Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 78
78 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Kristbjörg Erla Alfreðsdóttir, sem á 50 ára afmæli í dag, er bú-sett í veðursældinni í Vopnafirði, nánar tiltekið á Ásbrands-stöðum í Hofsárdal . „Það var 23 stiga hiti hjá okkur í fyrra-
dag. Sumir segja að sumarið byrji óþarflega fljótt og það verði því
rigningar í heyskapnum, en það er merkilegt þegar maður horfir til
baka að öll ár sem hafa endað á tölustafnum 6 hafa verið góð, 1976,
1986, 1996 og 2006 svo ég er bjartsýn á að sumarið verði gott.“
Erla er frá Torfastöðum í Vesturárdal og eiginmaður hennar, Har-
aldur Jónsson, er frá Einarsstöðum, innst í Hofsárdal. „Hofsá hefur
oft verið góð veiðiá, en er að fara nánast niður á botn. Menn eru eitt-
hvað að kenna hitanum um, það minnkar líka svo fljótt í henni. Selá
hefur staðið sig miklu betur, það er alltaf meira vatn í henni.“
Erla og Haraldur eru með blandaðan búskap á Ásbrandsstöðum
auk þess að vera með ferðaþjónustu sem sonur þeirra, Jón, rekur. Sú
fjórða á heimilinu er dóttirin Guðný Alma sem er 12 ára. Einnig býr á
Ásbrandsstöðum móðursystir Erlu, Sigrún Runólfsdóttir.
„Ég ætlaði að halda veglega upp á daginn en það standa miklar
framkvæmdir yfir hérna á búinu og við náðum ekki að klára þær svo
stefnan er sett á að halda upp á daginn á fimmtudaginn, þann 16.,
enda er þetta svo flott tala: 16.6.16. Eflaust vilja menn gefa mér eitt-
hvað en ef menn eru í vafa þá hef ég verið að velta því fyrir mér hvort
það væri nokkuð vitlaus hugmynd að þeir hinir sömu legðu í staðinn
eitthvað smávegis til gróðursetningar við bústaðina.“
Fjölskyldan Jón, Guðný Alma, Erla og Haraldur á Ásbrandsstöðum.
Sumarið byrjar vel
í Vopnafirði
Kristbjörg Erla Alfreðsdóttir er 50 ára í dag
E
va Hrönn fæddist í
Reykjavík 3.6. 1976
og ólst þar upp í
Skerjafirðinum:
„Húsið sem ég ólst
upp í, Kjörlundur, Bauganes 34,
var ekta ættaróðal því ég ólst þar
upp, mamma ólst þar upp og
amma ólst þar líka upp.
Byggðin hefur þést mikið í
Skerjafirðinum frá því ég var
barn. Þá voru þar tún úti um allar
koppagrundir og mikið rými fyrir
okkur krakkana. Við vorum alltaf
með stóra áramótabrennu sem við
krakkarnir söfnuðum í. Þarna var
líka lítil bílaumferð og við lékum
okkur mikið í fjörunni og á at-
hafnasvæði Olíufélagsins. En auð-
vitað var þó mest spennandi að
stelast yfir á flugvallarsvæðið og
þvælast þar um í flugskýlunum.
Skerjaver var okkar hverfisbúð,
nokkurs konar kaupfélag þessa
vinalega þorps í borginni þar sem
allir þekktu alla.“
Eva var í sveit á Tindsstöðum í
Kjós tvö sumur þegar hún var sjö
og átta ára. Hún var í Melaskóla
og Hagaskóla, stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík og
lauk stúdentsprófi þaðan 1997.
Hún stundaði síðan nám í hönnun
við Iðnskólann í Hafnarfirði og
lauk þaðan prófi 1998.
Eva starfaði síðan hjá Nýherja í
hálft ár en þar starfaði hún í sjö ár
alls, lengst af með námi. Hún hóf
nám við Listaháskóla Íslands, lauk
Eva Hrönn Guðnadóttir, eigandi Kríu hönnunarstofu – 40 ára
Bros í Berlín Eva Hrönn og Þór með foreldrum hennar, Guðna og Katrínu, í óvissuferð, þegar Guðni var sextugur.
Lífið er rétt að hefjast
Í banastuði og sólskinsskapi Eva Hrönn syngur með hljómsveitinni Kókos.
Bryndís Sigurjónsdóttir og Ragna Guðný Elvarsdóttir héldu tombólu í Neskaup-
stað til styrktar Rauða krossinum. Þær náðu að safna 14.805 krónum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
SÖLUAÐILAR
Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588 | Gullúrið Mjódd s: 587-410 | Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900
Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150
Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886
Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 | Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333