Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottum fatnaði. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Strandveiðar og önnur þróun í út- gerð og sjósókn kallar á að í starfi sjóbjörgunarsveita Slysavarna- félagsins Landsbjargar sé nýjum aðstæðum mætt hringinn í kring- um landið. Á vegum félagsins eru gerð út alls þrettán björg- unarskip, sem mörg eru komin vel til ára sinna svo að þörf er á endurnýjun þeirra. „Um þessar mundir erum við að end- urmeta áherslur í skipaútgerð- inni, í tengslum við samning milli félagsins og innanríkisráðuneyt- isins um endurbætur á flotanum. Einn af skilmálunum þar er að skoða skuli hvort staðsetning og heimahafnir skuli vera þær sömu og verið hefur. Skýrsla um málið á að liggja fyrir í haust og í fram- haldi af því verða ákvarðanir tekn- ar,“ segir Jón Svanberg Hjart- arson, framkvæmdastjóri félagsins. „Við erum að fara yfir staðsetn- ingu skipanna og könnum jafn- framt hvort þörf sé á stærri og öfl- ugri skipum á fyrirframákveðnum stöðum. Þetta erum við að skoða núna í samvinnu við Landhelg- isgæslu, Landssamband smábáta- eigenda og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.“ Margir á vestursvæði Að björgunarskip séu til staðar og jafnan útkallshæf segir fram- kvæmdastjóri að sé mjög mik- ilvægt, en sums staðar sé þörfin fyrir þau jafnvel meiri en annars staðar. Í því sambandi megi til dæmis nefna vestursvæðið, en þar er jafnvel í meiri mæli en annars staðar gerður út mikill fjöldi lítilla báta sem sækja á Breiðafjarðarmið og fiskislóðina úti af Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Á þessu svæði eru gerð út þrjú björgunarskip, frá Rifi, Patreksfirði og Ísafirði. „Björgunarskipin og áhafnir þeirra eru, eins og aðrir í okkar starfi, til taks ef vá steðjar að. Einnig sinna menn á bátunum þjónustuverkefnum fyrir útgerðina sem skapar aukatekjur, svo sem ef skjótast þarf með varahluti í skip- in, flytja mannskap og svo fram- vegis,“ nefnir framkvæmdastjór- inn. Viðspyrna með bakvörðum Það var upp úr 1990 og á næstu árunum þar á eftir sem Slysa- varnafélagið Landsbjörg fékk björgunarskipin góðu, sem keypt voru notuð frá systursamtökum í Bretlandi og Þýskalandi. Þessi skip hafa reynst vel en eru komast á tíma því þau elstu nálgast nú 40 árin. Fyrir vikið getur viðhaldsþörf skipanna verið meiri en ella og því er horft til endurnýjunar. Það verður hins vegar talsverður hjalli að komast yfir, því að skip eins og þessi kosta hundruð milljóna króna, jafnvel þótt notuð séu. Á síðustu árum hefur verið lagt kapp á að fjölga svonefndum Bak- vörðum Slysavarnafélagsins Land- bjargar. Eru þeir nú orðnir alls um 13.000; fólk og fyrirtæki sem greið- ir ákveðna fasta upphæð til félags- ins mánaðarlega. „Þetta hefur breytt miklu fyrir björgunar- og slysavarnastarf í landinu og er orð- ið mikilvæg stoð í allri fjáröflun. Þessir peningar hafa hjálpað okkur að ná nýrri viðspyrnu í starfsem- inni. Mörg undanfarin ár þurfti endurnýjun á tækjabúnaði, bílum, bátum, vélsleðum og öðru að sitja á hakanum. Bakverðirnir og framlag þetta hafa gert þetta allt miklu við- ráðanlegra,“ segir Jón Svanberg. Björgunarskipin í endurskoðun  Hugsanlega stærri skip og nýjar hafnir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Snæfellsnes Björg hefur heimahöfn á Rifi og er útgerð þess þegar liðsinna þarf sjófarendum