjóðasamanburði með fyrirvara.
„Þetta segir okkur þó það að við er-
um vel á pari við aðrar þjóðir í
kannabisneyslu,“ segir Þórarinn.
„Einu opinberu gögnin sem við
erum með eru tölur um þá sem leita
sér aðstoðar,“ segir Arnar Jan Jóns-
son, læknir og einn forsvarsmanna
Fræðslufélags fagfólks um kanna-
bisneyslu, hóps fagfólks, sem nú
hefur opnað kannabis.is sem er upp-
lýsingasíða um áhrif kannabisefna.
Nýjustu tölur frá SÁÁ, sem eru
frá árinu 2014, sýna að þeim sem
þangað fara í meðferð við kannabis-
fíkn hefur fjölgað umtalsvert undan-
farin 20-30 ár. Árið 1991 voru kann-
abisfíklar 16% sjúklinga á Vogi en
hlutfall þeirra var rúmlega tvöfalt
hærra, 33%, árið 2014.
Kannabisneysla sögð mikil
Í skýrslu WHO segir að yfir 8% Íslendinga neyti kannabisefna Vel á pari við
aðrar þjóðir, segir Þórarinn Tyrfingsson Þriðjungur á Vogi er með kannabisfíkn
MMeðal mestu kannabisþjóða? »10
Morgunblaðið/RAX
Þingvellir Til stendur að rukka
sólarhringsgjald á bílastæðum.
Óánægja er meðal ferðaþjónustu-
fyrirtækja með fyrirkomulag gjald-
töku á bílastæðum og salernum á
Þingvöllum.
Til stóð að hefja gjaldtöku á bíla-
stæðunum síðasta haust en því var
frestað til 1. maí sl. Aftur var þessu
frestað og nú til 16. maí. Rukka á eitt
sólarhringsgjald fyrir hvert öku-
tæki, óháð því hve lengi gestir þjóð-
garðsins staldra við, og mishátt eftir
stærð ökutækisins. Þannig er gjaldið
500 krónur fyrir einkabíl, 750 krónur
fyrir ferðamannajeppa, 1.500 krónur
fyrir litlar rútur og 3.000 krónur
fyrir stórar rútur. Þórir Garðarsson
hjá rútufyrirtækinu Gray Line segir
ferðaþjónustufyrirtæki telja það
andstætt hugmyndum um álagsstýr-
ingu að hafa aðeins möguleika á
sólarhringsgjaldi á Þingvöllum. Öll
önnur bílastæðakerfi sem hann
þekki til séu byggð á tímamælingu,
enda sé gjaldtaka á bílastæðum víð-
ast hvar hugsuð til að dreifa álagi.
Viðræður hafa átt sér stað á milli
ferðaþjónustufyrirtækja og þjóð-
garðsvarðar um fyrirkomulag gjald-
töku á Þingvöllum án þess að niður-
staða hafi fengist. »4
Óánægja með gjaldtöku
Gjaldtöku á bílastæðum á Þingvöllum hefur verið frestað
Þegar kemur fram í maí verður bragurinn í skól-
um landsins gjarnan léttari en endranær, enda
er þá bryddað upp á ýmsu sem er utan hefðbund-
innar dagskrár.
Krakkarnir í Langholtsskóla í Reykjavík fóru
í vikunni í gönguferð um Laugardalinn, sem er
gróskumikil útivistarparadís sem grænn litur
færist nú yfir. Þessa dagana er frekar milt í
veðri sunnanlands og fyrir vikið dafnar allt og
grær. Á sama tíma hafa Norðlendingar hins veg-
ar vaknað upp við fannhvíta jörð á morgnana.
Misskipt er mannanna láni.
Í gönguferð um grænan Laugardalinn
Morgunblaðið/Eggert
Útivist í Langholtsskóla á fallegum vordegi
Þríburar fæð-
ast að meðaltali
hér á landi ann-
að hvert ár.
Ein þríbura-
fæðing var á
Landspítalanum
á tímabilinu frá
janúar til mars í
ár og 16 tvíbura-
fæðingar. Flestir fjölburar sem
fæðast hér á landi koma undir á
náttúrulegan hátt eftir að lögum
um tæknifrjóvganir var breytt árið
2009, en eftir það var aðeins heim-
ilt að setja upp einn fósturvísi í
senn. »4
Einir þríburar
fæðst á árinu
Steingrímur J. Sigfússon, þingmað-
ur VG og fyrrverandi fjármálaráð-
herra, segir það litlu hafa breytt
hvað snertir útgjöld ríkisins að
SpKef skyldi hafa verið stofnaður á
rústum Sparisjóðs Keflavíkur.
Steingrímur rifjaði upp á fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis að í apríl 2010 hefði mönn-
um orðið ljóst að eigið fé Sparisjóðs
Keflavíkur væri uppurið.
„Þannig verður sú viðmiðun til að
það gæti þurft eina 12-13 milljarða,
kannski, til að endurfjármagna
sparisjóðinn. Það er að segja leggja
honum til nægilega mikið nýtt eigið
fé þannig að hann komist yfir viðmið-
unarmörkin. Ég held að það breyti
síðan mjög litlu um endanlega út-
komu ríkisins að sparisjóður SpKef
varð til og rekinn í ellefu mánuði.
Það eru óverulegar fjárhæðir sem
það breytir,“ sagði Steingrímur.
Þingnefndin ræddi um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis um or-
sakir erfiðleika og loks fall sparisjóð-
anna. Við það tilefni sagði Gylfi
Magnússon, fv. viðskiptaráðherra,
að kostnaður ríkisins af SpKef hefði
fyrst og fremst legið í rekstri. »16
Stofnun SpKef hafi
breytt litlu fyrir ríkið