Morgunblaðið - 04.05.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Winston Churchill sagði að sam-eiginlegt tungumál væri það
sem helst skildi að Breta og Banda-
ríkjamenn. Skondin orð rifjuðust upp
nýlega.
Breskir ESB-útgöngumenn
reiddust því að for-
sætisráðherra þeirra
hefði látið Obama
forseta blanda sér í
kosningabaráttu um
veru Breta í ESB.
Þeir sögðust vissir í
sinni sök af tveimur
ástæðum. Forsetinn,
gestkomandi í land-
inu, myndi aldrei
blanda sér að fyrra-
bragði í svo viðkvæm
bresk innanríkismál.
En útslagið gerði þó setning semforsetinn notaði sem lokahnykk
innleggs síns. Sú snerist um það, að
færu Bretar úr ESB fengju þeir ekki
aðild að fríverslunarsamningi þess
og Bandaríkjanna. Obama sagði að
Bretar myndu enda „back of the
queue“. Samsærissmiðir sögðu þetta
ensku en ekki amerísku. Forsetinn
hefði bersýnilega fengið hótunina á
miða frá Downingstræti 10.
En vera má, að allt loft sé þegarúr þessari hótun, hver sem á
höfundarréttinn. Því í gær tilkynnti
Hollande forseti að Frakkland vildi
„að svo stöddu“ engan viðskipta-
samning við Bandaríkin. „Við erum
ekki hlynnt fríverslun án þess að um
hana gildi reglur,“ segir Hollande og
bætir við að hann hafni því að fórna
hagsmunum fransks landbúnaðar og
franskrar menningar.
ÍÞýskalandi hefur andstaða við frí-verslunarsamning aukist eftir að
drög hans láku.
Þar fór sú ógnin.
David
Cameron
Fælingin fauk
STAKSTEINAR
Barack
Obama
Veður víða um heim 3.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 léttskýjað
Bolungarvík 1 snjókoma
Akureyri 7 alskýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 15 skúrir
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 8 skýjað
London 12 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 12 skýjað
Vín 12 skýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 skúrir
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 17 heiðskírt
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -5 léttskýjað
Montreal 3 skúrir
New York 16 alskýjað
Chicago 9 alskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:47 22:03
ÍSAFJÖRÐUR 4:35 22:25
SIGLUFJÖRÐUR 4:17 22:09
DJÚPIVOGUR 4:13 21:36
Ársfundur
Frjálsa lífeyrissjóðsins
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 26. maí nk.
kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Dagskrá
1 Skýrsla stjórnar
2 Kynning ársreiknings
3 Tryggingafræðileg athugun
4 Fjárfestingarstefna sjóðsins
5 Kosning stjórnar og varamanna
6 Kjör endurskoðanda
7 Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
8 Laun stjórnarmanna
9 Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á vef sjóðsins,
frjalsi.is, tveimur vikum fyrir ársfund.
Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til
eins árs. Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir
ársfund og ber að tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Bjarni Bene-
diktsson, fjár-
mála- og efna-
hagsráðherra,
segist ekki sjá
annað en ágætis
gangur sé í þing-
legri meðferð
húsnæðis-
frumvarpa
Eyglóar Harðar-
dóttur félags-
málaráðherra og menn ættu að
spara sér að fella dóma um fram-
gang frumvarpanna á meðan svo er.
Þetta sagði fjármálaráðherra þeg-
ar hann var spurður hvað hann segði
um þau orð Gylfa Arnbjörnssonar,
forseta Alþýðusambands Íslands, á
1. maí að forsendur kjarasamninga
myndu bresta ef húsnæðisfrumvörp
Eyglóar Harðardóttur næðu ekki
fram að ganga á yfirstandandi þingi.
Spurður hvort hann teldi þá að
ekkert ætti að geta komið í veg fyrir
það að húsnæðisfrumvörpin yrðu að
lögum fyrir næstu alþingiskosningar
sagði Bjarni: „Það er að minnsta
kosti allt of snemmt að fella ein-
hverja dóma um það á meðan þingið
er með málin í eðlilegri efnislegri
meðferð.“
Eins og fram kom í frétt á forsíðu
Morgunblaðsins í fyrradag koma
kjarasamningar Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins
næst til endurskoðunar í febrúar
2017. agnes@mbl.is
Í eðlilegri
þinglegri
meðferð
Bjarni
Benediktsson
Telur ótímabært
að fella dóma
Lögmennirnir Heiðrún Lind Marteinsdóttir og
Gunnar Sturluson eru nýir fulltrúar stjórnar-
flokkanna í stjórn Ríkisútvarpsins og fyrir
stjórnarandstöðuna koma ný í stjórn þau Lára
Hanna Einarsdóttir og Jón Ólafsson. Þessi fjög-
ur koma í stjórnina í stað þeirra Ingva Hrafns
Óskarssonar, Eiríks Finns Greipssonar, Ásthild-
ar Sturludóttur og Bjargar Evu Erlendsdóttur,
sem þar hafa átt sæti síðustu misseri.
Kosið var í hina nýja stjórn Ríkisútvarpsins á
Alþingi í gær. Stjórnina skipa þau nú þau Guð-
laugur Sverrisson, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
Kristinn Dagur Gissurarson, Heiðrún Lind Mar-
teinsdóttir og Gunnar Sturluson fyrir ríkis-
stjórnarflokkana. Fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar þar eru Mörður Árnason, Friðrik
Rafnsson, Lára Hanna Einarsdóttir og Jón
Ólafsson. sbs@mbl.is
Fjögur ný taka sæti í stjórn Ríkisútvarpsins