Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 Skattskylda Dor- ritar Moussaieff, eiginkonu Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta Ís- lands, í Bretlandi er takmörkuð enda á hún aðal- heimili sitt utan landsins. Þetta má skilja á um- fjöllun breska blaðsins The Guardian í gær. Skrif- stofa forseta Íslands hefur alltaf sagt Dorrit búsetta á Bretlandi og greiða skatta þar, enda breskur ríkisborgari. Í umfjöllun um tengsl for- setafrúarinnar við aflandsfélög segir The Guardian að Dorrit beri takmarkaða skattskyldu í Bretlandi þar sem hún sé ekki með skattalega heimilisfesti. Það þýðir að forsetafrúin þarf ekki að greiða skatta á Bretlandi af tekjum eða hagnaði sem verður til utan landsins ef hann er innan við 2.000 pund á ári og ekki fluttur til Bretlands. Skjöl frá HSBC-bankanum í Sviss eru sögð sýna tengsl Dorritar við aflandsfélög og sjóði sem skráðir hafa verið utan Bretlands. Hún hafi til að mynda verið ein þriggja í Mo- ussaieff-fjölskyldunni sem voru skráðir eigendur félags á Bresku Jómfrúareyjum og hafi einnig notið góðs af sjóði sem er í eigu fjöl- skyldu sinnar. Vafi uppi um heimilisfesti Dorritar  Ber takmarkaða skattskyldu í Bretlandi Dorrit Moussaieff Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hörður Þórhallsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Stjórn- stöðvar ferðamála frá því 1. nóv- ember sl., hefur hætt störfum, en sex mánaða verktakasamningi sem gerður var við hann lauk þann 30. apríl sl. Fram kom í Morgunblaðinu þann 6. október í fyrra, þegar greint var frá stofnun Stjórn- stöðvar ferðamála, að fjórir ráð- herrar og fjórir fulltrúar ferða- þjónustunnar myndu eiga þar sæti. Markmiðið væri að samhæfa aðgerðir og fylgja eftir stefnu fyr- ir ferðaþjónustuna. „Það var gerður við mig sex mánaða verktakasamningur í haust, sem rann út núna í lok apr- íl,“ sagði Hörður í samtali við Morgunblaðið í gær. Farið að renna smurt Spurður hvort aldrei hefði kom- ið til greina að samningurinn yrði framlengdur sagði Hörður: „Jú, það gat komið til greina, en ég hef ákveðið að hverfa til annarra starfa.“ Hörður var spurður hvort þau verkefni sem hann hefði stýrt á vegum Stjórnstöðvar ferðamála væru það vel á veg komin að hann gæti hætt: „Já, ég tel það. Nú er búið að stofna stjórnstöðina og ráða inn starfsfólk. Við erum búin að koma mörgum verkefnum af stað og starfsemin er farin að renna smurt. Og þá tekur bara næsti við stjórnvölnum,“ sagði Hörður. Spurður hvað hann hygðist nú taka sér fyrir hendur, en hann var áður framkvæmdastjóri hjá Actav- is, sagðist Hörður ekki geta tjáð sig um það að svo stöddu. Hann væri bundinn trúnaði en gæti þó upplýst að næsta starf sitt yrði ekki á sviði ferðamála. Starfið brátt auglýst Í fréttatilkynningu frá atvinnu- vegaráðuneytinu í gær kemur fram að ríkið og Samtök ferða- þjónustunnar hafi í gær stofnað formlega sérstakt sameignarfélag utan um rekstur Stjórnstöðvar ferðamála. Nafn þess er Rekstr- arfélag Stjórnstöðvar ferðamála og er það í 50% eigu ríkissjóðs og 50% eigu Samtaka ferðaþjónust- unnar. „Tilgangur hins nýstofnaða fé- lags er að halda utan um starfs- mannamál og almennan rekstur Stjórnstöðvar ferðamála,“ segir m.a. í fréttatilkynningunni. Jafnframt kemur þar fram að starf framkvæmdastjóra verði auglýst laust til umsóknar á næst- unni. Hörður hættur hjá Stjórnstöð ferðamála Hörður Þórhallsson  Sex mánaða verktakasamningi framkvæmdastjórans lauk í apríllok  Hverfur til annarra starfa Dagur aldraðra verður haldinn hátíðlegur í fjöl- mörgum kirkjum á morgun 5. maí, uppstigningar- dag. Í Guðríðar- kirkju í Grafar- holti verður það gert með hátíð- legum hætti. Biskup Íslands, Agnes M Sigurðardóttir, mun heim- sækja söfnuð Guðríðarkirkju og pre- dikar þar við messu klukkan 11. Sr. Karl V. Matthíasson, sr. Kristín Pálsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson þjóna fyrir altari. Vorboðarnir, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, syngja við undirleik Arnhildar Valgarðs- dóttur organista. Að lokinni messu býður Guðríðarkirkja upp á kaffi og veitingar og þar munu söngvararnir Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stef- ánsson syngja og fara með gaman- mál. Allir eru velkomnir. Biskup pred- ikar í Guð- ríðarkirkju Agnes M. Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.