Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 „Það kemur bara í ljós þegar ég sest við hljóðfærið. Það er svo mikið af fyrir fram ákveðnum tónlistarflutn- ingi í samfélaginu að ég ákvað að taka þetta að mér, sjá um hið óræða. Bæði til að gera áhorfendur órólega og líka mig. Á góðan hátt,“ segir Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður, en hann kemur fram einn síns liðs á Blikk- trommunni í Hörpu í kvöld kl. 20. Inntur eftir því hvort hann sé ekki órólegur yfir því að vera ekki búinn að ákveða neitt á efnisskrá tón- leikanna segir hann ekki svo vera. „Maður verður að halda áfram með hugrekki að vopni“ „Það verður að sigla inn í óvissuna með vissu,“ segir hann kíminn. Davíð Þór hefur notað þessa nálg- un í tónlistarsköpun sinni um nokkurt skeið. „Ég byrja með einhvern út- gangspunkt, t.d. músíklegan, ein- hvers konar áferð eða kraft. Þegar maður fer af stað kemur eitthvað til manns ef maður er heppinn og fer í einhverjar áttir. Stundum staldrar maður við á þekktum stöðum og fer að tengja saman. Þetta er rannsókn í allar áttir. Maður verður að halda áfram með hugrekki að vopni,“ segir Davíð Þór til útskýringar nánar á sköpunarferlinu. Hann notaði þessa aðferð við seinni sólóplötu sína, Improvised Piano Works, sem kom út árið 2012. Hann bendir á að það skipti einnig máli hverjir mæti á tónleikana og hvernig stemning verði. „Það getur alltaf ýtt við einhverjum punktum hjá manni.“ Að þessu sögðu er hann snöggur að taka fram að hann sé hvort tveggja þakklátur í sínu „siglfirska drengs- hjarta“ fyrir að vera boðið að koma fram á Blikktrommunni og einnig ef einhverjir vilji mæta á tónleikana. Davíð Þór segir Blikktrommuna vera einstaklega góðan vettvang þar sem tónlistinni sé leyft að tala, sama hvað hún kallist. Davíð Þór er vægast sagt fjölhæfur tónlistarmaður, jafnvígur á píanóleik, tónsmíðar, spuna og hljómsveitar- stjórn auk þess sem hann leikur á ógrynni hljóðfæra. Hann hefur upp á síðkastið verið áberandi í hlutverki sínu í hljómsveitinni ADHD og í sam- starfi við myndlistamanninum Ragn- ar Kjartansson. Davíð Þór hefur leik- ið með fjölda hljómsveita, þar á meðal djasstríóinu FLÍS. Hann hefur leikið með Jóel Pálssyni, Tómasi R. Ein- arssyni og mörgum góðum tónlistar- mönnum frá öllum geirum tónlistar. Hann hefur leikið á Jazzhátíð Reykjavíkur svo og hátíðum í Þýska- landi, Frakklandi, Færeyjum, Sví- þjóð, Danmörku, Noregi og Finn- landi. Uppfinningasemi og spuni Spuna og uppfinningasemi hefur hann í fyrirrúmi, þar sem allt er leyfi- legt og hvergi eru svo há grindverk að ekki sé hægt að skjótast örlítið út- fyrir og sækja hið óræða. Blikktromman er tónleikaröð sem hóf göngu sína í haust. Tónleikarnir eru haldnir fyrsta miðvikudag í hverj- um mánuði. Markmiðið er að bjóða upp á tónleika með nokkrum fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar í Hörpu, besta tónlistarhúsi þjóð- arinnar. Að Blikktrommunni standa Borgar Magnason og Eva Ein- arsdóttir. thorunn@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Spuni „Það kemur bara í ljós þegar ég sest við hljóðfærið,“ segir tónlistarmaðurinn Davíð Þór um efnisskrá tónleikanna. „Verður að sigla inn í óvissuna með vissu“  Davíð Þór Jónsson kemur fram á Blikktrommunni í kvöld „Útgangspunktur sýningarinnar er rannsóknarferð sem ég fór í til Búlg- aríu,“ segir myndlistarkonan Ther- esa Himmer um verkin á sýningu hennar, Recollection, sem verður opnuð í Gallerí Gróttu á Eið- istorgi í dag, mið- vikudag klukkan 17. Theresa, sem nam myndlist við Whitney Museum Independent Study Program og School of Vis- ual Arts í New York og arkitekt- úr við arkitektaskólann í Árósum, hefur búið og unnið að list sinni hér á landi um árabil. Á þessari sýningu hennar gefur að líta nýja verkaheild sem sam- anstendur af ritverki samnefndu sýningunni og tveimur ljós- myndaseríum sem tengjast inn- byrðis. Saman mynda þessir þrír hlutar verksins eins konar tilraun um ferðalagið til Búlgaríu, þar sem listakonan vinnur með minningar þar sem arkitektónískt rými og myndrými mætast. Hún segir að í aðferðum tengdum því að mætast, deila, skilja að og gleyma finni verk- in jafnvægi á milli tilrauna með strúktúr og ljóðræna endurspeglun. Bókverkið er kjarninn Theresa hélt í rannsóknarferð til Búlgaríu í fyrravor í boði Ruse Art Gallery í borginni Ruse og vann í kjölfarið í samvinnu við Arnar Frey Guðmundsson, grafískan hönnuð, ritverkið sem sýnt er og gefið út í 250 eintökum. Er útgáfan studd af Statens Kunstfond í Danmörku. „Ferðin til Búlgaríu er útgangs- punkturinn en á sýningunni breiðist hún út í víðari pælingar um rými, staðsetningu og minningar,“ segir Theresa. „Bókverkið er kjarninn. Það fjallar um ákveðinn stað í Búlgaríu, ákveðna menningu og ákveðið pólit- ískt landslag, mjög ólíku okkar skandinavíska umhverfi., Jafnframt vona ég að hægt sé að skilja verkið í víðara samhengi. Textinn í bókinni er bæði á ensku og búlgörsku og byggir á samtölum sem ég tók við fólk sem tengdist á ýmsan hátt safninu sam bauð mér til landsins. Ég bauð fólki að deila með mér minningum og sögum um safn- ið; það var leið fyrir mig til að byrja að skilja staðinn sem ég var komin á, en líka tilraun til að búa til portrett af sýningarstaðnum sem félagsleg- um strúktúr, félagslegu rými sem verður til vegna notkunarinnar.