Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 ✝ Guðbjörg Ár-sælsdóttir fæddist í Reykjavík 30. júní 1939. Hún lést 24. apríl 2016 á líknardeild LSH í Kópavogi. Foreldrar Guð- bjargar voru Lilja Vilhjálmsdóttir frá Miðhúsum í Grinda- vík, f. 16. desember 1909, d. 30. apríl 2000, og Ársæll Valdimar Svein- björnsson frá á Eiði, Gerðahr., Gull., f. 16. september 1910, d. 26. júlí 1974. Systkini Guð- bjargar voru 1) Sigurbjörg Stef- ánsdóttir, f. 18. júní 1930, d. 17. apríl 2012, 2) Bára Þórarins- dóttir, f. 2. júlí 1934 (sammæðra), 3) Halldór Reynir Ársælsson, f. 17. júní 1936, d. 16. nóvember 2006 (samfeðra), og 4) Svein- björn Ársælsson, f. 1. febrúar 1941, d. 26. júlí 1974 (alsystkin). Eftirlifandi eiginmaður Guð- bjargar er Magnús Theodór Magnússon (Teddi), f. 8. janúar 1935. Börn þeirra eru 1) Ársæll Magnússon, f. 27. ágúst 1956. sjoppu, við skúringar og fleira. Árið 1974 fór hún í vetrarlangt nám í verslunar- og skrifstofu- störfum. Árið 1975 hóf hún störf hjá Ferðamálaráði. Árið 1982 hóf hún störf sem ritari í sam- gönguráðuneytinu og var skipuð deildarstjóri þar árið 1985 þar sem hún starfaði þar til hún lét af störfum árið 2006. Símenntun af ýmsu tagi var Guðbjörgu mikilvæg, hún sótti m.a. enskunámskeið í Englandi 1979 og sænskunámskeið í Sví- þjóð 1983 auk fjölda annarra námskeiða. Félagsstörf voru Guðbjörgu afar hugleikin, ekki síst þau sem tengdust störfum hennar. Hún tók þátt í að stofna Eldliljurnar, félag eiginkvenna brunavarða, og síðar lét hún til sín taka í EUMA (European Management Assistants). Hún heimsótti ráð- stefnur samtakanna erlendis og fór í kynnisferðir í tengslum við þær. Hún var einnig virk í Netinu (samskiptaneti kvenna á vinnu- markaði) frá 1987. Leikfimin var hennar helsta áhugamál sem hún stundaði af kappi í tæp 55 ár. Guðbjörg sýndi leikfimi á fjölmörgum fimleikamótum bæði hérlendis og erlendis. Útförin fer fram frá Nes- kirkju í dag, 4. maí 2016, klukk- an 11. Eiginkona hans var Sandra Remigis. Þau skildu. Börn þeirra eru Andri Edward, f. 1985, Atli Magnús, f. 1987, og Daði Evan, f. 1995. 2) Magnús Ingi Magnússon. Eiginkona hans er Analisa Monticello, f. 1972. 3) Dóra Magnúsdóttir, f. 1965. Eiginmaður hennar er Guðmundur Jón Guðjónsson, f. 1962. Börn þeirra eru: Kári, f. 1992, Lilja, f. 1997, Lára Guð- björg, f. 2007, Theodór, f. 2007, og Hjalti, f. 2009. Guðbjörg lauk gagnfræða- skólaprófi frá Skógaskóla árið 1954. Hún flutti 16 ára til Reykjavíkur og hóf störf í eld- húsinu á Landspítalanum. Hún kynntist tilvonandi eiginmanni sínum árið 1955 og varð þunguð af fyrsta barni þeirra. Þau gengu í hjónaband 15. desember 1956 og hefðu því fagnað 60 ára brúðkaupsafmæli síðar á árinu. Hún vann hlutastörf svo sem í Sorgin er svo kjánalega sjálf- hverf. Í veikindum mömmu skrif- aði ég margar minningagreinar þegar ég hjólaði til hennar eða frá, vitandi að leiðarlok hennar færðust sífellt nær. Minningarn- ar hrönnuðust upp; ég og mamma þegar ég var barn, þegar ég ung- lingur, þegar ég var ung kona á ferðalögum, þegar ég varð mamma