Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is BMW520D XDRIVE F10 nýskr. 04/2014, ekinn 31 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, lúxuspakki. TILBOÐSVERÐ 7.990.000 kr. Raðnr.254156 M.BENZ C 220 BLUETEC nýskr. 07/2014, ekinn 15 Þ.km, dísel, sjálfskiptur 7 gíra, glertoppur ofl.Verð 6.990.000 kr. Raðnr.254983 AUDI A7 QUATTRO nýskr. 05/2011, ekinn 111 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, leður, 19“ álfelgur. Tilboðsverð 7.990.000kr. Raðnr.230144 LANDROVERFREELANDER2S nýskr. 04/2008, ekinn 168 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, leður ofl.Verð 2.490.000 kr. Raðnr.254843 áwww.BILO.is BMW520DTOURING F11 nýskr. 03/2011, ekinn 175 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 4.777.000 kr. Raðnr.254001 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Þeim rökum er beitt fyrir að grafa upp og fjarlægja bein úr kirkjugarði við Kirkjustræti í Reykjavík að þegar sé búið að raska svo miklu í garðinum að lítið mál sé að fjar- lægja það sem eftir sé. Þetta eru ónýt rök, bæði af því að fyrri mistök afsaka ekki að gerð séu ný og eins vegna hins að flest bendir til að fyrri röskun hafi einkum verið á yfirborði. Þá eru undanskildir grunnar húsa sem risið hafa í hinum gamla garði Vík- urkirkju, þar sem eru Landsíma- húsin við Austurvöll og e.t.v. var einhverju raskað þegar byggt var í Aðalstræti 9 og 11. Við uppgröft- inn, sem núna fer fram við Kirkju- stræti, hafa að sögn verið teknar upp frá 1. febrúar a.m.k. 32 heilar beinagrindur og mun fleiri óheilar og vera má að þarna og annars staðar þar sem framkvæmdir standa fyrir dyrum í Víkurgarði leynist enn meira af jarðneskum leifum Reykvíkinga. Hafa verður í huga að um tveir metrar eru víða niður á malargrunn (óhreyft) á umræddu svæði. Annað sjónarmið er það að upp- gröfturinn í Kirkjustræti sé mikil- vægur, jafnvel brýnn, til að varpa ljósi á sögu Reykjavíkur. Í þessum röksemdum með uppgrefti er sneitt hjá því að nefna að þeir sem knýja á um gröftinn eru fjárfestar sem vilja reisa stórt hótel á sögu- legum stað til þess að hagnast. Það rekur annars engar nauður til að grafa þarna í Kirkjustræti, nægar ættu að vera lóðir annars staðar fyrir hótel og fræðileg rök fyrir uppgreftinum eru engin. Vönduð vinnubrögð og vísindaleg nálgun Á fyrri tíð gengu menn ekki allt- af úr skugga um hvort væru minj- ar í jörðu þar sem framkvæmdir skyldu hafnar en fullyrt er að tvisvar sinnum hafi þó verið hætt við áform um stækkun Landsíma- hússins vegna þess að líklegt þótti að verið hefði kirkju- garður þar sem skyldi byggt. Á seinustu tveimur áratugum hefur verið reynt að vanda vinnubrögð frekar en áður með fornleifaskráningu út frá yfirborðskönnun og könnun ritheimilda og sagna. Þegar grun- ur leikur á að leifar séu í jörðu ber að kanna staðinn með varúð fyrst, svo sem með könnunarskurðum, og taka síðan ákvarðanir um framhaldið. Eitthvað hefur farið í handaskol- um, árið 2016 er gengið lengra í spjöllum í Víkurgarði en mun hafa verið gert nokkurn tíma fyrr. Hvað varð um forkönnun og var- úð? Hvað varð um ný viðhorf og betri vinnubrögð? Meginviðmið gildir innan forn- leifafræði á þá leið að ekki skuli fjarlægja fornleifar, eins og beinin við Kirkjustræti, nema mjög brýn- ar ástæður beri til. Slíkar ástæður geta verið vísindalegs eðlis en þá er valið á rannsóknarstað og af- mörkun hans líka gerð á vísinda- legum forsendum. Það á auðsæi- lega ekki við á Landsímareitnum. Ástæðan fyrir uppgreftinum er einungis sú að þarna á að byggja hótel. Engar aðkallandi rannsókn- arspurningar leiddu til þess að kirkjugarðurinn er grafinn upp. Væru slíkar rannsóknarspurningar