Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
við gætum unnið þó lokamín-
úturnar væru óumflýjanlegar
fyrr en maður vildi. Við nánari
kynni upplifði ég kraftinn og
lausnarmiðaðan málflutning
þessa stóra og föngulega
manns, sem ekki fór troðnar
slóðir í lífinu og var stefnufast-
ur í málflutningi, útsjónarsamur
og tillögugóður. Ragnar Örn var
fylginn sér og enginn já-maður í
samskiptum. Ég kunni vel við
hreinskiptar skoðanir hans sem
hann setti fram á kjarnmikinn
og sannfærandi hátt og lét ekki
skammtíma vinsældir þvælast
fyrir sér. Áhugaverðar umræð-
ur á skrifstofu hans og Stefáns
Bjarkasonar voru oft heitar
þegar rætt var um íþróttalífið í
Reykjanesbæ eða Ljósanótt,
sem var oftar en ekki viðfangs-
efni okkar félaga þann góða
tíma sem við unnum saman. Það
fór ekki framhjá neinum manni
þegar Ragnar Örn var á ferð-
inni. Þessi stóri og stæðilegi
maður, dökkur á brún og brá og
þessi stóra rödd var punkturinn
yfir i-ið þegar ég velti hollning-
unni á Ragnari Erni fyrir mér.
Hann gat gengið ákveðið fram
og fastur fyrir þegar klára
þurfti mál, eiginleiki sem for-
ystumaður í félagasamtökum
þarf að búa yfir og ég kunni vel
við þann eiginleika hans. Þegar
vinnufélaginn varð vinur kom í
ljós hlýr og góður maður sem
stóð með sínum, elskaði fjöl-
skyldu sína og fylgdist vel með
gengi barna sinna og barna-
barna. Þar var hann hlekkurinn
á milli kynslóðanna sem aldrei
brást og nú stendur fjölskyldan
saman sem aldrei fyrr. Nú er
tími til að næra kærleikann um
góðar minningar með því að
hugsa um fallegar myndir sam-
verunnar og hvílast með þeim.
Ég hugsa um ferð okkar hjóna
á Þjóðhátíð í Eyjum með góðum
vinum fyrir nokkrum árum en
þar kynntist ég annarri hlið á
Ragnari Erni og Siggu sem ég
geymi á góðum vöxtum í minn-
ingabókinni okkar, sem er full
af glettni og trausti sem fylgdi
vináttu okkar. Samstarfið á
pólitískum vettvangi var líka
skemmtilegt enda sló í brjósti
hans sterkt hjarta sjálfstæðis-
mannsins sem fór alltaf alla leið
í baráttunni. Erfiður sjúkdómur
hefur á skömmum tíma unnið
það mein sem aldrei varð bætt.
Röddin hvetjandi og sterk náði
ekki þrátt fyrir mikinn vilja að
tala þunga stöðu í erfiðum sjúk-
dómi til sigurs. Lífsleik Ragn-
ars Arnar lauk langt fyrir eðli-
legan leiktíma og eftir sitja
ljúfu minningarnar um góðan
dreng. Ég áttaði mig á því að
hann kunni að lesa leikinn og
vissi stöðuna þegar við áttum
notalega stund saman skömmu
fyrir andlátið. Ragnar Örn hafði
með sinni sterku og miklu rödd
fengið heila þjóð til að trúa á
sigur í vonlausri stöðu en í hans
eigin lífsleik brast röddin fyrir
stöðunni. Votta Siggu, börnum
þeirra og barnabörnum og allri
fjölskyldunni djúpa samúð.
Ásmundur Friðriksson.
Það var mikil gæfa fyrir unga
stúlku, sem var að feta sín
fyrstu spor í fjölmiðlum, að
lenda í læri hjá Ragnari Erni.
Hann sem hafði fína reynslu
eftir störf hjá Ríkisútvarpinu,
hafði þá þolinmæði sem þurfti
gagnvart lærlingnum mér. Sam-
starf okkar var skemmtilegt og
farsælt og leiddi til góðrar
reynslu í fréttatengdum viðtals-
þáttum sem mér fannst það
allra skemmtilegast við vinnu í
útvarpi, Síðdegi á Suðurnesjum.
Ágreiningur var lítill og kenndi
sú unga miðaldurskvillum um.
Á endanum fékk Ragnar Örn
viðurnefnið Miðaldurskvillinn
en mig kallaði hann aldrei ann-
að en Svei. Bæði fædd undir
merki nauts umbárum við
hrekki hvors annars og þetta
var allt á léttu nótunum, enda
skapgerðin þannig.