sjálf, ég og mamma sem minn helsti ráðgjafi um allt, mamma sem kletturinn minn gegnum lífið. Mamma var alltaf nálæg; alltaf hluti var lífsmynd minni. Er enn og verður alltaf. Í veikindunum kynntist ég nýrri hlið á mömmu. Það kom mér ekki á óvart að hún tæki fregnum um yfirvofandi andlát af æðruleysi. Hún var þannig týpa, sá lógíkina í hlutunum og setti þá upp í skiljanlegt samhengi. Sjálf hafði hún misst litla bróður sinn þegar hann var aðeins 43 ára gamall, en hann lést frá þremur ungum sonum. Ég man að hún sagði upphátt að hún hefði átt að fara, ekki Svenni bróðir, því hennar börn voru uppkomin og hann var með svo ung börn. Ég var þá orðin tvítug og man hvað mér brá við þessi orð hennar því ég taldi mig bara alls ekki mega við því að missa hana. En hún hugsaði ekki þannig og með þenn- an samanburð við bróður sinn taldi hún sig heppna að hafa náð 75 ára aldri, sjá börnin sín verða fullorðin og hluta barnabarna að auki, að hafa verið aktív og geta sinnt mörgum af sínum helstu hugðarefnum allt fram til loka seinasta árs þrátt fyrir veikindi. Hún kenndi okkur margt um æðruleysi. Ég hef oft heyrt sam- ferðafólk hennar bera henni vel söguna en í veikindunum kom enn betur í ljós hversu vel hún hafði reynst fólki og hve mikils það mat hana. Því hún var einstök. Ég vil koma innilegum þökkum á fram- færi til allra sem heimsóttu hana og kvöddu seinustu vikurnar á dánarbeði. Hún mat þessar heim- sóknir mikils. Við hjónin eignuðumst tvíbura árið eftir að mamma hætti að vinna. Ég grínaðist með að tíma- setningin hefði verið þaulskipu- lögð því hún kom inn á heimilið nánast eins og þriðja foreldrið og var börnunum mínum öllum afar mikilvæg. Ég sagði stundum að jú jú, vissulega væri þetta svolítið erfitt en að við vorum svo mörg að sinna ungunum að þetta gengi alltaf upp. Þar sem ég gerði mér skýra grein fyrir því mikla vinnu- framlagi sem mamma lagði til gerðum við með okkur óformleg- an samning. Kannski meira í gríni en alvöru, og þó. Af því mamma var svona hjálpleg þá ætlaði ég að vera henni sama stoðin og styttan þegar hún yrði gömul. En hún varð bara aldrei gömul og ég get ekki staðið við minn hluta samn- ingsins. Mér finnst það svo órétt- látt. Við erum fleiri sem kveðjum hetjuna úr lífi okkar. Bræður mínir og mágkonur, barnabörnin syrgja ömmu sem var alltaf tilbú- in að horfa á þau koma fram, sýna listir eða segja henni sögur. Vin- konur mömmu missa góðan fé- laga sem gat hlustað og var alltaf til í eitthvað skemmtilegt. Missir föður míns er þó mestur. Eftir rúm 60 ár minntu þau á Yin og Yang. Þessar mögnuðu andstæð- ur sem halda hvor annarri saman. Nú kveður hann hinn helminginn af heildinni en yljar sér við kær- leiksríkt ljós minninganna. Minn- ingarinnar um einstaka konu. Dóra Magnúsdóttir. Gauja mágkona og traust vin- kona hefur kvatt. Hún var sterk og kjarkmikil, ofurdugleg og vandvirk, örlát og hjálpsöm. Já, þannig var hún. Við vorum svo sem ekki alltaf sammála, en það breytti engu um vináttu okk- ar. Garðinn sinn ræktaði hún vel. Vegferð okkar saman er orðin