brýnar þættu aðrir staðir vafalaust hentugri til þess konar uppgraftar. Er forsvaranlegt að grafa upp kirkjugarða? Fornleifafræðingar grafa ósjald- an upp mannabein og því má spyrja hvar eðlilegt sé að gera það og hvar ekki. Engum mun finnast eðlilegt að grafa almennt upp bein í kirkjugarðinum við Suðurgötu þótt það gæti varpað ljósi á sögu Reykjavíkur. Þetta er kannski einkum af því að kirkjugarðurinn við Suðurgötuna er ekki gamall, miðað við það sem gerist um kirkjugarða, nöfn þeirra sem þar hvíla eru jafnan þekkt enda tók þessi garður við af Víkurgarði eftir 1838. En sama máli gegnir að mörgu leyti um Víkurgarð, ekki síst reitinn við Kirkjustræti. Við getum nafngreint fjölda manna sem grafnir voru í garðinum. Þar má nefna Geir Vídalín biskup, sem nefndur var Geir góði (d. 1823), og lifir enn í vitund margra. Enn fremur Gunnlaug Oddsson dóm- kirkjuprest (d. 1835) sem er þekkt- ur fyrir Almenna landaskip- unarfræði sína og orðabók sem var endurútgefin 1991; legsteinn hans er sagður hafa komið upp við rask. Flestum mun þykja sjálfsagt að þessir menn og margir aðrir, þekktir í sögunni, fái að hvíla í friði í gröfum sínum. Stundum er leyft að grafið sé í gleymdum kirkjugarði sem finnst óvænt við framkvæmdir og reynist frá miðöldum og kann þó að þykja álitamál. En þá má líta til þess að fólkið sem þar hvílir er jafnan með öllu óþekkt og nafnlaust. Auk þess skiptir máli að bornar séu fram gildar rannsóknarspurningar. Eins ef þekktur kirkjugarður spillist eða skemmist af náttúrlegum ástæðum, þá er ástæða til að grafa upp beinin áður en þau verða eyð- ingu að bráð. En sjaldgæft mun að grafin séu upp bein þekktra manna nema þá að það þjóni sér- stökum tilgangi, oft réttar- læknislegum. Og fáheyrt mun að grafinn sé upp kirkjugarður með beinum þekktra manna til þess eins að rýma fyrir veraldlegri byggingu, m.a.s. hóteli. Við getum enn hætt við Ef ekki ætti að reisa hótelbygg- ingu í Kirkjustræti fengju beinin þar að hvíla í friði. Engar fræði- legar ástæður eru fyrir uppgreft- inum. Honum ber að hætta þegar í stað og koma beinagrindum fyrir að nýju, með viðeigandi minning- armörkum. Að bera beinin Eftir Helga Þorláksson » Fáheyrt mun að grafinn sé upp kirkjugarður með bein- um þekktra manna til þess eins að rýma fyrir veraldlegri byggingu, m.a.s. hóteli. Helgi Þorláksson Höfundur er sagnfræðingur. Lögþvingaður sparnaður, sem er eignaupptökuvarinn samkvæmt lögum, það eru lífeyrissjóðs- greiðslur okkar. Samt eru þær há- skattaðar, miðað við annan sparnað og með keðjuverkandi skerðingum, skertar yfir 100%. Mest hafa lífeyr- issjóðsgreiðslur mínar verið skatt- aðar og skertar af ríkinu í mínus 5%. Það var um 10 þúsund króna tap af lífeyrissjóðsgreiðslum mín- um á mánuði í um tvö ár. Öryrkjar sem voru á lágum launum fyrir veikindi eða slys halda eftir um 0-20% af greiðslum frá lífeyrissjóðnum eftir skatta og skerðingar. 50 þúsund króna líf- eyrissjóðsgreiðslur eru skattaðar og skertar 100%, eða í núll, og skila öryrkjanum bara 185 þúsund króna lífeyri frá TR, eða lámarks- lífeyri. 100 þúsund króna lífeyr- islaun skila 20 þúsund krónum, eða bara 205 þúsund krónum eftir skatt og skerðingar. Áætlaður kostnaður ríkis og líf- eyrissjóða vegna örorkubyrðar á árinu 2015 er 55 milljarðar króna og hefur tvöfaldast á föstu verð- lagi á undanförnum 15 árum, segja Samtök atvinnulífsins. Þetta segja samtök þar sem meðallaun 20 hæstu stjórnenda fyrirtækja eru um þrjár milljónir á mánuði og meðallaun stjórn- armanna ekki undir 300.000 krón- um á mánuði og stjórnarformanna 600.000 krónur. Er það ekki siðblinda að upp- nefna veikt og slasað fólk „ör- orkubyrði“? Hvað