Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar sam-
þykkti á fundi í gærkvöldi að tilkynna
eftirlitsnefnd um fjármál sveitar-
félaga að ekki hefði tekist að semja
við lánardrottna sveitarfélagsins um
skuldaskil. Það var gert þegar fyrir lá
að lífeyrissjóðir sem eiga hluta krafn-
anna voru ekki tilbúnir til að taka þátt
í heildarsamningum um niðurfellingu
hluta af skuldunum.
Stjórnendur bæjarfélagsins hafa
verið í viðræðum við lánardrottna í
átján mánuði. Reykjanesbær og dótt-
urfélög hans skulda rúmlega 40 millj-
arða króna og náðist samkomulag við
meirihluta kröfuhafa um niðurfell-
ingu á rúmlega 6,3 milljarða kr. kröf-
um, gegn því að allir kröfuhafar tækju
þátt. Samflot 11 lífeyrissjóða sem eiga
25% krafnanna var ekki tilbúið til að
ganga inn í þessa samninga. Það lá
fyrir seint í fyrrakvöld og frjálsir
samningar um skuldaskil því ekki í
sjónmáli.
Forystumenn meirihlutans í
bæjarstjórn lögðu þá tillögu fyrir
bæjarstjórn að þessi staða yrði til-
kynnt til eftirlitsnefndar með fjármál-
um sveitarfélaga því með því væri
ljóst að bærinn gæti ekki gert áætlun
um að uppfylla ákvæði sveitar-
stjórnarlaga um að komast niður fyrir
hámarks skuldaviðmið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem
eru í minnihluta, lýstu þeirri skoðun
sinni á fundinum að halda ætti áfram
samningum við kröfuhafa.
Í höndum eftirlitsnefndar
Samþykktin er mildari en tillaga
sem lögð var fram af sama tilefni fyrir
hálfum mánuði en var dregin til baka
til að reyna samninga til þrautar. Þar
var gert ráð fyrir að tilkynna eftirlits-
nefndinni um að bærinn væri kominn
í fjárþröng. Það leiðir að öðru jöfnu til
þess að skipuð er fjárhaldsstjórn sem
hefði æðsta vald í fjármálum sveitar-
félagsins.
Friðjón Einarsson, formaður bæj-
arráðs, sagði eftir fundinn að fram-
haldið væri í höndum eftirlitsnefnd-
arinnar. Hann sagði að bærinn hefði
hagrætt mikið í rekstri og vonaðist til
að fá aðstoð eftirlitsnefndarinnar til
að ljúka samningum við kröfuhafa.
Ekki frjálsir samningar
Pattstaða er í samningum um skuldir Reykjanesbæjar
Leitað til yfirvalda um aðstoð við að ljúka samningum
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhús Reykjanesbær er í fjár-
þröng þrátt fyrir aðhald.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Með þessari samþykkt erum við að
banna útleigu íbúðarhúsnæðis í
skammtímaleigu,“ segir Ásgeir
Magnússon, sveitarstjóri Mýrdals-
hrepps, í samtali við Morgunblaðið.
Sveitarstjórn hefur ákveðið að
verða ekki oftar við beiðnum um að
húsnæði á staðnum verði breytt í
skammtímagististaði.
„Við viljum njóta þess sem ferða-
þjónustan skilar til uppbyggingar
og eflingar samfélagsins,“ sagði Ás-
geir, „en viljum líka búa hér í venju-
legu, hefðbundnu samfélagi, þar
sem íbúarnir stunda vinnu á staðn-
um og greiða sína skatta og
skyldur. Það gagnast okkur lítið ef
enginn býr í húsunum hér og aðeins
eru greidd af þeim fasteignagjöld.“
Vík í Mýrdal er vinsæll viðkomu-
staður ferðamanna, erlendra sem
innlendra. Þar búa um 540 manns
en gistirými á staðnum eru um
1.300. Hvergi á landinu eru jafn-
mörg gistirými miðað við íbúafjölda.
Mest af gistirýminu er á vegum hót-
ela og ferðaþjónustu bænda en
verulega hefur færst í vöxt að ein-
staklingar leigi hús sín út. Einnig
eru dæmi um stórtækir aðilar kaupi
hús í þorpinu til útleigu og standi
fyrir húsbyggingum í sama tilgangi.
Lögum samkvæmt þurfa þeir
sem vilja leigja húsnæði sitt út í
skamman tíma í senn að fá til þess
leyfi hjá sýslumanni. Hann leitar
eftir umsögnum frá byggingarfull-
trúa, heilbrigðiseftirliti og viðkom-
andi sveitarstjórn áður en leyfið er
veitt. „Sveitarstjórnin hér mun
framvegis ekki veita slík leyfi, þann-
ig að þetta tekur gildi strax,“ sagði
Ásgeir.
Þeir sem nú þegar hafa leyfi til
skammtímaleigu í Mýrdalshreppi fá
að hafa þau óbreytt áfram til ársins
2022 verði eftir því leitað.
Banna skammtímaleigu íbúða í Vík
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal Þangað kemur mikill fjöldi ferðamanna allan ársins hring.