löng, eða 55 ár. Hún vildi enga meðferð sem hún vissi að skilaði engu. Hún kvartaði aldrei. Gauja skilur eftir sig margar góðar minningar frá stundum sem við höfum átt með fjölskyldunni og frá mörgum ferðalögum, jafnt innanlands sem utan. Gleðistund- ir koma í hugann, meðal annars úr yndislegum hópi leikfimi- kvennanna sem alltaf hafa staðið saman sem ein. Mörg handverk á ég eftir hana sem munu minna mig á hana. Ég kveð hana með miklu þakklæti og söknuði. Vertu Guði falin elsku Gauja. Samúðar- kveðjur til Tedda og fjölskyld- unnar. Missir þeirra er mikill. Eva Valgeirsdóttir. Á stigapalli þriðju hæðar í Eskihlíð 18a stóð eitt sinn feiminn fimm ára gestur og bankaði. Þangað hafði nýlega flutt fjöl- skylda og bárust spurnir upp á fjórðu hæð að einn fjölskyldu- meðlimur væri á svipuðu reki og feimni gesturinn. Til dyra kom vingjarnleg kona í litskrúðugum fötum, berfætt með blíðan svip og heilsaði hinum smávaxna ná- granna glaðlega: „Sæl elskan, ertu komin til að leika við Dóru? Komdu endilega inn.“ Þetta var árið 1969 og konan í litskrúðugu fötunum var Guð- björg, móðir Dóru, æskuvinkonu minnar. Á þessar dyr átti ég oft eftir að banka næstu árin. Heimili Gauju og Tedda stóð mér ætíð op- ið og alltaf mætti mér sama vel- vildin. Það var vissulega hentugt að geta stokkið niður á næstu hæð til að leika við besta vin sinn enda samgangur milli hæða mik- ill. Á þriðju hæð fengum við stöll- ur mikið frelsi til athafna enda regluverkið þar með frjálslegra sniði en á þeirri fjórðu. Það kunni ég vel að meta og hrósaði happi að hafa fengið svona skemmtilega nágranna sem fóru helst ekki í sund eða bíltúr til ömmu í Garði öðruvísi en að bjóða mér með. Gauja hafði alveg einstakt lag á að láta gestum líða vel á sínu notalega heimili og skapa afslapp- að andrúmsloft. Þangað var gott að koma, setjast í grænan sófa, horfa á sjónvarp og spjalla, ekki síst á unglingsárunum þegar vinahópurinn fjölmennti til Dóru. Gauja var höfðingi heim að sækja og kom til dyranna eins og hún var klædd, glaðleg í viðmóti og sýndi fólki einlægan áhuga og virðingu en var laus við hroka og dómhörku. Ég skynjaði ákveðna jarðteng- ingu og öryggi í nærveru þessar- ar sterku og traustu konu sunnan úr Garði. Hún vandaði til allra verka, var nákvæm og atorkusöm og hvíldi svo vel í því sem hún tók sér fyrir hendur hvort heldur að leggja kapal við eldhúsborðið meðan hún beið eftir þvottavél- inni, synda og sóla sig í Vestur- bæjarlauginni eða ganga rösk- lega niður Eskihlíðina í rauðri kápu á leið til starfa sinna í ráðu- neytinu. Það gustaði sannarlega af Gauju þar sem hún birtist í sterk- um litum sem hún var óhrædd að klæðast, með rauðan varalit, sól- gleraugu og stóra skartgripi sem hún bar svo vel. Að leiðarlokum þakka ég Gauju minni þá miklu gestrisni, hlýju og vináttu sem ég og mín fjölskylda áttum ætíð vísa hjá henni og votta elsku Dóru, Gumma og börnum, Tedda og bræðrunum einlæga samúð mína. Takk elsku Gauja, fyrir að hafa opnað fyrir mér og gefið mér hlutdeild í þínu lífi. Flýg ég og flýg yfir furuskóg, yfir