Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Barnastígvél
Flott frá
Náttúrulegt gúmmí
Stærðir
20–36
Wildflower
Lollypop print
Háaleitisbraut 68 Hólmaslóð 2
Woodypop
Woodypop
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ekkert lát er á blíðviðrinu á Austurlandi og eins og sjá má er gaman að ærslast
í sundlauginni á Egilsstöðum þegar veðrið leikur við mann. Í gær mældist hit-
inn líkt og undanfarna daga yfir 20 stig víða á Austurlandi og ef tekið er mið af
veðurspá dagsins í dag má gera ráð fyrir því að hitinn fari yfir 20 stig um aust-
anvert landið. Áfram má búast við mildu veðri á landinu um helgina en eftir
helgi mega íbúar Austurlands búast við öllu kaldara veðri en verið hefur.
Skelltu sér í salíbunuröð í sól og sumri
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hiti mældist yfir 20 stig á Austurlandi í gær
Skúli Halldórsson
Helgi Bjarnason
Frumvarp Eyglóar Harðardóttur,
félags- og húsnæðismálaráðherra,
um almennar íbúðir var samþykkt á
Alþingi í gær. Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, segir mikla ánægju inn-
an raða sambandsins vegna þessa.
„Okkur er nú ekkert að vanbún-
aði, við höfum lýst því yfir í tengslum
við hundrað ára afmæli sambandsins
að við ætlum að standa fyrir stofnun
félags í samræmi við lögin, í sam-
starfi við BSRB,“ segir Gylfi og bæt-
ir við að samkomulag sé til staðar við
borgina um úthlutun lóða.
Gert er ráð fyrir að 2.300 íbúðir
muni rísa á næstu fjórum árum en
Gylfi telur að tvö ár þurfi að líða þar
til fyrstu íbúðirnar verði komnar í
gagnið. „Það er ekki skynsamlegt að
fara að rjúka til með miklum hraða.
Steypan þarf einfaldlega að ná að
þorna.“
Ráða ekki við aðstæðurnar
Við áformin segir Gylfi að horft
hafi verið til norrænu landanna en
einnig víðar, til dæmis til Bretlands
og Hollands.
„Í þessum löndum er gjarnan
fimmtungur eða fjórðungur íbúða í
einhvers konar félagslegu formi.
Neðri fjórðungur tekna á Íslandi,
það eru tekjur undir þrjú hundruð
þúsund krónum á mánuði, það er
ljóst að slíkir einstaklingar ráða ekki
við markaðslegar aðstæður eins og
þær eru í dag.“
Mikil húsnæðisekla er í nokkrum
bæjum á landsbyggðinni þar sem
atvinnulíf hefur byggst upp í kjölfar
langvarandi stöðnunar. Stendur
það mörgum sveitarfélögum fyrir
þrifum.
„Þetta opnar fleiri möguleika á
aðkomu sveitarfélagsins,“ segir
Kristján Þór Magnússon, sveitar-
stjóri Norðurþings, en á Húsavík er
unnið að húsnæðisáætlun sem
kynnt verður á næstunni.
Ásthildur Sturludóttir, bæjar-
stjóri Vesturbyggðar, segir að mál-
ið verði skoðað vel. Hún tekur þó
fram að takmörk séu fyrir því
hversu mikið sé hægt að skuldsetja
bæjarfélagið og því erfitt að fara í
mikla uppbyggingu á þessum
grunni.
Fagna lögum um almennar íbúðir
ASÍ gerir ráð fyrir 2.300 íbúðum á næstu fjórum árum
Opnar fleiri möguleika, segir sveitarstjóri Norðurþings
Þingsályktunar-
tillaga um rann-
sókn á erlendri
þátttöku í kaup-
um á 46,8% hlut í
Búnaðarbank-
anum var sam-
þykkt á Alþingi í
gær með 52 at-
kvæðum.
Í ræðu sinni
um tillöguna
sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, að gögnin
sem Umboðsmaður Alþingis hefði
undir höndum væru „dylgjur huldu-
manns úti í bæ“.
Sagðist hún þó styðja tillöguna, en
með þá von í brjósti að brátt væri
hægt að hefja rannsókn á þeirri
einkavæðingu bankanna sem átti sér
stað í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Í samtali við Morgunblaðið segist
Vigdís ekki bjartsýn á að tillaga sín
um þá rannsókn verði samþykkt á
yfirstandandi þingi.
