Morgunblaðið - 04.05.2016, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Ljón á veginum Vegfarandi gengur óbanginn framhjá gapandi ljónynju sem máluð hefur verið ásamt fagurbláum og framandi fuglum á skrautlega veggplötu við vinnupalla á Laugaveginum.
Eggert
Hafi einhverjir borið
þá von í brjósti að
birta færi yfir
Reykjavíkurborg hafa
þeir orðið fyrir áfalli
þegar ársreikningur
borgarinnar 2015 var
lagður fram fyrir
nokkrum dögum.
Borgarsjóður stefnir í
greiðsluþrot verði ekki
brugðist við. Þrátt fyr-
ir meiri almenna hagsæld, auknar
tekjur og hærri gjöld á borgarbúa
og fyrirtæki er borgarsjóður ósjálf-
bær og skuldir halda áfram að
aukast.
Það skiptir ekki aðeins Reykvík-
inga máli hvernig til tekst við rekst-
ur borgarinnar. Beint en óbeint eiga
allir landsmenn mikið undir því að
hagur borgarinnar sé góður. Ekki
aðeins vegna þess að Reykjavík er
höfuðborg sem öllum þykir vænt
um, heldur einnig vegna þess að
umsvif borgarinnar vega þungt í
efnahag landsins alls.
Ársreikningur Reykjavíkur-
borgar 2015 er fremur nöturleg
lesning. Halli á rekstri borgarsjóðs
á liðnu ári var liðlega 12,8 milljarðar
króna, eða rúmlega einn milljarður
að meðaltali í hverjum mánuði.
Borgarstjóri leitar skjóls og bendir
á hækkun á gjaldfærslu lífeyris-
skuldbindinga. Um leið vill hann
beina athyglinni frá undirliggjandi
og að því er virðist krónískum vanda
í rekstri borgarsjóðs. Hægt og bít-
andi hefur meirihluti
borgarstjórnar misst
tökin á rekstri borg-
arinnar. Lausungin
sem innleidd var árið
2010, þegar Dagur B.
Eggertsson tók við
stjórn borgarinnar í fé-
lagi við Jón Gnarr sem
borgarstjóra, hefur
náð að festa rætur í tíð
núverandi meirihluta
fjögurra flokka; Sam-
fylkingar, Vinstri
grænna, Bjartrar
framtíðar og Pírata.
20 milljarða aukning
Á liðnu ári voru tekjur borgar-
sjóðs nær 20 milljörðum hærri að
raunvirði en 2010. Þetta þýðir að
borgin hafði 146 þúsund krónum
meira í tekjur af hverjum borgarbúa
árið 2015 en árið sem Jón Gnarr og
Dagur B. Eggertsson náðu í sam-
einingu völdum í ráðhúsinu. Þetta
jafngildir því að hver fjögurra
manna fjölskylda hafi greitt til
borgarsjóðs um 585 þúsund krónum
meira að raunvirði. Þetta er svipuð
fjárhæð og meðalmánaðarlaun.
Borgin hefur ekkert gefið eftir í
að afla sér fjár. Útsvar er eins hátt
og lög leyfa og mun hærra en í
mörgum minni sveitarfélögum, sem
njóta ekki þeirrar hagkvæmni
stærðarinnar sem Reykjavík ætti að
búa við væri rétt staðið að málum. Á
síðasta ári voru útsvarstekjur
borgarinnar 10,9 milljörðum króna
hærri á föstu verðlagi en árið 2010.
En gríðarleg aukning tekna hefur
ekki endurspeglast í bættri
fjárhagsstöðu borgarsjóðs. Þvert á
móti, enda hafa útgjöld vaxið mun
hraðar, eða um 32,5 milljarða. Með
öðrum orðum:
Rekstur borgarinnar kostaði
hvern íbúa 249 þúsund krónum
meira á síðasta ári en fimm árum
áður. Þannig hafa fjölskyldur í
Reykjavík þurft að axla þyngri
byrðar – eina milljón króna – í formi
hærri gjalda og aukinna skulda. Í
litlu hafa borgarbúar fengið að njóta
dýrari rekstrar. Þjónusta borgar-
innar hefur versnað, skiptir engu
hvort um er að ræða sorphirðu,
þjónustu við aldraða, leikskóla,
grunnskóla eða einfaldlega að halda
borginni sæmilega þrifalegri.