Vinnan hjá útvarpi Bros og
Suðurnesjafréttum var líka ein
sú skemmtilegasta sem hægt
var að hugsa sér og hefur verið
rifjuð upp ótal sinnum sl. 20 ár,
meðal annars í matsal Ráðhúss
Reykjanesbæjar þar sem við
störfuðum aftur saman frá
sumri 2013, þó á ólíkum vett-
vangi væri.
Þegar Ragnar hætti störfum
á síðasta ári fannst honum alveg
koma til greina að fara að starfa
aftur hjá fjölmiðli. Hann hafði
greinilega enn ástríðu fyrir því
starfi og enn bar samvinnu okk-
ur á góma. En því miður urðu
verkefnin önnur, veikindi sem
hann þurfti á endanum að lúta í
lægra haldi fyrir. Hafðu þökk,
Ragnar Örn, fyrir góð viðkynni
og skemmtilega samvinnu.
Ástvinum sendi ég dýpstu
samúðarkveðjur,
Svanhildur Eiríksdóttir.
Fallinn er frá góður drengur
– Ragnar Örn Pétursson. Stórt
skarð er skilið eftir í hópi okkar
sjálfstæðismanna í Reykja-
nesbæ þar sem Ragnar Örn
hefur gegnt trúnaðarstörfum
um áratuga skeið. Ragnar var
allt í öllu, ekki bara í flokks-
starfinu heldur alls staðar þar
sem hann tók þátt. Það var gott
að vinna með honum, hann var
húmoristi sem var lunkinn að
leiða saman ólík sjónarmið.
Tryggur og traustur félagi sem
sárt verður saknað.
Á þessum degi er mér efst í
huga þakklæti til Ragnars Arn-
ar – fyrir framlag hans til
flokksstarfsins, fyrir samstarfið
og fyrir góða vináttu.
Við Guðjón sendum Sigríði og
fjölskyldunni allri okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Ragnars Arnar Pét-
urssonar.
Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Minn kæri vinur og félagi,
Ragnar Örn Pétursson, er fall-
inn frá eftir stutt og erfið veik-
indi. Leiðir okkar Ragnars lágu
saman í starfi Kiwanisklúbbsins
Keilis. Ragnar var mjög hug-
myndaríkur og úrræðagóður fé-
lagi og barðist fyrir kiwanishug-
sjóninni, var með stórt
Kiwanishjarta.
Ragnar Örn gekk til liðs við
Kiwanishreyfinguna árið 1991
og hafði því verið starfandi í
hreyfingunni í 25 ár. Hann hafði
gegnt flestum embættum í Keili
og frá 1999 má segja að hann
hafi verið viðloðandi umdæm-
isstjórn með nokkrum hléum.
Hann var formaður þingnefndar
1999-2000, ritstjóri Kiwanis-
frétta, upplýsinga- og blaða-
fulltrúi, svæðisstjóri Ægissvæð-
is og umdæmisstjóri
Kiwanisumdæmisins Ísland –
Færeyjar 2011-2012 og sat í
Evrópustjórn á sama tíma. Á
þessu starfsári var hann for-
maður Kynningar og markaðs-
nefndar. Ragnar þekkti því vel
til innviða hreyfingarinnar. Eft-
ir að hann veiktist í desember
sl. gat hann ekki sótt fundi hjá
okkur en í tíðum heimsóknum
mínum til hans var ávallt rætt
um málefni klúbbsins og hreyf-
ingarinnar.
Ragnar var mikill félagas-
málamaður og lét til sín taka á
hinum ýmsum sviðum sam-
félagsins. Ragnar og Sigga voru
samhent hjón, hann var mikill
fjölskyldumaður og var stoltur
af sínu fólki.
Vinátta okkar styrktist með
árunum og áttum við ánægju-
legar samverustundir bæði hér
heima og erlendis.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Það er stórt skarð höggvið í
klúbbinn okkar við fráfall öflugs
félaga, við þökkum Ragnari
Erni Péturssyni það mikla starf
sem hann hefur unnið fyrir
Kiwanishreyfinguna. Við Keilis-
félagar höldum ótrauðir áfram
og höldum merkjum Ragnars
Arnar Péturssonar á lofti um
ókomna tíð.
Við sendum Siggu og fjöl-
skyldunni allri okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Andrés K. Hjaltason,
forseti
Kiwanisklúbbsins Keilis.
Kveðja frá KSÍ
Knattspyrnuhreyfingin sér á
eftir góðum starfskrafti þegar
Ragnar Örn Pétursson er
kvaddur. Ungur hóf Ragnar
Örn knattspyrnuiðkun hjá Val
og lék þar upp alla yngri flokka.