á þá að nefna þá sem eru í Samtökum atvinnulífsins og verklýðshreyfingunni ? Til dæmis „sjálftökubyrði“ og/eða „græðgibyrði“ á þjóðfélaginu? Hvað er það há tala sem ríkið fær í skatta og skerðingar á lífeyri aldraðra og öryrkja? Er það ekki vel yfir 55 milljarðar króna, sem er skatta- og skerðingabyrðin á öryrkjum og öldruðum ? Fjármálaeftirlitið og Lands- samtök lífeyrissjóða gerðu skýrslu árið 2014 um nægjanleika lífeyrissparnaðar. Til að fegra líf- eyriskerfið og ná láglaunaþegum 11% upp fyrir fátæktarmörk, sem eru 60% af miðgildi ráðstöf- unartekna, voru heimili þar sem annar eða báðir einstaklingar fengu örorkulífeyri undanskilin. Þetta stafar af mjög flóknum tekjutengingum eða þaki á slíkan lífeyri eftir núgildandi reglum, segir þar. Samkvæmt þessu á eng- inn að þurfa að sæta „algjörri fá- tækt“ og hátekjufólk fær mun hærri lífeyri en lágtekjufólkið, segir einnig í skýrslunni. Það þarf að henda öryrkjum út úr skýrslunni hjá Fjármálaeftirlit- inu og Landssamtök lífeyrissjóða til að falsa lífeyrisgreiðslur lág- launafólks upp fyrir fátækt- armörk. Enginn á að þurfa að sæta „algjörri fátækt“ við lífeyr- istöku. Erum við því ekki í „al- gjörri fátækt“ í dag í boði Verka- lýðshreyfingarinnar, Samtaka atvinnulífsins og rík- isins? Um tíu þúsund á börn Íslandi líða skort í formi næringar, hú- næðis, klæðnaðar, menntunar og afþrey- ingar. Þar af eru 6.100 börn í „algjörri fá- tækt“. Það vantar 150 milljarða í heilbrigðis- og félagsmál til að vera til jafns á við Norðurlöndin. 130 þúsund krónur á mán- uði sem vantar að lágmarki fyrir eldri borgara og öryrkja til að ná sömu kjörum og á Norðurlönd- unum. Mesta hækkun allra tíma frá TR um síðustu áramót í boði forsætis- ráðherra var upp á heilar 12.000 krónur frá TR handa mér. Eftir skatt eru þetta um 7.000 krónur sem ég fékk. Forsætisráðherra fékk sjálfur 118.000 krónu hækkun eða 70.000 eftir skatt sem er tíu sinnum hærra en ég fékk. Þá fékk hann einnig rúmlega 1 milljón króna í afturvirka eingreiðslu á sama tíma, en við ekki krónu. Þingmenn fengu 60 þúsund króna hækkun og eingreiðslu upp á um 550 þúsund krónur. Við feng- um ekki krónu í afturvirka ein- greiðslu og hvað þá rétta hækkun. Já, þessi ofurhækkun allra tíma hjá ráðherrunum eru heilar 7.000 krónur eftir skatta og dugar ekki fyrir hækkunum á húnæð- isgjöldum. Hvað þá fyrir öllum öðrum hækkunum á t.d. mat, læknisþjónustu, lyfjum. Græðgin er góð, segja þeir hjá Verklýðshreyfingunni og Sam- tökum atvinnulífsins og krefjast hækkunar upp á 3,5% í viðbót í líf- eyrissjóðsgreiðslur, eða úr 12% í 15,5%. Með séreignarsparnaði er þetta 21,5% af launum, eða um 65.000 krónur af 300.000 króna mánaðarlaunum. 780.000 krónur á ári af lægstu launum í lífeyrissjóð- ina og ungt fólk lendir í fátækt í dag vegna lágra launa, hárra greiðslna í lífeyrissjóði, hárra skatta og þá einnig eftir 40 ár þeg- ar og ef það fær borgað úr lífeyr- issjóðnum. Hvað segir þetta okkur? Jú, að græðgi er ekki góð. Græðgi sem meiðir aðra er aldrei réttlætanleg og þá sérstaklega ekki fyrir lífeyrissjóðina okkar. Græðgi skil- ar engum árangri. Græðgi sem fel- ur í sér að við höfnum allri samúð og hjálpsemi og skilur börn og veikt fólk eftir í „algjörri fátækt“ er aldrei réttlætanleg. Ætlum við að sætta okkur við þetta? Ég segi nei. Fátækt og græðgi Eftir Guðmund Inga Kristinsson Guðmundur Ingi Kristinsson »Um tíu þúsund börn á Íslandi líða skort í formi næringar, hús- næðis, klæðnaðar, menntunar og afþrey- ingar. Þar af eru 6.100 börn í „algjörri fá- tækt“. Höfundur er öryrki, formaður BÓTar og varaformaður kjarahóps ÖBÍ. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.