Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Fararstjóri: Edda Lyberth
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sp
ör
eh
f.
Grænland–saga&menning
Hér kynnumst við stórkostulegu náttúrufari Grænlands,
íbúum þess og menningu að fornu og nýju.Við upplifum m.a.
ósnortið landslag, heiðalönd, firði og fjörur og siglum á milli
tignarlegra ísjaka. Skoðum m.a. gamla þingstaðinn í Görðum
og bæinn Bröttuhlíð. Forvitnileg ferð um einstakt land!
Verð: 237.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
20. - 23. ágúst
Ör
fá s
æt
i la
us
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Hugsanleg innganga Íslands í Evr-
ópusambandið hefur síður en svo
verið á dagskrá hér á landi að undan-
förnu. Lítið hefur heyrst um slík
áform Samfylkingar, sem hafði það
mál sem aðalmál á dagskrá í mörg ár.
Nýstofnaður stjórnmálaflokkur,
Viðreisn, minntist ekki á stefnu sína
um aðild Íslands að ESB í frétta-
tilkynningu eftir flokksstofnun, og
yfir höfuð virðist enginn vera að boða
að Ísland eigi að ganga í ESB um
þessar mundir.
Dagana 6. til 9. maí kannaði MMR
afstöðu almennings gagnvart því að
Ísland gengi í Evrópusambandið
(ESB). Yfir helmingur svarenda
(51,4%) kvaðst andvígur eða mjög
andvígur því að Ísland gengi í Evr-
ópusambandið en rétt rúmlega fjórð-
ungur (27,1%) svarenda sagðist
hlynntur eða mjög hlynntur því að
Ísland gengi í Evrópusambandið.
Annað hljóð í strokknum
Það er því engin furða að meðal
ákveðinna forsetaframbjóðenda nú
sé annað hljóð í strokknum en var
fyrir einhverjum misserum og árum.
Guðni Th. Jóhannesson, sem nýtur
mest fylgis samkvæmt skoðanakönn-
unum, segist mundu segja nei „eins
og sakir standa“ ef kosið væri um að-
ild nú; Halla Tómasdóttir, sem eitt
sinn var eindreginn talsmaður að-
ildar að ESB, segir: „Ég er þeirrar
skoðunar að ég myndi kjósa nei í
dag,“ og Andri Snær Magnason seg-
ir: „Ég get ekki svarað þessu fyrir
mig persónulega fyrr en ég hef séð
djúpa og ígrundaða umræðu í sam-
félaginu um þetta mál.“
Það er stundum erfitt að henda
reiður á því hverjar eru skoðanir for-
setaframbjóðenda í einstökum mál-
um. Þannig hefur afstaða þriggja af
fjórum frambjóðendum, sem njóta
mests fylgis samkvæmt skoðana-
könnunum, gagnvart Evrópusam-
bandinu og hugsanlegri aðild Íslands
að því, vafist fyrir ýmsum. Hér er átt
við þau Guðna Th. Jóhannesson,
Andra Snæ Magnason og Höllu
Tómasdóttur.
Afstaða Davíðs Oddssonar vefst
ekki fyrir nokkrum manni, Hann var
og er á móti aðild að Evrópusam-
bandinu, eins og margoft hefur kom-
ið fram í ræðu og riti Davíðs á undan-
förnum árum.
Davíð hefur alla tíð verið andvígur
því að ganga í Evrópusambandið. Af-
staða hans kom skýrt fram þegar Ís-
land gerði EES-samninginn, en þá
taldi Davíð að Íslendingar fengju að-
gang að innri markaði Evrópu og þar
með yrði friður um það að vera utan
Evrópusambandsins.
Hélt ég væri einn á móti
Davíð Oddsson sagði í umræðu-
þætti forsetaframbjóðendanna fjög-
urra á Stöð 2 þann 26. maí sl. þegar
Þorbjörn Þórðarson spurði hann
hver væri hans skoðun á aðild Ís-
lands að ESB: „Ég hélt nú reyndar
að ég væri eini andstæðingur
Evrópusambandsins hérna. Svona
miðað við það sem maður hefur
heyrt, eða aðildar að því, en það virð-
ist ekki vera og það er ágætt að
menn séu að hlaupa til annarrar átt-
ar, ég held að það sé skynsamlegt.
Það er rétt hjá Jóni Baldvin að menn
eiga ekki að fara inn í brennandi
hús.“
Áður hafði Halla Tómasdóttir
svarað sömu spurningu með þessum
orðum: „Varðandi Evrópusambandið
þá er ég og hef verið þeirrar skoð-
unar að þetta sé stórt mál sem varð-
ar langtímahagsmuni þjóðarinnar og
það sé bara rétt að leyfa þjóðinni að
kjósa um það mál. Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar að þjóðin myndi
hafna því, tel miklar líkur á því.
Ég er þeirrar skoðunar að ég
myndi kjósa nei í dag, gegn því, og ég
held að meirihluti þjóðarinnar myndi
gera það. En ég er þeirrar skoðunar
að það sé betra að þetta mál sé klár-
að og við séum ekki að rífast um
þetta endalaust eins og við erum búin
að vera að gera í mjög langan tíma.“
Halla var framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs Íslands 2006-2007 og var
þá eindreginn talsmaður aðildar Ís-
lands að Evrópusambandinu, rétt
eins og Viðskiptaráð.
