Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 Þú gerir ekki *samkvæmt dekkjaprófun haustið 2014 Ipike W419Winter i'cept Korna- dekk – Síðan 1941 – Smiðjuvegi 68-72, Kóp Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Selfossi Skútuvogi 2, Rvk Sími 568 3080 betri kaup! Áberandi gott skv. FÍB* Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Helga Sjöfn Hrólfsdóttirog Kristín HelgaMagnúsdóttir eru í óðaönn að skrifa grein- argerð og ganga frá BA-verkefni sínu í þroskaþjálfafræði á Mennta- vísindasviði Háskóla Íslands. Skila- dagur er 10. maí og þann dag fer hluti þess í loftið; vefsíðan www.heilsanmin.info sem hefur að geyma 16 síðna heilsuupplýsinga- bækling og 8 síðna heilsuvegabréf, hvort tveggja með þarfir fólks með þroskahömlun í huga. Vegabréf af þessu tagi er nýlunda hér á landi að sögn þeirra en þekkist þó víða, t.d. í Noregi og á Bretlandi. „Hugmyndin kviknaði á öðru ári í áfanganum Fötlun, heilsa, heilsuefling. Þar sem við höfðum hvor í sínu lagi ákveðið að fjalla um heilsu fólks með þroskahömlun í lokaverkefni okkar lá beinast við að vinna það í sameiningu. Við vorum sammála um að hér vantaði fræðslu um heilsu og mikilvægi heilsu- samlegs lífernis fyrir þennan hóp, sem þarf ekki síður en aðrir á henni að halda. Út frá þessum pælingum gerðum við bækling með einföldum og auðskildum upplýsingum, sem meiningin er að verði aðgengilegar á vefsíðunni,“ segja þær. Þær fengu kærasta Helgu Sjafnar til að setja vefsíðuna upp og kunningjakonu sína til að teikna táknræna mynd fyrir viðfangsefni hverrar síðu, t.d. mataræði, svefn, tennur, sjón og heyrn, kynlíf, of- beldi og sitthvað fleira. Textinn er mjög knappur, bara kjarni málsins, engar vífilengjur: „Það getur verið vont fyrir líkamann að vera of þungur. Mikilvægt er að fylgjast með blóðþrýstingnum og vigtinni. Þú þarft að passa þig að hreyfa þig og borða hollt,“ segir til að mynda um ofþyngd. Valdefling og ábyrgð „Lykilorðið og leiðarstef okkar var valdefling, sem felur í sér að auka markhópi okkar, ef við getum kallað hann svo, færni í sínu dag- lega lífi og beina sjónum hans að ýmsum þáttum sem lúta að heilsu- farinu,“ útskýra Helga Sjöfn og Kristín Helga. Verkefnið blés svolítið út þegar þeim stöllum hugkvæmdist að gera heilsuvegabréf og félagsfærnisögur einnig aðgengilegar á vefsíðunni. Eftir að hafa ráðfært sig Gerði Aa- got Árnadóttur heimilislækni voru þær sannfærðar um að verkefnið gæti komið mörgum til góða. „Tilgangurinn er fyrst og fremst að gera fólki með þroska- hömlun kleift að taka ábyrgð á eigin heilsu eins og framast er kostur og auka um leið öryggi þess gagnvart heilbrigðisþjónustunni. Niðurstöður rannsókna benda til þess að fatlaðir fái ekki alltaf þá heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa og að aðstoðarfólk geti ekki alltaf ráðið í þarfir þeirra. Alls konar misskilningur getur komið upp, sérstaklega þegar í hlut á fólk sem getur illa tjáð sig eða tjá- ir sig með óhefðbundnum leiðum. Stundum er eins og heilbrigðis- starfsfólk sé hrætt við að nálgast það og beini frekar spurningum til aðstoðarfólks, jafnvel þótt ljóst sé að skjólstæðingur þess sé fullfær um að tjá sig.“ Með passa í vasa til öryggis Vegna ýmiss konar tjáskipta- vanda kemur fólki með þroskahöml- un vel að eiga sitt eigið heilsuvega- bréf, sem hægt er að kippa með til læknisins eða hafa einfaldlega alltaf tiltækt í vasanum til öryggis. „Í fyllingu tímans verður hægt að nálgast vegabréfið á vefsíðunni og skrá upplýsingar í þar til gert pláss. Hver og einn hefur í hendi sér hversu ítarlegar upplýsingar hann gefur, en við gefum svigrúm fyrir að í vegabréfinu komi meðal annars fram helstu persónuupplýsingar, nöfn tengiliða, sjúkdómsgreining, lyf, ofnæmi og nokkuð sem okkur finnst mjög mikilvægt; lýsing á því hvernig viðkomandi tjáir sig – með orðum, látbragði, hljóðum eða svip- brigðum. Aftast í vegabréfinu er eyðublað um breytingar sem verða á lyfjum eða öðru sem tengist heils- unni.