Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI ÞOLENDUR OG GERENDUR KYNFERÐISOFBELDIS PERSÓNULEGA. ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI? Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is GLÆSILEGT KJÓLAÚRVAL STÆRÐIR 36-52 Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Leicester City vann Englandsmeistaratitilinn í fótbolta á mánudagskvöldið. Afrekið verður ef- laust seint leikið eftir, en á síðasta tímabili björg- uðu Refirnir, eins og liðið er kallað, sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni á ævintýralegan hátt. Lík- urnar á að þeir myndu fagna titlinum í maí voru einn á móti 5.000 að mati enskra veðbanka. Flestir Íslendingar eiga sér ensk lið til að halda með. Stærstu aðdáendahóparnir fylgja stórveld- unum Manchester United, Liverpool og Arsenal en minni liðin eiga sér einnig stuðningsmenn hér á landi, þar á meðal Leicester City. Einn þeirra er Guðni Sigurðsson úr Vestmannaeyjum, en hann byrjaði að halda með Leicester fyrir um 40 árum. „Ég hreifst af markmönnum í gamla daga og bæði Gordon Banks og Peter Shilton spiluðu með þessu liði. Þá hef ég alltaf stutt lítilmagnann og valdi því lið til að styðja á skjön við alla aðra.“ Guðni fylgdist að vonum grannt með liðinu í vetur, bjóst ekki við miklu í byrjun en eftir því sem leið á tímabilið lyftist brúnin. „Veturinn hefur liðið hratt. Ég hef alveg verið eins og hinir og haldið að þetta væri að taka einhvern endi en öskubuskuævintýrið hélt alltaf áfram. Þetta er búið að vera eintóm skemmtun. Gunnþór Sigurðsson er grjótharður stuðnings- maður Leicester. „Ég byrjaði að halda með því í kringum 1970. Með fyrstu leikjunum sem voru sýndir í sjónvarpinu hér á landi var leikur með Leicester. Þá voru Frank Worthington og fleiri kallar í liðinu, sem var mjög gott og ég límdist við það.“ Gunnþór og félagar ætla að skella sér í píla- grímsferð á King Power-völlinn í Leicester og sjá leik næsta sumar. „Við erum að fara nokkrir, þessir allra hörðustu,“ segir hann. „Sigur Leicest- er í deildinni er frábær tíðindi fyrir fótboltann. Að lítið lið geti unnið ensku deildina er ótrúlegt afrek. En ég sá að þetta gat gerst þegar Leicester vann Manchester City; leikmenn Leicester kosta sam- tals jafn mikið og gaurinn sem sér um handklæðin hjá City.“ Ljósmynd/Úr einkasafni Hátíð í bæ Jón Ingi, Gunnþór Sigurðsson og barnabarn hans og nafni. Gunn- þór hefur haldið með Leicester síðan 1970. Hann stefnir á að sjá liðið í sumar. Ljósmynd/Sigurður Sigurðsson Vel skreytt Guðni Sigurðsson hengdi upp keppnistreyju Leicester og gekk um vinnuna sína í Nethamri með bláa Leicester-slaufu í tilefni titilsins. Blá sigurhátíð um allan heim  Stuðningsmenn Leicester hér á landi fögnuðu Englandsmeistaratitlinum  Margir samgleðjast  Rótgrónir stuðningsmenn stefna á pílagrímsferð Mæðradagsblóm Menntunarsjóðs Mæðrastyrks- nefndar Reykja- víkur fer í sölu í dag, miðvikudag- inn 4. maí. Mark- mið átaksins er að afla sjóðnum tekna með sölu á Mæðradagsblóm- inu í tengslum við mæðradaginn, 8. maí næstkomandi. Allur ágóði af sölunni rennur í Menntunarsjóð Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur. Sjóðurinn styrkir tekjulágar konur til mennt- unar svo að þær eigi betri möguleika á góðu framtíðarstarfi. Frá stofnun sjóðsins árið 2012 hafa verið veittir um 100 styrkir til um 70 kvenna. Í ár hefur Tulipop hannað fjölnota poka með mynd af Mæðradagsblóm- inu. Myndin er af blóminu sem hann- að var á lyklakippu fyrir átakið í fyrra. Þá hafði Tulipop einnig um- sjón með allri framleiðslu á pok- unum. Eins og í fyrra gefa hönnuðir Tulipop alla vinnu sína við verk- efnið. Pokarnir verða seldir um allt land og er sölutímabilið tvær vikur, frá 4. til 18. maí. Sala á Mæðradags- blóminu hefst í dag Mæðradagsblómið á fjölnota poka Kári Eiríksson listmál- ari er látinn, 81 árs að aldri. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði 1. maí síðastliðinn. Kári fæddist á Þing- eyri í Dýrafirði þann 13. febrúar 1935. For- eldrar hans voru Eirík- ur Þorsteinsson, kaup- félagsstjóri og alþingismaður, og Anna Guðmundsdóttir hús- móðir. Kári stundaði nám í Myndlistar- og hand- íðaskóla Íslands 1953-54, Listahá- skólanum í Kaupmannahöfn 1957, Listaakademíunni í Flórens 1957-59 og í Róm 1960-61. Kári hélt fyrstu einkasýningu sína í Casa di Dante í Flórens 1958 og var fyrsta einkasýning hér heima í Lista- mannaskálanum 1959. Frá þeim tíma hefur hann haldið fjölda- margar stórar einka- sýningar hérlendis og erlendis, en þær um- fangsmestu voru 1973, 1979 og 1986 á Kjar- valsstöðum. Kári vann að ýmsum sérverkefnum erlendis, m.a. stórri veggmynd í aðdraganda Ólympíu- leikanna í Mexíkóborg, en þangað fluttist hann með fjölskylduna 1967- 1968. Margar sýningar Kára hlutu mikla athygli almennings og oftar en ekki seldust sýningarverk hans upp. Fyrrverandi eiginkona Kára er Sigurbjörg Stefánsdóttir, f. 1935, og sonur þeirra er Kári Kárason, f. 1965. Andlát Kári Eiríksson Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Í fundargerð Heilbrigðiseftirlits Kópavogs og Hafnarfjarðar kemur fram að ákveðið hafi verið að fara í „nákvæma skoðun á starfseminni“ í ljósi forsenda í úrskurði úrskurðar- nefndar umhverfis- og auðlindamála sem ógilti ákvörðun eftirlitsins um að senda hundinn Neró ekki til eig- anda síns heldur ráðstafa honum á nýtt heimili. Forsaga málsins er sú að upp komst að Neró var óskráð- ur þegar hann var handsamaður í Kópavogi eftir að hafa sloppið af heimili sínu. Láðst hafði að skrá hundinn þegar eigenda- skipti áttu sér stað innan fjöl- skyldunnar. Eigandi kærði niður- stöðuna um að ráðstafa hundinum til nýrra eigenda til úrskurðarnefndar- innar sem ógilti ákvörðun heil- brigðiseftirlitsins. Í framhaldinu fór Neró á ný til fyrri eiganda. Leita utanaðkomandi ráðgjafar Guðmundur H. Einarsson, fram- kvæmdastjóri eftirlitsins, segir að í ljósi niðurstöðunnar hafi verið tekin ákvörðun um að skoða verklag betur. „Alltaf þegar svona úrskurðir koma þá verðum við að reyna að endurskoða vinnubrögðin hjá okk- ur,“ segir Guðmundur. Hann segir ekki ljóst með hvaða hætti vinnubrögðin verði endurskoð- uð á þessari stundu þar sem einungis séu tvær vikur síðan úrskurðurinn féll og því sé þessi skoðun í ferli eins og sakir standa. „Við munum leita okkur utanað- komandi ráðgjafar þó við vitum ekki á þessari stundu hver muni veita hana,“ segir Guðmundur. Nýjar línur lagðar vegna Neró  Heilbrigðiseftirlitið endurskoðar vinnubrögð vegna úrskurðar um hund Guðmundur H. Einarsson Breyting hefur verið gerð á bygg- ingarreglugerð með það að mark- miði að lækka byggingarkostnað íbúðarhúsnæðis. Með breytingun- um getur lágmarksstærð íbúðar sem er eitt herbergi minnkað veru- lega og orðið um 20 fermetrar fyrir utan sameign. Lágmarksstærð íbúðar með einu svefnherbergi get- ur minnkað samsvarandi. Lágmarksstærð íbúða 20 fermetrar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.