mörk og mó, yfir mosató, yfir haf og heiði, yfir hraun og sand, yfir vötn og vídd, inn á vorsins land. Flýg ég og flýg yfir fjallaskörð, yfir brekkubörð, yfir bleikan svörð, yfir foss í gili, yfir fuglasveim, yfir lyng í laut, inn í ljóssins heim. (Hugrún) Hrefna Clausen. Í dag kveðjum við kæra vin- konu okkar og tryggan félaga, hana Guðbjörgu, sem er látin eft- ir erfið veikindi. Það var fyrir ári síðan á aðal- fundi EUMA félagsins að Guð- björg sagði okkur frá veikindum sínum og því sem væri framund- an hjá henni. Í fámennu félagi eins og okkar verður vináttan sterk og sló það okkur mikið að heyra þessar fréttir. Guðbjörg var traustur félagi og það heyrði til undantekninga ef hún kom ekki á fundi. Því hélt hún áfram eins lengi og heilsan leyfði og alltaf var hún bjartsýn og jákvæð. Hún sótti árlegar ráð- stefnur EUMA jafnt innanlands sem utan. Hér heima fór hún til dæmis sem fulltrúi stjórnar með stóran hóp erlendra félaga í hringferð um landið. Það var gott að leita aðstoðar hennar í stóru sem smáu og allt var leyst af hendi með ánægju og til fyrir- myndar. Við minnumst Guðbjargar með hlýhug og þakklæti og sendum eftirlifandi eiginmanni og fjöl- skyldu hugheilar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd EUMA á Íslandi, Guðrún Erla Leifsdóttir formaður. Í dag kveðjum við okkar góðu vinkonu Guðbjörgu með söknuð í huga eða Gauju eins og hún var alltaf kölluð. Kynni okkar hófust í Héraðsskólanum að Skógum vet- urinn 1954-55 þar sem við fimm vinkonurnar deildum saman í herbergi sem hét Hlíðarendi. Ekki minnumst við þess að ósætti hafi nokkurn tíma gætt okkar í milli og þar eignuðumst við dýr- mæta vináttu sem entist alla ævi. Seinna þegar við vorum allar fluttar á suðvesturhornið kallaði Gauja okkur saman og síðan höf- um við reglulega hist og rifjað upp æskuárin og átt saman skemmtilegar og gleðiríkar sam- verustundir. Góðir eiginleikar gerðu Gauju vinkonu okkar að einstakri mann- eskju. Hún var félagslynd, greind, kraftmikil og hláturmild. Þá var hún líka mjög traust og umburðarlynd og átti auðvelt með að umgangast fólk. Í erfiðum veikindum sínum sýndi hún mikið æðruleysi og ein- stakan styrk sem við dáðumst að. Síðasta ferð okkar saman fyrir réttu ári, var auðvitað að frum- kvæði Gauju. Fórum við saman í Garðinn þar sem hún fæddist og ólst upp. Hún sagði okkur frá kennileitum og fólkinu sínu á sinn hrífandi og skemmtilega hátt og eyddum við vinkonurnar þessum yndislega degi saman á æskuslóð- um hennar, fórum á söfn og feng- um okkur síðan kvöldverð saman. Þessi ferð var farin að hennar ósk áður en hún færi í meðferð við krabbameininu sem hrjáði hana. Síðar hittumst við vinkonurnar aftur á heimili þeirra hjóna, Tedda og Gauju, þar sem hún sagði okkur í hvað stefndi og skýrði okkur jafnframt frá ákvörðun sinni, á sinn persónu- lega hreinskilna hátt, um að hafna frekari meðferð við krabbamein- inu sem hafði tekið sig upp aftur. Hún vissi nákvæmlega í hvað stefndi og þegar við kvöddumst sagði hún „þið haldið svo áfram að hittast – stelpur“. Við