“ Ólík sjónarhorn og raddir Theresa segir afar ólíkt fólk koma að þessu safni og það endurspeglast í samtölunum sem birtast í bókinni. „Þetta voru til dæmis skólakrakkar sem komu í safnið vegna námskeiðs í skólanum, starfsfólk safnsins, fyrr- verandi ræstingakonur sögðu sínar sögur, og gegnum þessi ólíku sjón- arhorn, ólíku raddir, verður til mjög fjölbreytt mynd af staðnum og því- sögulega samhengi sem hefur mótað hann.“ Theresa hljóðritaði samtöl og frá- sagnir og naut aðstoðar sýning- arstjóra búlgarska safnsins. „Sumir vildu segja mér sögur, aðrir eiga samtal, þar birtist líka mikill fjölbreytileiki,“ segir hún. „Síðan voru upptökurnar allar skrifaðar niður og þýddar á ensku af þýðanda í Sofiu sem ég vann með, orð fyrir orð, og ég vann endanlegt verk úr því. Ég vona að fólk upplifi ritverkið sem áhugavert í sjálfu sér en mér fannst mjög gaman að vinna að því, og mér þótti mjög vænt um það hvað fókið var hreinskilið og reiðubúið að deila með mér reynslu sinni, sögum og upplifun.“ Tvær ljósmyndaraðir Ljósmyndaraðirnar tvær sem Theresa sýnir einnig byggja á ljós- myndum sem hún tók í ferðinni til Búlgaríu og hefur unnið úr áfram. „Önnur serían byrjaði á að fjalla um safnið en varð meira abstrakt, um rýmið og tengingar milli arkit- ektónísks strúktúrs og strúktúrsins í ljósmyndapappírnum,“ segir hún. „Í hinni seríunni er hreyfing út frá galleríinu, út í borgina og náttúruna í kringum safnið og borgina.“ Hún segir þessar myndir kunni að virðast samklipp við fyrstu sýn, en séu aftur á móti ómeðhöndlaðar ljósmyndir en glerið yfir þeim í römmunum hafi verið sandblásið og mött form mótuð í það að hluta. „Þannig myndast ólík lög í myndinni og innrömmun rýmis og minninga tekur einnig á sig form og strúktúr.“ Verk Theresu hafa verið sýnd víða hér og erlendis, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arborg, Westfälische Kunstverein í Þýskalandi og í Soloway Gallery og Art in General í New York. Hún hef- ur hlotið ýmis verðlaun og styrki, m.a. frá Myndlistarsjóði Íslands, Statens Kunstfond og The Americ- an-Scandinavian Foundation. efi@mbl.is Skapaði verk til að skilja staðinn  Theresa Himmer sýnir í Gallerí Gróttu Glerform Í annarri ljósmyndaröð Theresu frá Ruse í Búlgaríu hefur glerið yfir myndunum verið sandblásið og mött form mótuð í það að hluta. Theresa Himmer 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 7/5 kl. 15:00 71.sýn Lau 21/5 kl. 15:00 74.sýn Sun 29/5 kl. 19:30 77.sýn Lau 7/5 kl. 19:30 72.sýn Lau 21/5 kl. 19:30 75.sýn Fim 12/5 kl. 19:30 73.sýn Lau 28/5 kl. 19:30 76.sýn Sýningum lýkur í vor! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 4/5 kl. 19:30 Mið 18/5 kl. 19:30 Mið 1/6 kl. 19:30 Mið 11/5 kl. 19:30 Mið 25/5 kl. 19:30 Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram! Play (Stóra sviðið) Þri 31/5 kl. 19:30 Listahátíð í Reykjavík AUGLÝSING ÁRSINS –★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Mið 4/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 14:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Fim 5/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Sun 22/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 14:00 Þri 24/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Mið 25/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Þri 10/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Mið 11/5 kl. 20:00 Lau 28/5 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Fim 12/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Lau 14/5 kl. 14:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Þri 17/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Mið 18/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00 Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar Auglýsing ársins (Nýja sviðið) Fim 5/5 kl. 20:00 9.sýn Fös 13/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Fös 6/5 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 20:00 Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur eftir Tyrfing Tyrfingsson Vegbúar (Litla sviðið) Fös 6/5 kl. 20:00 Síðasta sýning Kenneth Máni (Litla sviðið) Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn Kenneth Máni stelur senunni Persóna (Nýja sviðið) Mið 4/5 kl. 20:00 Fim 12/5 kl. 20:00 Sun 22/5 kl. 20:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 20:00 Tvö ný dansverk eftir þrjá danshöfunda Hamlet litli (Litla sviðið) Mið 4/5 kl. 10:00 Mán 9/5 kl. 10:00 Fös 6/5 kl. 10:00 Þri 10/5 kl. 10:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.