„Viljum hafa hér hefðbundið samfélag fólks sem borgar sína skatta og skyldur,“ segir sveitarstjórinn
1.300 gistirými í þorpi þar sem íbúar eru ekki nema 540 Vinsæll viðkomustaður ferðamanna
Alls komu 3.047 tonn af kolmunna
upp úr Beiti NK er skipið landaði á
Seyðisfirði í síðustu viku. Skipið
kom í gær með álíka farm til Seyð-
isfjarðar og er reiknað með að
löndun ljúki árdegis í dag. „Þetta
eru án efa stærstu farmar sem ís-
lenskt fiskiskip hefur komið með að
landi,“ segir á heimasíðu Síldar-
vinnslunnar.
Í janúarmánuði landaði Venus
NS 2.861 tonni og var það þá
stærsti farmur íslensks skips.
Hólmaborgin SU, nú Jón Kjartans-
son, átti metið lengi vel, en skipið
landaði um 2.730 tonnum af norsk-
íslenskri síld um aldamótin.
Íslensku skipin hafa undanfarið
verið að kolmunnaveiðum í fær-
eyskri lögsögu suðaustur af Fær-
eyjum. Algengt er að skipin hafi
fengið 300-500 tonn á sólarhring
eftir að hafa dregið í 15-20 tíma. Á
heimasíðu Síldarvinnslunnar er
haft eftir Tómasi Kárasyni, skip-
stjóra á Beiti, að veiðar hafi gengið
vel að undanförnu og 6–700 tonn
fengist á sólarhring. aij@mbl.is
Metfarmar
Beitis NK
af kolmunna
Yfir 3.000 tonnum
landað úr skipinu
Beitir NK Vel hefur gengið á kol-
munnaveiðum að undanförnu.
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Ásgeir Magnússon segir að
sveitarstjórnin vilji að ásókn í
skammtímaleigu íbúðar-
húsnæðis í sveitarfélögum
landsins verði rædd á vett-
vangi Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Það geti skert
samkeppnisstöðu einstakra
sveitarfélaga ef mikil brögð
séu að því að íbúðarhúsnæði
sé í skammtímaleigu og gefi
ekki af sér hefðbundnar
tekjur.
Vill umræður
VANDAMÁLIÐ ER VÍÐA
Tveir jarðskjálftar hafa orðið við
Bárðarbungu á Vatnajökli síðustu
daga. Á sunnudagskvöld kom þar
skjálfti, 3,4 á Richter, sem átti upp-
tök sín við norðurjaðar öskjunnar. Í
gærmorgun kom annar skjálfti sem
var 3,3 að styrk.
„Það er stöðug skjálftavirkni í
Bárðarbungu. Þessir tveir síðustu
kippir eru þó ekkert til að hafa
áhyggjur af,“ sagði Sigurdís Björk
Jónasdóttir, sérfræðingur við um-
hverfisvá hjá Veðurstofu Íslands,
við Morgunblaðið. sbs@mbl.is
Tveir jarðskjálftar
við Bárðarbungu
Mjög mikið vatnstjón varð í Alþýðu-
húsinu á Akureyri í fyrrinótt þegar
allt að 10-12 þúsund lítrar af vatni
láku úr stórri uppþvottavél í eldhúsi
samkomusalar á fjórðu hæð, eftir að
slanga gaf sig.
Fjögurra sentímetra vatnsborð
var á fjórðu hæðinni þegar að var
komið og allt var á floti á þriðju hæð
þar sem nokkur verkalýðsfélög eru
til húsa, sem og Vinnueftirlitið. Á
skrifstofu þess var nýbúið að endur-
nýja ýmislegt, m.a. gólfefni.
Gólf, loftefni og innanstokksmunir
eru mikið skemmdir. Tjónið hefur
ekki verið metið en ljóst að það er
gríðarlegt og frekari skemmdir
gætu átt eftir að koma í ljós
„Það sprautaðist úr þessu í
nokkra klukkutíma,“ sagði Jónas
Baldur Hallsson, varðstjóri hjá
slökkviliðinu, og taldi þetta einn
allra mesta leka sem hann hefði orð-
ið vitni að. Vatn lak meðal annars
niður á tölvukerfi Íslandsbanka á
neðstu hæð en skrifstofur verkalýðs-
félagsins Einingar-Iðju á 2. hæð
sluppu ótrúlega vel. skapti@mbl.is
Talið að 10-12 þúsund lítrar vatns hafi lekið um Alþýðuhúsið á Akureyri
Gríðarlegt
vatnstjón
um allt hús
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vatnstjón Slökkviliðsmenn að störfum í gær í Alþýðuhúsinu á Akureyri, þar sem mikill vatnsleki varð.
Rekstrarjöfn-
uður Reykjavík-
urborgar á ár-
unum 2013 til
2015 var nei-
kvæður um 824
milljónir króna,
samkvæmt
endurskoðunar-
skýrslu KPMG
vegna ársreikn-
inga 2015. Gangi
fyrirliggjandi áætlanir eftir verður
rekstrarjöfnuður A- og B-hluta
sveitarfélagsins neikvæður næstu
tvö árin en jákvæður árin þar á eft-
ir. Í skýrslunni er vakin athygli á
því að samkvæmt sveitarstjórnar-
lögum er ekki heimilt að samanlögð
heildarútgjöld séu á hverju þriggja
ára tímabili hærri en nemur saman-
lögðum tekjum.
Halldór Halldórsson, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
vakti athygli á þessu á fundi borg-
arstjórnar í gær og sagði að sífelld-
ur taprekstur borgarinnar gæti
verið brot á lögum. Spurður um
viðbrögð yfirvalda taldi Halldór lík-
legast að borgin fengi tiltal.
Hallarekstur borg-
arinnar lögbrot
Halldór
Halldórsson