Eins og sakir standa
Svar Guðna Th. Jóhannessonar við
spurningu þáttastjórnandans var:
„Eins og sakir standa núna þá myndi
ég taka undir með Jóni Baldvin og
Davíð Oddssyni að það væri ekki
skynsamlegt. Evrópusambandið er á
miklu umbrotaskeiði núna Já, eins og
sakir standa er ég á móti aðild.“
Að fara inn í brennandi hús
Í frétt í Morgunblaðinu þann 27.
maí sl., daginn eftir umræðuþáttinn á
Stöð 2, sagði m.a.: „Halla Tómasdótt-
ir sagði að kjósa ætti um framhald
málsins, þegar hún var spurð um af-
stöðu til aðildar Íslands að Evrópu-
sambandinu. Hún teldi að þjóðin
myndi hafna því og sjálf myndi hún
greiða atkvæði gegn því. Davíð
Oddsson sagðist hafa talið sig vera
eina andstæðing Evrópusambands-
aðildar á meðal frambjóðenda og
fagnaði því að þeir væru fleiri. Hann
sagðist sammála Jóni Baldvini
Hannibalssyni um að ekki væri ráð-
legt að fara inn í brennandi hús.
Guðni Th. Jóhannesson sagðist
styðja þjóðaratkvæði um framhald
málsins. Hann myndi sjálfur vilja sjá
niðurstöður mögulegs samnings við
ESB. Spurður beint hvort hann
styddi inngöngu sagði hann að eins
og sakir stæðu væri hann sammála
Davíð og Jóni Baldvini og myndi
segja nei. Ef hreyfa ætti við málinu
þyrfti að vera ríkisstjórn í landinu
sem styddi málið heilshugar og hefði
umboð frá þjóðinni til þess að fara
áfram með það. Andri Snær Magna-
son sagðist vilja að þjóðin kysi um
málið en sagðist ekki hafa tekið af-
stöðu til þess sjálfur.“
Í þættinum Eyjunni á Stöð tvö
þann 29. maí sl. sagði Guðni um Evr-
ópusambandsmálin: „Þjóðin á að eiga
fyrsta orðið og þjóðin á að eiga síð-
asta orðið. Forseti Íslands mótar
ekki Evrópustefnu á Íslandi. Það
gerir ríkisstjórn, þingmeirihluti og
fólkið í landinu.“
Andri Snær Magnason byrjaði
svar sitt á því að segja að hann teldi
að leiðtogar Íslands hefðu talað Evr-
ópu niður á síðustu árum. Hann hefði
sagt við embættismenn í Brussel:
„Gefðu mér töfrapilluna þannig að ég
verði bara, já, ég vil ganga í sam-
bandið,“ og lauk svari sínu með orð-
unum: „En það hefur engum tekist
að gefa mér töfrapilluna, þannig að
ég get ekki svarað þessu fyrir mig
persónulega fyrr en ég hef séð djúpa
og ígrundaða umræðu í samfélaginu
um þetta mál.“
Áttu að kynna kosti og galla
Í hnotskurn virðist því afstaða for-
setaframbjóðendanna fjögurra til að-
ildar Íslands að Evrópusambandinu
vera þessi:
Davíð Oddsson er og var á móti að-
ild.
Guðni Th. Jóhannesson, sem sat í
samráðshópi á vegum utanríkisráðu-
neytisins í tíð Össurar Skarphéðins-
sonar frá 2011, sem átti að kynna
kosti og galla aðildar Íslands að ESB
fyrir almenningi, var jákvæður gagn-
vart aðild á þeim tíma og áður, en
hann segir í dag: „Eins og sakir
standa, er ég á móti aðild.“
Guðni sagði í samtali á Útvarp
Sögu þann 9. maí sl.: „Fari svo að ný
ríkisstjórn óski þess að endurlífga
aðildarumsóknina þá er það mín
bjargfasta sannfæring að þjóðar-
atkvæðagreiðsla verði að fara fram
áður en þær viðræður hefjast ...... Svo
segir það sig að sjálfsögðu sjálft, að
landið gengur aldrei í Evrópusam-
bandið eftir samningaviðræður og
eftir að hugsanlegur aðildarsamn-
ingur liggur fyrir án þess að um það
verði greitt atkvæði.“
Afstaða Höllu Tómasdóttur er
svipuð og Guðna í dag þótt hún hafi
verið önnur áður: „Ég er þeirrar
skoðunar að ég myndi kjósa nei í dag,
gegn því.“
Andri Snær Magnason er sá eini af
frambjóðendunum fjórum sem gefur
ekki upp afstöðu sína til aðildar Ís-
lands að Evrópusambandinu: „Ég
get ekki svarað þessu fyrir mig per-
sónulega fyrr en ég hef séð djúpa og
ígrundaða umræðu í samfélaginu um
þetta mál.“
Enginn frambjóðendanna fjögurra
boðar aðild að Evrópusambandinu
Forsetaframbjóðendur eru misjafnlega afdráttarlausir í afstöðu sinni til ESB aðildar
Morgunblaðið/Ómar
Bessastaðir Afstaða þeirra fjögurra frambjóðenda til forseta sem mests fylgis njóta samkvæmt skoðanakönnunum til ESB er talsvert mismunandi.
Davíð
Oddsson
Var og er á móti
aðild Íslands að
Evrópusam-
bandinu.
Halla
Tómasdóttir
„Ég er þeirrar
skoðunar að ég
myndi kjósa nei í
dag.“
Andri Snær
Magnason
Gefur ekki upp
afstöðu sína til
aðildar Íslands
að ESB.
Guðni Th.
Jóhannesson
„Já, eins og sak-
ir standa er ég á
móti aðild.“