Ragnar Örn valdi sér starf sem
veitingamaður og starfinu fylgdi
vaktavinna sem fór ekki vel
saman við að æfa knattspyrnu
af fullum krafti.
Ragnar Örn skildi þó ekki við
knattspyrnuna, heldur tók hann
knattspyrnudómarapróf og varð
fljótt einn af kunnustu dómur-
um landsins. Hann varð dómari
í 1. deild árið 1983 og var einn
af afkastamestu dómurum
landsins á árunum 1983-1985,
eða þar til að hann fluttist til
Keflavíkur.
Þó Ragnar Örn hafi ákveðið
að hvíla flautuna var knatt-
spyrnan honum alltaf hugleikin.
Hann varð fljótlega mikill
íþróttafrömuður í Keflavík og
var til dæmis formaður Íþrótta-
bandalags Keflavíkur í sjö ár,
1988-1995. Hann hélt alla tíð
tryggð við Knattspyrnusam-
band Íslands og vini sína dóm-
arana og starfaði lengi vel sem
eftirlitsmaður á leikjum, eða allt
þar til hann kvaddi völlinn fyrir
fullt og allt hinn 29. apríl sl.
Ragnar Örn var einnig
þekktur sem fréttamaður og
starfaði sem afleysingamaður á
Vísi og sem umsjónarmaður
íþrótta á Tímanum 1980-1982.
Þá starfaði hann einnig við hlið
Hermanns heitins Gunnarsson-
ar á Ríkisútvarpinu 1983-1985.
Eftir að hann flutti til Keflavík-
ur var hann fréttamaður RÚV á
Suðurnesjum í 15 ár og var um
tíma útvarpsstjóri BROS í
Keflavík.
Knattspyrnuhreyfingin þakk-
ar Ragnari Erni fyrir vináttu og
góð störf. Eiginkonu hans og
fjölskyldu eru sendar innilegar
samúðarkveðjur.
Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ.
Hinsta kveðja
frá Einherjum
Þegar okkur barst andláts-
fregn félaga okkar og samherja,
Ragnars Arnar Péturssonar,
kom fregnin í sjálfu sér ekki á
óvart, hafandi fylgst með harðri
baráttu Ragnars við illvígan
sjúkdóm. Eðlilega staldraði
maður þó við, minningarnar
helltust yfir. Kiwanisumdæmið
Ísland-Færeyjar sér á bak góð-
um dreng.
Ragnar Örn var Kiwanis-
félagi eins og við viljum hafa þá.
Hugsjónamaður með stórt Kiw-
anishjarta, þrautseigur talsmað-
ur þeirra hugsjóna sem hreyf-
ingin stendur fyrir. Reyndur
félagsmálamaður, ósérhlífinn í
Kiwanisstarfi sínu, fylginn sér
og gaf sig allan í verkefni líð-
andi stundar, alltaf boðinn og
búinn til að veita góð ráð eða
hjálparhönd. Hreyfingin kallaði
að sjálfsögðu eftir auknum
starfskröftum öflugs félaga og
gegndi Ragnar margvíslegum
ábyrgðarstörfum fyrir svæði og
umdæmi.
Ekki kom á óvart að hann
var í fyllingu tímans valinn til
æðstu trúnaðarstarfa fyrir
hreyfinguna innan lands og ut-
an.
Ragnar var einlægur Keilis-
félagi og sem slíkur varð hann
umdæmisstjóri Kiwanisumdæm-
isins Ísland-Færeyjar starfsárið
2011-12.
Kjörorð Ragnars sem um-
dæmisstjóra var „Gaman sam-
an“. Þessi orð hafa meitlað sig í
starf hreyfingarinnar og heyr-
ast oft í ræðum eða ritum félag-
anna. Leiðarljós hans sem um-
dæmisstjóra var því eðlilega
mikil áhersla á eflingu innra
starfs klúbbanna og að maður
sé manns gaman. Ragnar horfði
líka til framtíðar. Stefnumótun,
markaðs- og kynningarmál voru
honum hugleikin og þar naut
framsýni og hugmyndaauðgi
Kiwanisfélagans sín einkar vel
og á þeim vettvangi ætlaði hann
sér verk að vinna, en örlögin
gripu í taumana.
Einherjar, félagsskapur fyrr-
verandi umdæmisstjóra Kiwan-
is, kveður góðan félaga. Hann
hefur háð sína síðustu orrustu á
Vígríðarvöllum og gleðst ei
lengur saman með oss í Val-
höllu. Skarð er fyrir skildi, en
eftir lifir minningin um það sem
var og hefði getað orðið.