við Breiðafjörð. Jón Svanberg Hjartarson „Blaðberalaunin fara óskert í ferðasjóðinn og við stefnum á út- lönd í haust,“ segir Halldóra Björk Ragnarsdóttir. Hún hefur síðasta árið eða þar um bil borið Morg- unblaðið út til áskrifenda í Sunda- hverfinu í Reykjavík. Sjálf býr hún við Sæviðarsund og dreifir blaðinu í þeirri götu og reyndar fleirum í grenndinni. Er hún með mikið undir um þessar mundir svo að skammturinn nálgast 300 blöð. Morgunblaðið kemur úr prent- smiðjunni fyrri hluta nætur og er þá dreift til blaðberanna, sem eiga næsta leik. „Að undanförnu hef ég farið á fætur um klukkan hálf fjögur og lagt af stað með blöðin. Oft er þetta um tveggja tíma gangur en ég reyni að vera komin aftur í hús fyrir klukkan sex til að ná smá blundi áður en hefðbund- inn vinnudagur tekur við,“ segir Halldóra, sem er gamalreynd sem blaðberi. Eldhús í boði Árvakurs Halldór er gamalreynd sem blaðberi. Hún var í því starfi fyrir tæpum áratug og söfnuðust þá peningar sem dugðu til mikilla endurbóta á heimili fjölskyldu hennar. „Já, við tókum eldhúsið allt í gegn, sem var nokkurra milljóna króna framkvæmd. Ég segi stund- um að Mogginn hafi borgað brús- ann; eldhúsið var í boði Árvakurs,“ segir Halldóra Björk, sem er gift Birni Steingrímssyni og fara þau oft saman í blaðburðinn. Aðal- starfið er hins vegar formennska í Kattavinafélagi Íslands, sem meðal annars rekur Kattholt á Stangar- höfðanum í Reykjavík, og þar stendur okkar kona vaktina. sbs@mbl.is Kattakona með 300 Mogga  Blaðberi í Sæviðarsundi  Safnar fyrir utanlandsferð og endurbætti húsið  Fer í tveggja tíma næturgöngu Morgunblaðið/Árni Sæberg Með kisu Halldóra B. Ragnasdóttir er formaður í Kattavinafélagi Íslands. Björgunarskipin eru 13 og stað- sett þar sem slysahætta er talin mest vegna sjósóknar. Áhafnir eru mannaðar sjálfboðaliðum en umsjónarmaður hvers skips fær greitt fyrir hlutastarf. Er hann ábyrgur fyrir því að björg- unarskipið sé ávallt klárt í út- kall. Áhafnir eru í nánu sam- starfi við Vaktstöð siglinga, en öll boðun til aðgerða á sjó kem- ur þaðan. Viðbragðstími skip- anna er 5-20 mínútur. Þar sem hætt- an er mest ÁHAFNIR KLÁRAR Sýningin um Ís- landsgöngu Reynis Péturs Steinunnar- sonar, áður Ingv- arssonar, sem sett var upp í til- efni 30 ára gönguafmælis 1985-2015, verð- ur aftur uppi í Íþróttahúsi Sól- heima á Menningarveislu Sólheima í sumar. Hefst sýningin á morgun og stendur til 14. ágúst. Verður hún opin frá kl. 12-18 alla daga. Reynir Pétur gengur aftur á Sólheimum Reynir Pétur Steinunnarson Íslandsmótið í kotru fer fram um helgina í húsakynnum Skáksambands Íslands í Faxa- feni. Mótið hefst kl. 18 í dag og verður fram haldið á morgun. Tólf leikmenn spila til úrslita, sem komust úr undanúrslitum. Spil- ið kotra á vaxandi vinsældum að fagna en áhorfendur eru boðnir velkomnir í Faxafenið. Íslandsmótið í kotru haldið um helgina Íslandsmót Kotra er spennandi spil. Eldsmíðahátíð fer fram á Byggðasafninu í Görðum á Akra- nesi um helgina. Þar munu nokkr- ir af fremstu eld- smiðum landsins sýna listir sínar og erlendir eld- smiðir verða með sýnikennslu og þriggja tíma örnámskeið fyrir al- menning. Á sunnudeginum fer síðan fram Íslandsmót í eldsmíði og hefst kl. 11. Eldsmiðir landsins keppa á Akranesi Eldsmíði Með mörg járn í eldinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.