Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Askalind4,Kópavogi
Sími 564 1864
www.vetrarsol.is
w
w
w
.h
el
iu
m
.is
Sláuvél með dri
B&S 450E mótor
Hækkun í einu handfangi
55 lítra graskassi
Frábær heimilisvél
Lúxus sláuvél með dri
B&S 625E mótor, auðveld gangsetning
Tvískiptur sláuhnífur, slær 2svar
70 lítra kassi, "notendavænn"
Frábær vél í estan slá
Sga Collector 46 SB Sga TwinClip 50 SB
Sjálfskiptur lúxus sláutraktór
Kawazaki FS600V mótor, þrýssmurður
Notendavænt sæ og stýri
320 lítra graskassi
Frábær traktór í stærri svæði
Sga Estate 7102 H
Léttu þér lífið
með Stiga sláttuvél
Í Hælinu segir frá leikskóla-kennaranum Jan Haugersem er 29 ára einhleypur ogsvolítið inn í sig karlmaður.
Sagan byrjar á því að Hauger fær
vinnu á leikskóla í bænum Valla í
Svíþjóð. Leikskólinn nefnist Rjóðr-
ið og stendur við hlið öryggishæl-
isins Sankta Patrícíu en þar eru
vistaðir geðsjúkl-
ingar og hættu-
legt fólk. Börnin
í leikskólanum
eiga það sameig-
inlegt að eiga
foreldri sem er
vistað á hælinu
og fá þau að
heimsækja það í
reglulegum
heimsóknartímum. Hauger fær það
hlutverk, eins og aðrir starfsmenn,
að fylgja börnunum um undirgöng
sem tengja leikskólann við hælið í
heimsóknirnar til foreldrisins.
Við fyrstu kynni virðist Hauger
mjög venjulegur ungur maður en
er líður á söguna kemur í ljós að
hann er ekki allur þar sem hann er
séður, ekki frekar en fleiri starfs-
menn leikskólans. Hann er haldinn
þráhyggju yfir tilteknum vistmanni
á hælinu og reynir allt til að kom-
ast inn á hælið til að hitta hann, sú
áætlun fer ekki eins og hann ætlar.
Sagan gerist í samtímanum en
litið er til baka á tvö tímabil í ævi
Hauger: þegar hann var unglingur
og tókst á við hrottalegt einelti
sem varð til þess að hann var vist-
aður á stofnun og til fyrstu ára
hans sem leikskólakennara þegar
barn af leikskólanum hvarf. Tíma-
bilin þrjú tengjast og öll tengjast
þau innilokun manneskju. Þetta er
hin ágætasta flétta en það vantar
þrátt fyrir það alla framvindu í
söguna, hún er hæg, spennulaus og
langt frá því að geta talist sál-
fræðitryllir eins og stendur á bók-
arkápu. Höfundurinn tekur á
klikkun og þráhyggju mannshug-
ans og sýnir að allir hafa sinn djöf-
ul að draga, hvort sem þeir eru
fyrir innan eða utan múra geð-
veikrahælisins. Endurlitið til ung-
lingsára Hauger eru best heppn-
uðu kaflar bókarinnar þar sem
Theorin tekst að vekja forvitni og
virkilegan áhuga á persónunum, í
annað vantar að sagan sé keyrð
svolítið áfram og haldið uppi hærra
spennustigi í bók sem er seld sem
spennusaga.
Hæg „Þetta er hin ágætasta flétta en það vantar þrátt fyrir það alla framvindu í
söguna, hún er hæg, spennulaus og langt frá því að geta talsti sálfræðitryllir
eins og stendur á bókarkápu,“ segir m.a. í gagnrýni um bók Johans Theorin.
Hver hefur sinn
djöful að draga
Skáldsaga
Hælið: Sankta Psyko bbnnn
Eftir Johan Theorin.
Íslensk þýðing: Elín Guðmundsdóttir.
Ugla útgáfa 2016. 384 bls.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Gospelkór Jóns Vídalíns sýnir
söngleikinn Godspell í Vídalíns-
kirkju í kvöld kl. 20 og nk. sunnu-
dag kl. 17. „Godspell er eftir einn
af virtustu söngleikjahöfundum
Bandaríkjanna, Stephen Schwarts,
en hann hefur unnið til fjölda
verðlauna þ.á m. Grammy-, Tony-,
og Óskarsverðlauna. Söngleikur-
inn fjallar um síðustu daga Jesú
en textinn er byggður upp úr
Mattheusar- og Lúkasarguðspjalli.