erum þakklátar fyrir að hafa átt Gauju að vinkonu í öll þessi ár. Biðjum Guð að blessa og styrkja eiginmann hennar og fjöl- skyldu. Megi fagrar og góðar minning- ar um Gauju vinkonu lifa með okkur öllum um ókomin ár. Bára Erna, Halldóra Sal- óme, Harpa og Sigrún. Nú er hún elsku Guðbjörg far- in frá okkur og langar okkur til að segja lítillega frá þeim sporum sem hún setti á lífsveg okkar. Við kynntumst henni árið 1987 þegar ég, Hulda, gekk í Netið sem er samskiptanet kvenna á vinnumarkaði, en þar var hún einn af stofnendum. Síðan gekk ég í félagið EAPS, nú EUMA sem er European Management Ass- istants, og var hún þar líka og í ferðalögum á ráðstefnur EUMA erlendis og skemmtunum hér heima voru þeir Eiki og Teddi líka oft með og tengdust vina- böndum. Guðbjörg var alveg einstak- lega skapgóð, einlæg og dugleg og góð manneskja. Brosmild og falleg, áreiðanleg og röggsöm. Hún var mikill gleðigjafi og hafði gaman af að segja skemmtilegar sögur og eru þær margar sem við geymum. Eina sögu langar okkur til að segja, en hún gerðist þegar við fórum fimm saman til Ísraels og Egyptalands frá Kýpur þar sem EUMA-ráðstefna var haldin 1995. Það vorum við hjónin og svo Guðbjörg, Áslaug Á. og Guðrún S. sem fórum með skemmtiferða- skipi í þriggja daga siglinguna. Meðal annars skoðuðum við píra- mídana í Giza og bauðst ferð nið- ur í holrými Khufu-píramídans til að skoða steinkistu konungs. Guðbjörg var sú eina úr hópnum sem hafði áhuga á að fara niður og þegar hún kom upp aftur, kóf- sveitt og másandi, sagði hún þessa sögu: „Ég var komin hálfa leiðina upp aftur í þessum hræði- lega hita og þrengslum og var þá þar fyrir maður sem virtist vera að rukka eða biðja um einhvers konar framlag, en mér var svo heitt og þráði að komast sem fyrst út svo ég sagði bara „My husband will pay“ og benti aftur fyrir mig. Hélt svo áfram en leit þó við fljótlega og sá þá að það voru um hundrað litlir Japanir fyrir aftan mig.“ Svo fékk hún hláturskast. Óeigingjarnt starf hennar í þessum félögum okkar er ómetanlegt. Alltaf var hún tilbúin til verka eða reddinga af ein- hverju tagi. Hún var ein af þeim manneskjum sem manni fannst færa birtu inn í herbergið þegar hún kom þar inn. Hún hafði mörg áhugamál en trúlega var fjölskyldan hennar helsta því þegar hún talaði um hana var alltaf mín eða minn á eft- ir heitum þeirra sem hún ræddi um í það skiptið. Hún var í leik- fimihópi í áratugi og fór í margar sýningarferðir með honum og sagði okkur frá þeim ferðum á sinn glaðlega máta. Svo gekk hún í vinnuna úr Eskihlíðinni niður í samgönguráðuneyti með við- komu í Sundhöllinni í mörg ár og hugsaði vel um heilsuna þrátt fyr- ir gigtina sem hrjáði hana. Dáð- umst við að henni fyrir það að láta ekki verkina hefta sig í hreyfing- unni. Það var mikið áfall þegar hún greindist með lungnakrabba- mein, sem varð banamein hennar, og sagði hún okkur félögunum í Netinu frá sjúkdómssögu sinni sem hófst í afmælisferð Tedda til Kanaríeyja og fylgdumst við með henni og héldum að tekist hefði í haust að komast fyrir meinið. Sú