Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 Hrein samviska í 25 ár Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is B ra n d e n b u rg |s ía Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú mátt ekki vanmeta vinsældir þínar en mátt heldur ekki misnota þér velvild ann- arra. Þú þarft að hnýta lausa enda. Til þess að þú getir það er skipulagningar þörf. 20. apríl - 20. maí  Naut Einbeittu þér að þeim verkefnum sem þú þegar hefur og láttu ógert að skima eftir fleirum á meðan þau endast. Byrjaðu á lík- amanum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Viðurkenndu fyrir þér hversu vel þú hefur unnið og afrekað mikið. Gættu þess bara að láta ekki letina ná tökum á þér því þá er verr af stað farið en heima setið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ferð næstum yfir strikið á því sem telst þér sæmandi. Veltu því fyrir þér hver það er sem vill lokka þig og hverju viðkom- andi er á höttunum eftir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur mikla löngun til að ferðast og skoða heiminn í kringum þig. Einhver kemur með uppástungu sem vert væri að skoða því þar gæti leynst gott tækifæri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ígrundaðu á hvern hátt þú getur bætt samskipti þín við ættingja og fjölskyldu. Njóttu þess að vera með öðrum í starfi og leik því félagsskapurinn mun endurnæra þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Mikið gæti gengið á í ástarsambandi í dag. Ef það er valdabarátta á milli framans og vinanna, leyfðu þá vinunum að vinna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér finnst vera gjá á milli þín og annarra í dag. Hlustaðu á hina, en í lýðræði er það nú meirihlutinn sem ræður. Reyndu að gefa frá þér eins nákvæm skilaboð og þér er unnt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vinur þinn gæti hvatt þig til að taka þátt i einhverju. Hann gefst upp þegar hann sér að orð hans hrína ekki á þér. Mikið er undir lausn þess komið svo þú skalt leggja þig fram. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér finnst það ekki skipta neinu úr því sem komið er en reyndu samt að leggja mál þitt fyrir einu sinni enn. Kapp er best með forsjá. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver lofar þér öllu fögru í dag, taktu því sem sagt er með fyrirvara. Láttu ekki einhver smáatriði vefjast fyrir þér, heldur taktu tækifærinu opnum huga. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er auðveldara að gleyma en fyrir- gefa en í dag reynist hvort tveggja vanda- samt. En leitt að þetta gengur ekki upp. Ég datt í limrur um helgina –tíndi eina bók á eftir annarri út úr bókaskápum og þessi varð af- raksturinn. Ég byrjaði á Vísnafýsn Þórarins Eldjárn, Maskúlín- istaguðfræði heitir limran: Síst mega prelátar pota í píur og traust þeirra nota til að þukla og kjá, já og þreifa og gá hvort unnt sé að ota í þær tota. Og hinum megin á opnunni var Femínistaguðfræði: Eftir lokaspöl lífsbrautarinnar loks nýt ég kvenhylli minnar. Á himnum í stuði hjá henni Guði eða á djúpslóðum Djöfullarinnar. Gormánuður heitir þessi limra eftir Pál Jónasson í Hlíð: „Mér er illa við andskotans vorið,“ sagði krummi og kafaði slorið, „nei, haustið er best og hátíðin mest, þá kemst ég í göngur og gorið“. Í „Fyrstu Davíðsbók“ er þessi limra eftir Davíð Hjálmar Haralds- son: Gunnar var glaður í bragði, gott hann til málanna lagði. Var tíðum á fundum og talaði stundum og mest var að mark‘ann ef þagði. Hjálmar Freysteinsson yrkir „Í