Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Gríðarleg aukning hefur orð-ið á umferð á hringveg-inum í aprílmánuði eða um15% frá sama mánuði í fyrra. Er þetta hlutfallslega mesta aukning sem mælst hefur á milli apr- ílmánaða frá því að Vegagerðin hóf að taka saman mánaðarlegar tölur um- ferðar árið 2005. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Vegagerðinni þar sem birtar eru mælingar á umferð um landið. Umferðin á hringveginum í apríl 2016 taldist þannig 65.236 bílar að meðaltali á dag yfir alla talningar- staði en í apríl 2015 var um að ræða 57.000 bíla. Til samanburðar var sam- anlögð umferð í apríl árið 2005 ein- ungis 48.396 bílar. Gert er ráð fyrir því að umferð á hringveginum geti aukist um 8,5% miðað við árið 2015. Verði það niður- staðan er met slegið í aukningu um- ferðar sem mest hefur aukist áður um 6,8% milli áranna 2007 og 2008. Umferð aukist um 16,3% „Þegar hagkerfið vex þá eykst umferðin,“ segir Friðleifur Ingi Brynjarsson, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni, en Vegagerðin hefur rannsakað fylgni þjóðarframleiðslu og aukinnar umferðar og hefur hún mælst um 98%. „Þegar krafturinn í atvinnulífinu eykst þá þarf til dæmis að flytja vörur og fólk og annað í auknum mæli í takt við það og er þetta alþekkt samband,“ segir Friðleifur. Hann segir aprílmánuð hafa far- ið fram úr öllum spám hvað varðar aukningu umferðar en náttúruleg fjölgun, þ.e. þegar þjóðinni fjölgar, er aðeins um 1–2%. Því sé um að ræða samspil margra þátta, þ.e. aukin virkni í hagkerfinu, lágt bensínverð, aukinn kaupmáttur og fjölgun ferða- manna. Mest aukning á sunnudögum Það sem af er ári hefur umferðin aukist um 16,3% en það er nýtt met miðað við árstíma. Fram kemur í mælingum Vegagerðarinnar að í fyrra hafi umferðin aukist um 12,1% á sama tíma miðað við árið þar á undan. Ef horft er á daga vikunnar hef- ur umferð aukist mest á sunnudögum það sem af er ári, í samanburði við sama tíma árið á undan, eða um 26,3%. Minnst hefur aukningin orðið á föstudögum. Flest ökutæki eru á ferðinni um landið á föstudögum en fæst á þriðjudögum. Fleiri erlendir ferðamenn „Við höfum séð þessa töluverðu aukningu í okkar vinnu síðustu ár og mikið núna það sem af er þessu ári,“ segir Oddur Árnason, yfirlög- regluþjónn á Suðurlandi, en mæl- ingar Vegagerðarinnar sýna að ann- an mánuðinn í röð eykst umferðin hlutfallslega mest um teljara á Mýr- dalssandi eða um tæp 33%. Mýrdalssandurinn er í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi og eru lík- ur leiddar að því í upplýsingum frá Vegagerðinni að aukinn fjöldi er- lendra ferðamanna að Jökulsárlóni geti verið meginorsök þessarar aukn- ingar í umferð um svæðið. Tekur Oddur undir þessar vangaveltur og segir flesta þá sem umferðardeild lögreglunnar á Suður- landi hafi afskipti af á vegunum séu erlendir ferðamenn sem keyri of hratt. „Við höfum líka séð mikinn fjölda slysa austan við Vík og það oft alvarleg slys,“ bætir hann við. Telur Oddur að auka þurfi eftirlit lögreglu á svæðinu með þeim hætti að ferða- menn verði við það varir. „Við þyrftum meiri mannskap til að stöðva fleiri ferðamenn og upplýsa þá um hámarkshraða og öryggis- beltanotkun. Fysískt eftirlit hreyfir meira við mönnum og vekur umtal þeirra á meðal,“ segir hann en um 90– 95% þeirra ferðamanna sem koma hingað til lands ferðast austur fyrir fjall í Árnes- og Rangárvallasýslu. „Þegar hagkerfið vex þá eykst umferðin“ Samanlögð umferð í apríl á Hringvegi Heimild: Vegagerðin 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 48 .3 96 53 .9 15 58 .4 89 56 .8 08 58 .5 10 54 .8 60 51 .8 97 53 .0 11 50 .5 51 56 .6 72 56 .6 59 65 .2 36 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Spámennskagetur aldreiorðið ná- kvæm vísindi, hvort sem rýnt er í kristalskúlur, te- lauf eða tölur. Þá er nokkuð líklegt að eftir því sem lengra er horft fram í tímann dragi