Margrét Eir Hönnudóttir, leik-
stjóri sýningarinnar, kynnti þenn-
an söngleik fyrst til leiks á Íslandi
árið 2000 á Kirkjulistahátíð en
þetta er í fyrsta skipti sem hann
er fluttur í fullri lengd. Tónlistar-
stjóri sýningarinnar er Davíð Sig-
urgeirsson,“ segir í tilkynningu.
Miðasala er á tix.is.
Godspell sýndur í kvöld
Söngelsk Gospelkór Jóns Vídalíns.
Forynjur, ævintýri og fíflagangur
nefnist myndasögusýning sem Þórey
Mjallhvít opnar í myndasögudeild
Borgarbókasafnsins í Grófinni í dag
kl. 16. „Á sýningunni getur að líta
ýmis verk eftir Þóreyju Mjallhvíti, en
sérstaklega brot úr myndasögunni
um bókabéusinn Ormhildi, sem kem-
ur út á bók hjá Sölku Verðandi í sept-
ember. „Ormhildur er myndasaga
fyrir unglinga jafnt sem fullorðna
byggð á íslenskum þjóðsöguheimi.
Sagan gerist í heimsendaframtíð
þegar jöklarnir hafa bráðnað og
þjóðsagnakvikindi ráða ríkjum.
Hjarðir skoffína vappa um eyjurnar
og skuggalegir nykrar bíða næsta
fórnarlambs við næsta poll. Íslend-
ingar kúldrast á eyjum sem hafa
myndast þegar Atlantshafið flæddi
yfir meginlandið og eru í stöðugri
lífshættu.“
Myndverk Þóreyjar má skoða á
vefnum mjallhvit.is, og Ormhildi má
kynna sér betur á slóðinni
ormhildur.wordpress.com.
Forynjur, ævintýri og fíflagangur
Listakona Þórey Mjallhvít.
Mótíf, sviðslistahátíð nemenda
LHÍ, fer fram í annað sinn dagana
3.-5. júní. Að þessu sinni hefur
nemendum úr samstarfsskólum á
Norðurlöndunum verið boðið að
sýna á hátíðinni, en alls verða
sýnd sex verk og eru höfundar
þeirra ýmist dansarar eða leik-
konur. Verkin eiga það öll sameig-
inlegt að rannsaka tengsl mann-
eskjunnar við umhverfið og
áhorfandann á einn eða annan
hátt. Verkin eru sýnd á ýmsum
stöðum, en allar nánari upplýsing-
ar um sýningarstað og -tíma sem
og aðstandendur eru á Face-
book-síðunni: facebook.com/
motifhatid. Aðgangur er ókeypis.
Sex sýningar á sviðslistahátíðinni Mótíf
Ljósmynd/Jonne Renvall
Losti Sara-Maria Heinonen og Katariina
Havukainen, leiklistarnemar við Háskólann
í Tampere, sýna A Streetcar Named Lust.
Dómnefnd Hins íslenska glæpa-
félags um Blóðdropann hefur lokið
störfum og tilkynnt þær tíu bækur
sem tilnefndar eru til Blóðdropans
þetta árið. Bækurnar sem komu til
greina að þessu sinni eru í stafrófs-
röð: Dimma eftir Ragnar Jónasson;
Flekklaus eftir Sólveigu Pálsdótt-
ur; Gildran eftir Lilju Sigurðar-
dóttur; Hilma eftir Óskar Guð-
mundsson; Konur húsvarðarins
eftir Róbert Marvin Gíslason;
Morðin í Skálholti eftir Stellu
Blómkvist; Myrkrið eftir Ágúst
Borgþór Sverrisson; Nautið eftir
Stefán Mána; Sogið eftir Yrsu Sig-
urðardóttur og Þýska húsið eftir
Arnald Indriðason.
Í dómnefnd Blóðdropans eru
Úlfar Snær Arnarson formaður,
Kristján Jóhann Jónsson og Guð-
rún Ögmundsdóttir.
Úrslitin verða tilkynnt og Blóð-
dropinn afhentur föstudaginn 10.
júní á Borgarbókasafninu í Grófinni
og hefst athöfnin klukkan 17.
Blóðdropinn, hin íslensku glæpa-
sagnaverðlaun, var afhentur í
fyrsta sinn haustið 2007. Verð-
launabókin er framlag Íslands til
Glerlykilsins, norrænu glæpasagna-
verðlaunanna.
Tíu bækur tilnefndar
Blóðdropinn Meðal fyrri vinningshafa Blóðdropans eru Yrsa Sigurð-
ardóttir, Arnaldur Indriðason og Stefán Máni. Þau eru öll tilnefnd í ár.
Ljósmynd/Árni Sæberg Morgunblaðið/GolliMorgunblaðið/Árni Sæberg