“ Raunar eru báðar á því að heilsuvegabréf í svipuðum dúr gæti gagnast öllum til að tryggja að þeir fái rétta umönnum lendi þeir í að- stæðum þar sem þeir eru ekki í standi til að tjá sig. Heilsupassi fyrir fólk með þroskahömlun Heilsuupplýsingabæklingur og heilsuvegabréf sniðin að þörfum fólks með þroska- hömlun verða aðgengileg á netinu um leið og Helga Sjöfn Hrólfsdóttir og Kristín Helga Magnúsdóttir hafa skilað af sér sameiginlegu lokaverkefni til bakkalár- gráðu í þroskaþjálfafræði í Háskóla Íslands. Heilsan mín Framsetningin er einföld og textinn knappur og auðskilinn. Aðdáendur Stjörnustríðsmyndanna eru í essinu sínu í dag og fagna al- þjóðlega Star Wars-deginum með pompi og prakt um allan heim, marg- ir hverjir í fullum skrúða. Fyrstu skipulögðu hátíðahöldin í tilefni dagsins voru haldin 2011 í kvik- myndahúsi í Toronto í Kanada og síð- an hefur dagurinn fest sig í sessi sem hátíðsdagur. Til marks um víðtækan áhuga má geta þess að á þessum degi í fyrra horfðu geimfarar í Al- þjóðlegu geimstöðinni á allar mynd- irnar í tilefni dagsins. Það er engin tilviljun að 4. maí varð fyrir valinu sem hinn alþjóðlegi Star Wars-dagur því eins og öllum Stjörnustríðsaðdáendum er kunnugt um vísar dagsetningin 4. maí (e. May the Fourth) til þekktrar setningar í myndunum, „May the Force be with you“ (megi mátturinn vera með þér). Örlítil afbökun þó á ferðinni. Nexus lætur ekki sitt eftir liggja í hátíðahöldunum því þar verða allar Star Wars-vörur seldar með afslætti. Enn fremur verður Búninga- samfélagið 501 st. Icelandic Outpost með kynningu í búningasalnum. Þá ætla starfsmenn að kryfja myndirnar sjö til mergjar fyrir viðskiptavini og aðra áhugasama. Þó er bannað að ræða um Star Wars Holiday Special. Gleðilegan Star Wars-dag! Alþjóðlega Star Wars-deginum fagnað víða um heim Morgunblaðið/Golli Svarthöfði Tilvalið tækifæri að bregða sér í líki eftirlætis Star Wars-hetjunnar. Megi mátturinn vera með þér Samtal um „sjálfsælusögu“ er yfir- skrift bókakaffis kl. 20 í kvöld í Gerðu- bergi. Hallgrímur Helgason fjallar um sjálfsævisögu sína Sjóveikur í München og ræðir við Gunnþórunni Guðmundsdóttur bókmenntafræðing, sem hefur sérhæft sig í æviskrifum af þessu tagi. „Að vera ófæddur listamaður er eins og að vera inní skápnum en hafa enga hugmynd um það hvað samkyn- hneigð er. Þú veist að eitthvað býr innra með þér en alls ekki hvað,“ segir höfundurinn. Rætt verður við Hallgrím um hans eigin tilurð, níu mánaða ein- mana meðgöngu í kaldastríðskaldri stórborg á meginlandinu, með tilheyr- andi efasemdum, vanlíðan og sót- svartri morgunógleði. Að auki verður fjallað um þann eilífðarsjúkdóm sem ungdómsárin eru og öll þau sjúkdóms- einkenni sem fylgja. Er virkilega svona vont að vera ungur? Var virkilegt svona leiðinlegt að vera til árið 1981? Og hvernig skrifar maður skemmtilega bók um leiðinlega tíma? Bókakaffi í Borgarbókasafninu Gerðubergi „Sjálfsælusaga“ Hallgríms Morgunblaðið/Eggert Rithöfundur Hallgrímur Helgason Gripur maímán- aðar í Þjóð- minjasafninu er eftirlíking úr blikki af loft- skipi, sem Sigríð- ur Björnsdóttir Blöndal keypti handa syni sínum í versluninni Thorn- gren á Strikinu í Kaupmannahöfn ár- ið 1910. Í skráningu á Sarpi segir m.a.: „Að forminu til er leikfangið sívalt í laginu. Það er gult með litlum rauð- um þyrlum, einni fremst og einni á sitthvorri hlið. Hægt er að draga loft- farið upp og snúast þá þyrlurnar, bandspotti hangir neðan í og mátti binda hann við eitthvað t.d. ljósa- krónu og sigldi eða flaug þá loftfarið um í hringi. Leikfangið var framleitt af þýska leikfangaframleiðandanum Ernst Paul Lehmann Patentwerk. Fyrstu loftskipin voru smíðuð af þýska greifanum Ferdinand von Zep- pelin í kringum aldamótin 1900 og voru nýtt af Þjóðverjum til hernaðar í fyrri heimsstyrjöldinni. Loftskipið Graf Zeppelin var stærsta loftskipið sem smíðað var, en smíði þess lauk árið 1928. Það flaug tvisvar til Íslands; 17. júlí 1930 og 1. júlí 1931. Gripur maímánaðar í Þjóðminjasafninu Leikfang Þýski greifinn von Zeppelin smíðaði fyrstu raunverulegu loftskipin. Eftirlíking úr blikki af loftskipi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.