úr nákvæmni. Því getur verið vænlegt að slá þann varnagla að spáin rætist ekki nema hún gangi eftir. Al- þýðusamband Íslands spáði í fyrradag kraftmiklum hag- vexti. Spáin er til tveggja ára. Segir að þjóðarhagur muni vænkast og horfur næstu misserin séu góðar. Í spánni er reyndar sagt fyrir um sam- felldan hagvöxt hér á landi í átta ár – gangi spáin eftir. Þetta hlýtur að teljast nokkuð sérstakt í því „umróti óvissu“ sem nú er. Hagsældin blasir ekki bara við í höfuðstöðvum ASÍ. Í fjármálastefnu stjórnvalda, sem sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær, er stefnt að því að heildarafkoma ríkis og sveitarfélaga verði jákvæð um 1% af landsframleiðslu hið minnsta. Samkvæmt því er gert ráð fyrir 170 milljarða afgangi á afkomu hins op- inbera næstu fimm árin. Fjármálaáætluninni fylgir listi yfir ný og stærri fjárfest- ingarverkefni á næstu fimm árum. Þar við bætist vöxtur útgjalda á ýmsum sviðum þjóðfélagsins, allt frá líf- eyrisskuldbindingum ríkis- starfsmanna til framhalds- skólakerfisins. Ljóst er af tölunum í áætluninni að gert er ráð fyrir miklu svigrúmi. Með þessu svigrúmi gefst kostur á að hugsa ýmislegt að nýju. Um helgina afhenti Kári Stefánsson Sigurði Inga Jó- hannssyni forsætisráðherra undirskriftir 86.729 manna, sem safnað var undir yfir- skriftinni „Endurreisum heil- brigðiskerfið“. Þar hafa helstu vandamálin auk þarfarinnar á nýju sjúkrahúsi verið biðlistar og skortur á rými fyrir sjúklinga sem hafa lokið meðferð en ekki er tímabært að senda heim. Hafist hefur verið handa við að leysa hvort tveggja en það mætti ganga hraðar fyrir sig. Gjaldtaka skapar einnig vanda. Nú er kostnaðarþátttaka almenn- ings 18% af heildarkostnaði við rekstur heilbrigðiskerf- isins. Segja má að þetta sé skattur sem er innheimtur af þeim sem þurfa á þjónustunni að halda. Nú er stefnt að því að gera breytingu á þessu kerfi. Með henni verður sett þak á útgjöld þeirra sem glíma við alvarlega, langvinna sjúk- dóma. Þessi breyting var löngu tímabær. Kostnaður við læknisþjónustu á ekki að ýta fólki á barm gjaldþrots. Breytingunni fylgir hins veg- ar sú ranghugsun að bein kostnaðarþátttaka notenda eigi að vera föst stærð. Til að vega upp á móti þakinu á út- gjöld langtímasjúklinga þurfi að hækka gjöld þeirra sem nota þjónustuna minna. Það getur leitt til þess að þeir sem minna hafa á milli handanna veigri sér við að leita læknis og fara í kostnaðarsamt eftir- lit með heilsu sinni. Nær hefði verið að setja þakið og láta gjöldin að öðru leyti standa í stað. Svo er önnur spurning hvort gjöld í heilbrigðiskerf- inu eigi rétt á sér. Kári Stef- ánsson lagði til þegar hann af- henti undirskriftirnar að kostnaðarþátttaka notenda heilbrigðiskerfisins yrði lækkuð um helming, úr 18% í 9%. Það má hæglega rök- styðja það með því að betra sé að borga fyrir heilbrigðis- þjónustuna með sköttum þeg- ar allt leikur í lyndi en að sitja uppi með háa reikninga þegar nóg er með önnur áföll, því að staðreyndin er sú að þessir peningar koma úr vösum skattborgara með einum eða öðrum hætti, beint eða óbeint. Það er alltaf auðvelt að predika um aukin útgjöld og ávallt hefur það sem messað er um það skiptið forgang um- fram allt annað. Langt er frá því að eining ríki um afskipti og umsvif ríkisins en þó má segja að sátt ríki um tvennt; að skólakerfið og heilbrigð- iskerfið skuli vera fyrir alla. Nú er einstakt tækifæri til að hætta að reka uppsafnaðan vanda heilbrigðiskerfisins á undan sér. Rósrauðar spár um kraftmikinn hagvöxt og áætlanir um 170 milljarða af- gang á næstu fimm árum bera því vitni. Tilhneiging er til þess að morgundagurinn verði með svipuðu sniði og gærdagurinn, en staðreyndin er sú að staða himintunglanna hefur ekki oft verið jafn væn- leg í efnahagsmálum og um þessar mundir. Því ber að nýta þetta tækifæri til að koma heilbrigðiskerfinu í lag á meðan það gefst, ekki seinna