varð ekki raunin og nú kveðjum við góðan og skemmtilegan félaga og sendum Tedda og ykkur öllum í fjölskyldunni okkar einlægustu samúðarkveðjur og vonum að ljúfar minningar um þessa frá- bæru konu hjálpi ykkur í sorg- inni. Hulda og Eiríkur. Nú er hún Guðbjörg okkar fall- in frá eftir erfiða baráttu við vægðalausan sjúkdóm. Hennar verður sárt saknað. Allar góðu minningarnar getur enginn tekið frá okkur og með þeim verður hún áfram með okkur. Fyrstu kynni okkar af Guð- björgu voru í ágústmánuð 1981 þegar við 15 Íslendingar flugum saman til Norður-Svíþjóðar. Þar eyddum við tveimur vikum ásamt 45 Finnum, sem komu til Piteå í sama tilgangi og við, til að læra sænsku. Þarna kynntumst við kjarnakonunni Guðbjörgu. Hún var hrókur alls fagnaðar og komst enginn hjá því að verða snortinn af þessum gleðigjafa. Eftirminnilegt er ferðalagið í lok námskeiðsins sem var til finnska Lapplands. Þar var gist í sum- arbústöðum í finnskum skógi við eitt af þúsund vötnum Finnlands. Um kvöldið var að sjálfsögðu grillað og farið í „sauna“. Við gleymum aldrei þeirri sýn þegar Guðbjörg skellti sér til sunds og stillti sér svo upp á steini eins og hafmeyjan við Löngulínu í Kaup- mannahöfn. Það var fögur sjón. Við eigum Guðbjörgu margt að þakka. Eitt af því góða sem hún gerði fyrir okkur var hversu dug- leg hún var að halda hópnum saman. Oftast var að hennar frumkvæði látið boð út ganga um að hittast og hafa gaman saman. Það var eins og hún hefði lítið annað að gera en hugsa um að halda okkar hóp saman. En hún átti marga vinahópa og alls staðar var hún jafn framtakssöm og vel liðin. Það er svo dýrmætt að eignast svona vini. Hún var svo ærleg og hreinskiptin og heil í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Ekki er hægt annað en bera mikla virð- ingu fyrir slíkri manneskju sem Guðbjörg var. Við söknum hennar sárlega nú þegar. En sem betur fer eigum við allar minningarnar um þær góðu og skemmtilegu stundir sem við höfum átt saman. Guðbjörg Ársælsdóttir Elsku Mummi. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig sem frænda. Þegar ég var lítil vissi ég ekki um neinn sem mér fannst syngja eins fallega og Mummi frændi. Heima hjá mér var líka borðstofuborð sem Mummi smíðaði. Öll voru systkinin ein- staklega hjatahlýjar, gjafmildar manneskjur sem vildu gefa öll- um allt. Annað sem var sameig- inlegt var að þau voru öll gift al- Guðmundur Guðjónsson ✝ GuðmundurGuðjónsson fæddist 3. mars 1922. Hann lést 11. apríl 2016. Útför Guðmundar fór fram 20. apríl 2016. gjörum englum sem voru jafn gjafmildir og hlýir. Elsku Stína, það var sjaldan talað um Mumma öðruvísi en nefna þig í leiðinni. Ef maður var svo heppinn að rekast á Mumma og Stínu var alltaf sama hlýjan og fallega brosið. Elsku Stína, Guðrún, Grétar, Hafsteinn, Helga, Erna, Krist- ján og fjölskylda, börn og barnabörn. Um leið og ég sendi mínar innilegustu samúðar- kveðju þá sendi ég einnig þakk- læti til ykkar allra. Þið eruð jafn hjartahlý og pabbi ykkar. Ásta Kristbergsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.