Einherjar færa Siggu og fjöl-
skyldu Ragnars, ástvinum hans
og Keilisfélögum hugheilar og
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Fyrir hönd Einherja,
Óskar Guðjónsson goði.
Kveðja frá Sunddeild
Ármanns
Í dag kveðjum við góðan og
virkan félaga, Ragnar Örn Pét-
ursson. Það má segja að hann
hafi fetað í fótspor föður síns og
bróður. Ragnar iðkaði sundk-
nattleik í tæp 20 ár og vann
með liði sínu alla titla sem í boði
voru þá. Hann var formaður
Sunddeildarinnar á árunum
1974-1978 og reif hann upp
deildina sem var í smá lægð á
þeim tíma með frumlegum fjár-
öflunarleiðum eins og honum
var einum lagið, t.d. fékk hann
lánaðan landskika á Blikastöð-
um, hann síðan plægður og
ræktaðar kartöflur og kál. Þess
má til gamans geta að þeir feðg-
ar spiluðu síðast sundknattleik
saman á öldungamóti 1987.
Sunddeild Ármanns kveður
góðan dreng, sem fór frá okkur
allt of snemma og sendir að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd Sunddeildar Ár-
manns,
Pétur Pétursson.
Fallinn er frá, langt um aldur
fram, félagi okkar Ragnar Örn.
Hann var um árabil stjórnar-
maður í BSRB og gegndi fjölda
trúnaðarstarfa fyrir hönd
bandalagsins. Við sem áttum
samleið með honum á þeim
vettvangi vorum svo heppin að
fá að kynnast hæfileikum hans
sem nýttust vel í okkar störfum.
Hlýtt viðmót, rík réttlætis-
kennd og hæfileikar til að setja
sig í spor annarra einkenndu
hann öðru fremur. Ragnar hafði
einstakt lag á að varpa nýju
ljósi á hlutina og þannig dýpk-
aði hann umræðuna og fékk
aðra til að skoða málið frá öllum
hliðum. Mest einkennandi fyrir
Ragnar var þó án efa húmorinn,
óháð því hversu krefjandi um-
ræða eða verkefni gátu orðið þá
hafði hann einstakt lag á að
létta brúnir og andrúmsloft
meðal samstarfsfélaga.
Þessir kostir hans voru
grunnurinn að gæfuríki starfi
hans að málefnum launafólks,
hvort heldur sem var sem for-
maður Starfsmannafélags Suð-
urnesja eða ýmsum trúnaðar-
störfum á vettvangi BSRB.
Með þessum orðum þökkum
við fyrir samfylgdina og kveðj-
um Ragnar Örn með söknuði,
virðingu og þakklæti fyrir störf
hans.
Aðstandendum vottum við
okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd BSRB,
Elín Björg Jónsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra
föður, tengdaföður, afa og langafa,
HAFSTEINS ÁGÚSTSSONAR
frá Varmahlíð,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hraunbúða og Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir frábæra
umönnun og hlýjan hug.
.
Sara Hafsteinsdóttir Þórólfur Guðnason
Svava Hafsteinsdóttir Ólafur H. Sigurjónsson
Aðalheiður Hafsteinsdóttir Sigurður Ingi Ólafsson
Ágústa Hafsteinsdóttir Ástþór Jónsson
Lára Hafsteinsdóttir Einar Birgisson
Örn Hafsteinsson
Árni Hafsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýju vegna andláts og útfarar yndislegu
mömmu okkar,
ERLU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Grundargili, Reykjadal.
.
Ingólfur Ingólfsson
Óskar Óli Jónsson Erla Sigurðardóttir
Kristján Jónsson BingCui Qi
Lilja Sigríður Jónsdóttir Gísli Sverrisson
Guðný Jónsdóttir Kári Ragnarsson
og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGRÚN KARLSDÓTTIR,
lést á elliheimilinu Grund síðastliðinn
sunnudag.
.
Karl Stefán Hannesson, Emilía Kjærnested,
Ásthildur Hannesdóttir, Baldur Ellertsson,
Lilja Hannesdóttir, Stefán Þorleifsson,
María Sigrún Hannesdóttir,
Gunnar Þór Hannesson,
Hannes Alfreð Hannesson.
Systir okkar, mágkona og frænka,
HELGA SIGURLÍNA KARLSDÓTTIR,
Lækjartúni 16,
Akureyri,
lést þann 29. apríl á Dvalarheimilinu Hlíð.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 11. maí klukkan 13.30.
.
Erna T. Karlsdóttir,
Ragnheiður S. Karlsdóttir,
Jón Emil Karlsson,
Svala Karlsdóttir,
Sveinn Karlsson
og fjölskyldur.