Illa farið með
Degi B. Eggertssyni borgarstjóra
og félögum hans í meirihluta
borgarstjórnar hefur ekki tekist vel
upp við að varðveita sameiginlegar
eigur borgarbúa, ef litið er til árs-
reiknings borgarsjóðs. Eigið fé hef-
ur rýrnað á föstu verðlagi um nær
21 milljarð og skuldir aukist um lið-
lega 24 milljarða frá 2010. Eigin-
fjárhlutfallið hefur þannig verið í
frjálsu falli. Árið 2010 var það 63%
en í lok liðins árs var það komið
niður í 48%.
Flest bendir til að þessi þróun
haldi áfram út kjörtímabilið . Á
sama tíma og þjónustan versnar
minnkar fjárhagslegt bolmagn
borgarinnar til að sinna grunn-
hlutverki sínu.
Ekki eins skemmtilegt
Hafi borgarbúar vonast eftir því
að opinberar álögur lækkuðu á kom-
andi árum geta þeir gefið þær vonir
upp á bátinn með núverandi meiri-
hluta. Útsvar verður ekki lækkað,
þjónustugjöld lækka ekki, jafnvel
þótt dregið verði úr þjónustu. Þvert
á móti er líklegt að borgin seilist
enn dýpra í vasa borgarbúa í við-
leitni sinni til að bjarga fjárhagnum
og fjármagna gæluverkefni sem
eiga hug borgarfulltrúa. (Og auðvit-
að mun borgarstjóri halda áfram að
krefjast þess að fá aukinn hlut ríkis-
tekna.) Þjónustan verður lélegri og
borgin skítugri. Möguleikar borgar-
innar til að ráðast í nauðsynlegar
fjárfestingar í innviðum, og þá ekki
síst til að koma gatnakerfinu í við-
unandi horf, eru litlir á næstu árum.
Hugmyndir um að styrkja og efla
leik- og grunnskóla borgarinnar
verða að óbreyttu ekki annað en
hugmyndir á blaði. Eldri borgarar
munu ekki njóta forgangs fremur en
áður.
Þannig er komið fyrir stærsta
sveitarfélagi landsins. Verst er að
enginn vilji eða skilningur er á því
meðal meirihluta borgarstjórnar að
breytinga er þörf. Nauðsynlegt er
að skera upp reksturinn, forgangs-
raða í útgjöldum og sinna grunn-
þörfum borgarbúa. En það er auð-
vitað ekki eins skemmtilegt og að
lifa í sviðsljósi fjölmiðla með loftlykil
á lofti, reiðhjólahjálm á höfði eða
flytja skrifstofur á milli hverfa
borgarinnar.
Á næsta ári verður ársreikningur
borgarinnar 2016 birtur. Og enn á
ný verður lesningin því miður nötur-
leg fyrir borgarbúa, jafnt og aðra.
Eftir Óla Björn
Kárason »Nauðsynlegt er að
skera upp rekstur-
inn, forgangsraða og
sinna grunnþörfum
borgarbúa. En það er
ekki eins skemmtilegt
og að lifa í sviðsljósi
fjölmiðla.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Nöturleg lesning og kaldar staðreyndir
Auknar tekjur, hærri skuldir
Rekstur og efnahagur borgarsjóðs á
verðlagi 2015 m.v. neysluverðsvísitölu
Rekstur í m.kr.
2010 2015 Breyting
Tekjur 71.137 91.045 19.908
Gjöld 71.394 103.896 32.502
pr. íbúa í þús. kr
Tekjur 601 747 146
Gjöld 603 853 249
Efnahagur í m.kr.
2010 2015 Breyting
Eigið fé 94.644 73.778 -20.866
Skuldir og
skuld-
bindingar
56.339 80.702 24.363
pr. íbúa í þús. kr
Eigið fé 800 606 -194
Skuldir 476 662 186