þegar staðan gæti verið orðin allt önnur. Það er nefnilega ekki víst að allt gangi eftir. Nú er lag að hætta að reka vanda heilbrigðiskerfisins á undan sér } Einstakt tækifæri Í eina tíð var allt með betra sniði hér á landi; allt var íslenskt á Íslandi, íslensk- ir menn og íslenskar konur bjuggu í ís- lenskum húsum úr íslensku torfi, gengu í íslenskum fötum og átu íslenskan mat. Allt var eins og það átti að vera, en eftir að fjöl- menningin kom til sögunnar fór allt á verri veg. Fjölmenningin stakk sér inn í íslenskt sam- félag á ísmeygilegan hátt, laumaði sér inn í land- ið með þúsund ára gamalli draugasögu frá Mið- austurlöndum og þá var fjandinn laus. Hratt seig á ógæfuhliðina, menn tóku að reisa óíslensk (hlý) hús, bera klæði sem ofin voru úr öðru en vaðmáli (jafnvel úr tvenns konar bandi) og borða allskyns óþjóðlega fæðu; frá oblátum er nefni- lega ekki svo löng leið í flatbökuna. (Mér er alltaf minnisstætt þegar kokkur á togara sem ég var á bauð upp á pasta í hádeginu – eitt hörkutólanna tók bakkann og henti honum í gegnum lúguna inn í eldhús og lét fylgja að hann vildi ekkert helvítis hænsnafóður.) Það er fjölmenning að borða pasta og pizzu og tikka ma- sala kjúkling. Já, og hamborgara. Það er líka fjölmenning að hlusta á rokk og rapp og kántrýtónlist og djass. Og það að keyra um á Honda og Hyundai og Hummer. Og æfa júdó, taekwondo og box. Og spila fótbolta og fara í bíó. Við lifum nefnilega í fjölmenningarsamfélagi og njótum þess sem fjölmenningin hefur upp á að bjóða á hverjum degi og í öllu sem við gerum, nema kannski að éta úldinn fisk á Þorláksmessu og skemmt kjöt í þorrablótum – það er al- íslenskt. Íslenska lopapeysan er meira að segja fjölmenningarleg. Í framúrskarandi ræðu þegar hún tók við Íslensku þýðingaverðlaununum, benti Brynja Cortes Andrésdóttir á að sagan sýndi okkur að mestu blómaskeið menningar og lista kæmu einmitt í kjölfar þess að menning mæt- ir annarri menningu. Það voru orð að sönnu og alltaf jafn an- kannalegt þegar menn amast við fjölmenn- ingu og í raun nánast óskiljanlegt; líf okkar væri svo miklu fábreytilegra og leiðinlegra ef ekki væri fyrir fjölmenninguna: „[Á] síðustu áratugum hefur hér á Íslandi listalíf blómstr- að eftir að einangrun okkar frá umheiminum var rofin. Tónlistarlífið fór að blómstra eftir að erlendir tónlistarmenn, margir hverjir flóttamenn frá stríðshrjáðri Evrópu, komu hingað til lands og höfðu með sér í farteskinu evrópskar hefðir og amerískar jazzplötur. Viljum við framleiða eitthvað nýtt þurfum við líka að halda í ferðalag, út í óvissuna, bragða eitthvað framandi. Annars er hætt við að við stöðnum, sitjum uppi með sama gamla hunangið ár eftir ár.“ (Til gamans má svo geta þess að hvergi er samfélagið fjölskrúðugra á Bretlandseyjum en í Leicester-borg í hjarta Englands og óhætt að segja sögulegan sigur Leic- ester í ensku úrvalsdeildinni sigur fjölmenningarinnar.) arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Fjárans fjölmenningin STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Sala á nýjum fólksbílum frá 1. janúar til 30. apríl sl. jókst um 63,6% miðað við sama tíma á síðastliðnu ári, en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 5.878 á móti 3.594 á sama tíma fyrir ári. Er það fjölgun um 2.284 bíla. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Bílgreinasambandinu. „Góður gangur er í endurnýj- un bílaflotans og er mikilvægt að sú þróun haldi áfram þar sem meðalaldur bíla er enn hár hér á landi,“ segir í tilkynning- unni, en nýir bílar eyða og menga umtalsvert minna. Alls voru skráðir 2.273 nýir fólksbílar í apríl á þessu ári á móti 1.305 bílum á síðasta ári. Nýskráningum fólksbíla fjölgaði því um 74,2% í apríl saman- borið við fyrra ár. Bílaflotinn endurnýjaður FLEIRI NÝSKRÁNINGAR Nýtt Fjöldi nýrra bíla eykst milli ára. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.