Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Eggert Þroskandi starf Kristín Helga Magnúsdóttir og Helga Sjöfn Hrólfsdóttir hafa frá unglingsaldri unnið umönnunar- störf; á leikskólum og öldrunarheimilum sem og sambýlum og skammtímavistun fyrir fólk með þroskhömlun. Gefandi starf Helga Sjöfn og Kristín Helga hafa frá unglingsaldri unnið umönnunarstörf; á leikskólum og öldrunarheim- ilum sem og sambýlum og skammtímavistun fyrir fólk með þroskahömlun, Helga Sjöfn framan af í heimabæ sínum, Egilsstöðum, og Krist- ín Helga í Reykjavík. Hjá hvorugri kom annað til greina en að mennta sig á því sviði. „Það er mikil fegurð í því fólgin að vinna með fólki með þroskahöml- un og ekki síður þroskandi fyrir mann sjálfan,“ segja þær. „Kannski er það bara sjálfselska að velja sér þennan starfsvettvang,“ bætir Helga Sjöfn við og örlar á kald- hæðni. Enda hafa þær á stundum orðið varar við að umönnunarstörf njóti ekki sérstakrar virðingar í samfélaginu. „Sumir botna ekkert í okkur og hafa engan skilning á því hversu gefandi starfið er,“ segja þær. Draumurinn Spurðar hvort á döfinni sé að uppfæra vefsíðuna reglulega segjast þær einfaldlega ekki vera komnar svo langt, hugsunin nái ekki lengra en til skiladags verkefnisins. Þær eru þó með ýmsar hugmyndir í koll- inum, enda segja þær bæklinginn ekki tæmandi í núverandi mynd. „Draumurinn er að þróa verkefnið áfram en þá þurfum líklega við að sækja um styrk. Okkur langar til að birta fleiri hagnýtar upplýsingar um heilsuna og ýmsar hversdagslegar athafnir sem geta vafist fyrir fólki með þroskahömlun; hvernig það ber sig að við að panta og fara í heyrnarmælingu, brjóstaskoðun, til tannlæknis og þvíumlíkt. Einnig mætti gefa ráð um líkamsæfingar og dæmi um hollt mataræði.“ Að viku liðinni skiljast leiðir. Í bili að minnsta kosti. Kristín Helga fer í fullt starf á sambýli á höfuð- borgarsvæðinu og Helga Sjöfn fékk sumarstarf á sambýli á Egils- stöðum en ætlar að flytjast til Akureyrar með haustinu og fá þar vinnu við sitt fag. Félagsfærnisaga Leiðbeiningar um ferða- lag á heilsugæslustöðina. „Við vorum sammála um að hér vantaði fræðslu um heilsu og mikil- vægi heilsu- samlegs líf- ernis fyrir þennan hóp, sem þarf ekki síður en aðrir á henni að halda.“ DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður Sími: 560 4300 | www.saltkaup.is Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is Hreinsunardagar hjá þér? Sorppokarnir fást hjá okkur Glærir 50 stk. Svartir 50 stk. Svartir 25 stk.Svartir 10 stk. Lykil- o g korth afar Ol ís fá 10% BÓNORÐ GÓÐIR DAGAR FYRIR PI PA R \ TB W A • SÍ A • 15 2 73 2 Það virtist enginn mánudagur vera í stjörnunum sem mættu í sínu fínasta pússi á galakvöld á vegum Costume Institute í Metropolitan-safninu í New York í fyrradag. Galakvöldið var haldið við upphaf sýningar safnsins. Þetta er einn helsti viðburður ársins í tískuheim- inum þar vestra og haldinn við upphaf árlegrar tískusýningar í safninu. Yf- irskrift sýningarinnar er Manus x Machina og þemað tískan á tækni- öld. Eins og aðrir gestir vönduðu Ma- donna, Beyoncé og hjónin Kim Kardashi- an og Kanye West sig virkilega við val á fatnaði af þessu fína tilefni. Galakvöld á vegum Costume Institute í Metropolitan-safninu Tískan á tækniöld AFP Kim Kardashian og Kanye West Beyoncé Madonna í bak og fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.