„Ég sakna svolítið stuðnings Pí-
ratanna, sem jafnan segjast vilja
hafa allt uppi á borðinu,“ segir Vig-
dís. Tillagan er nú á borði stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefndar.
Rannsaka
erlenda
þátttöku
Vigdís
Hauksdóttir
Samþykktu þings-
ályktunartillögu
Auk nýrra laga um almennar íbúðir
voru samþykkt frumvörp Eyglóar
um húsnæðisbætur og húsaleigu-
lög á Alþingi í gær. Áður hafði Al-
þingi samþykkt frumvarp ráð-
herrans til laga um húsnæðis-
samvinnufélög.
Þá voru samþykkt lög um útboð
vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju,
en í þeim lögum felst að Vegagerð-
inni er heimilt að bjóða út smíði og
rekstur nýrrar Vestmannaeyja-
ferju, sem leysa á Herjólf af hólmi.
Auk þessa voru samþykkt ný lög
um málefni útlendinga, en í at-
hugasemdum segir að þau feli í
sér heildarendurskoðun á lögum
um útlendinga frá árinu 2002.
Að lokum var samþykkt frum-
varp til laga um breytingu á ýms-
um lagaákvæðum um skatta og
gjöld. Í því felst meðal annars
lækkun á almennu tryggingagjaldi
um 0,5 prósentustig.
Tekjur ríkissjóðs munu lækka
við það um sex milljarða króna ár-
lega, að því er fram kemur í at-
hugasemdum.
Þá segir í samþykkta frumvarp-
inu að hjónum og sambýlisfólki
verði áfram heimiluð samsköttun
milli tveggja skattþrepa.
Ný ferja leysi ófremdarástand
FJÖLDI FRUMVARPA SAMÞYKKTUR Á LOKASPRETTINUM
Til stóð í gærkvöldi að Alþingi sam-
þykkti frumvarp Bjarna Benedikts-
sonar fjármálaráðherra um breyt-
ingar á lögum um gjaldeyrismál,
lögum um meðferð krónueigna sem
háðar eru sérstökum takmörkunum
og lögum um sérstakan skatt á fjár-
málafyrirtæki.
Breytingunum er ætlað að draga
úr þeirri áhættu sem verulegt fjár-
magnsinnstreymi getur skapað og
styðja við aðra þætti innlendrar hag-
stjórnar, að því er fram kemur í til-
kynningu frá fjármálaráðuneytinu.
Með frumvarpinu er Seðlabankan-
um veitt heimild til að setja reglur
sem kveða á um bindingu reiðufjár
vegna tiltekins nýs innstreymis nýs
gjaldeyris. „Þessi
stjórntæki eru
aldrei eins og ein-
hver töfrasproti.
Það eru aðrir
þættir sem ráða
þar miklu meira
um, til dæmis
hvernig haldið er
á opinberum fjár-
málum, fram-
kvæmd peninga-
stefnu og samtal þar á milli,“ sagði
Bjarni í ræðustól í gærkvöldi, um
áhrif frumvarpsins á stöðugleika.
„Hér er einkum um að ræða inn-
streymi vegna kaupa á skuldabréf-
um og víxlum og vegna nýrra banka-
innstæðna, þar sem fjárfestar horfa
til skammtímaávinnings vegna
vaxtamunar á milli Íslands og ann-
arra landa og gengisbreytinga,“ seg-
ir í tilkynningunni.
Gert er ráð fyrir að með þessu geti
bankinn sett almenn stjórnvaldsfyr-
irmæli sem fela í sér skyldu til að
binda reiðufé, sem nemur allt að 75%
af viðskiptunum, á reikningi hjá inn-
lánsstofnun til allt að fimm ára.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu hversu knappur tími var
gefinn til að kynna sér frumvarpið og
hversu lítið samráð hafi verið haft
við stjórnarandstöðuna varðandi
frumvarpið sem og fyrri haftafrum-
vörp. ash@mbl.is sh@mbl.is
Dragi úr áhættu vegna
fjármagnsinnstreymis
Stjórntækin eru aldrei eins og töfrasproti, segir ráðherra
Bjarni
Benediktsson