Eyjafirði“: Sjálfsagt leggst það nú létt í þig en laginu út af það setti mig, þegar ég fann hér í firðinum mann sem fríkkaði þegar hann gretti sig. Þorstein Valdimarsson má ekki vanta: Þess verður getið, sem gert er, sagði Goethe og skrifaði Werther – lét hann ganga út á hlað og gera það sem gert er oftar en vert er. Kristján Karlsson orti: Ef dytti ég niður dauður einn dag eins og hver annar sauður, þó illt sé að kveðjast hlyti einhver að gleðjast sem á eftir mér sæi oní hauður. Sturla Friðriksson orti: Sú þversögn er alltaf að þjaka mig og þjáningin er alveg svakaleg. Ég karpa við segg um keisarans skegg þótt karlinn sé búinn að raka sig. Og að lokum eftir Jóhann S. Hannesson: Að uppruna erum við norsk, að innræti meinleg og sposk, en langt fram í ættir minna útlit og hættir á ýsu og steinbít og þorsk. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Limra kallar á limru Í klípu „TIL AÐ BYRJA MEÐ, ÞÁ ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ SÉRFRÆÐINGI Í AÐLEIÐSLU, EKKI ÆTTLEIÐSLU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „LÆKNIRINN GETUR EKKI HITT ÞIG FYRR EN Á FÖSTUDAGINN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera við hlið þér, sama hvaða leið við förum. SJÁÐU, STJÖRNU- HRAP!! ÉG VONA AÐ ÓSKIN ÞÍN RÆTIST! ÓSKAÐIR ÞÚ ÞÉR EINHVERS? HÚN HEFUR GERT ÞAÐ NÚ ÞEGAR! JÁ! ÉG ÓSKAÐI ÞESS AÐ HÚN MYNDI EKKI HRAPA Á MIG! VINGJARNLEIKI ODDA ER HANS VERSTI KOSTURÞegar Víkverji kemur á nýja staðier hann yfirleitt fullur forvitni og gerir sér far um að kanna þá sem mest hann má, hvort sem það eru erlendar stórborgir eða íslensk sjávarpláss. Hann er hins vegar ekki jafnduglegur við að fara í könnunarleiðangra um Reykjavík, sennilega vegna þess að hann hefur búið of lengi í höfuðborginni. Hann hefur þó stundum velt því fyrir sér eftir að hafa aðallega hitt útlend- inga á vappi í borginni að eitthvað hljóti að draga þá á þessar slóðir og kannski væri stundum ráð að bregða sér í ham ferðamanns í garðinum heima. x x x Víkverji ákvað 1. maí að líta við íListasafni ASÍ við Freyjugötu. Ástæðan var ekki að hann hafði séð að húsið væri til sölu, heldur langaði hann að sjá samsýningu tveggja af uppáhaldsmálurum sínum, Eggerts Péturssonar og Helga Þorgils. Fannst honum við hæfi að fara í safn ASÍ á þessum degi en kíkti á heimasíðu safnsins til fullvissa sig um að það væri opið. Þar kom ekk- ert fram um lokanir en vitaskuld kom hann að luktum dyrum. x x x Víkverji vildi ekki fara fýluferð ogsem betur fer rættist úr. Skammt frá Listasafni ASÍ, sem var heimili og vinnustofa Ásmundar Sveinssonar, nánar tiltekið við Bergstaðastræti, er Safn Ásgríms Jónssonar. Þangað hafði Víkverji aldrei komið, þótt skömm sé frá að segja, en nú gafst tækifæri til að bæta úr því. Safnið var heimili og vinnustofa Ásgríms. Þarna er ýmsa muni að finna, gamalt píanó, skáp, sem Einar Jónsson skar út, og búta- saumsteppi eftir Theodóru Thor- arensen. Í safninu eru nú til sýnis myndir frá æskuslóðum Ásgríms og nágrenni þeirra málaðar á árunum 1909 til 1928. Ásgrímur var frábær málari og eru vatnslitamyndir hans á sýningunni magnaðar. Víkverji og förunautur hans voru sennilega einu gestir safnsins þann daginn. Safn Ásgríms er falin perla í Reykjavík og færði Víkverja heim sanninn um að hann getur enn látið borgina koma sér á óvart þótt hann hafi bú- ið í henni lengi. víkverji@mbl.is Víkverji því að miskunn þín nær til himna og trúfesti þín til skýjanna. (Sálm. 57:11)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.