Morgunblaðið - 03.06.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.06.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016 Smáratorgi, Kópavogi Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-18.00 Sunnudaga 12.00-18.00 Vínlandsleið, Grafarholti Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-16.00 Sunnudaga 13.00-17.00 Markaður Smáratorgi Outlet Grafarvogi 60% 50% 50% 40% 40% LÁGMARKS- AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM NÚ 40%60% Stefnir í umhverfisslys á Látrabjargi  Hluti landeigenda stöðvar friðlýsingarferli  Umhverfisstofnun dregur úr þjónustu á svæðinu haft áhuga á að stofna þjóðgarð á svæðinu. Meirihluti landeigenda hefur verið jákvæður fyrir hugmyndinni og forystumenn landeig- endafélagsins Bjargtanga unnið að framgangi þess. Lengi hefur þó verið vitað um andstöðu innan hópsins. Náðu hinir síðarnefndu völdum í félaginu á nýlegum aðalfundi. Í lögum um náttúruvernd er kveðið á um að Umhverfisstofnun skuli hafa samráð við land- eigendur og leitaði stofnunin eftir samþykki fyrir áframhaldandi vinnu. Hætta á skemmdum vegna ferðafólks Unnið er að friðlýsingu Látrabjargs á grunni náttúruverndaráætlunar. Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofn- un, segir að Látrabjarg sé mikilvægt fugla- svæði á evrópska vísu og mikilvægt talið að vernda það. Talið er að þangað leggi um 100 þúsund ferðamenn leið sína á hverju sumri. Starfsmað- ur Umhverfisstofnunar hefur annast land- vörslu á sumrin. Sigrún segir að almennt sé ekki landvarsla utan friðlýstra svæða. Því verði landvarsla þarna í lágmarki. Segir hún þó að landvörður á sunnanverðum Vestfjörðum muni líta til með svæðinu. Stofnunin muni ekki vinna að frekari uppbyggingu fyrir ferðafólk að sinni. Hún segir að hætta sé á skemmdum af völdum stjórnlausrar umferðar ferðafólks og minni möguleikar á að huga að öryggi fólks. Sigrún tekur það fram að ef afstaða landeig- enda breytist verði hægt að taka þráðinn upp að nýju. Morgunblaðið/Ómar Lundi Látrabjarg er alþjóðlega mikilvægt svæði fyrir sjófugla sem áhugi er á að vernda. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það þýðir að þarna valsar fullt af ferðafólki stjórnlaust um og engin klósett verða opin. Það stefnir í umhverfisslys,“ segir Keran St. Ólason, bóndi og ferðaþjónn í Breiðavík við Látrabjarg. Vinna við friðlýsingu Látrabjargs og nágrennis hefur stöðvast vegna andstöðu hluta landeigenda. Í allnokkur ár hefur verið unnið að und- irbúningi friðlýsingar Látrabjargs og ná- grennis. Sveitarfélagið Vesturbyggð og Um- hverfisstofnun hafa unnið að því í samvinnu við landeigendur. Vesturbyggð hefur raunar Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Nýlega var kynnt ákvörðun um fyr- irhugaðar breytingar á tímasetningu og framkvæmd samræmdra prófa við lok grunnskóla. Er það mat Skóla- stjórafélags Íslands og Félags grunn- skólakennara að lítið samráð hafi ver- ið haft við hagsmunaaðila um ákvörð- unina. Meðal þess sem gert er athuga- semd við er sú ákvörðun að árgangur 2001 taki samræmd könnunarpróf við lok 10. bekkjar, einn árganga, vorið 2017, þ.e. sömu daga og nemendur 9. bekkjar. „Við teljum þetta alls ekki æskilegt því prófið var fært fram svo nemend- ur hefðu 10. bekkinn til að ná mark- miðum sínum. Þegar prófið er svo fært aftur til loka 10. bekkjar, eins og hér er gert ráð fyrir, þá er ekki verið að vinna með hagsmuni nemenda að leiðarljósi,“ segir Guðbjörg Ragnars- dóttir, varaformaður Félags grunn- skólakennara, í samtali við Morgun- blaðið, og bætir við að með þessu sé tilgangur prófanna orðinn afar óljós. Hefði átt að fella prófið niður Könnunarprófin hafa fram til þessa verið lögð fyrir nemendur skriflega, en nú stendur rafræn fyrirlögn til. Betra hefði verið, að sögn Guðbjarg- ar, að halda skriflegt próf um haustið fyrir þá nemendur sem fæddir eru 2001 þar sem ekki náðist að útbúa fyr- ir þau rafræn próf í tíma. „En fyrst ekki var hægt að gera skriflegt próf fyrir nemendur sem eru í 10. bekk er eðlilegast að fella prófið niður, en slíkt var gert við síðustu breytingar á þess- um prófum.“ Skólastjórafélag Íslands hefur þeg- ar sent Menntamálastofnun erindi vegna þessa máls þar sem m.a. er krafist frekari útskýringa á þessum ákvörðunum og segir Guðbjörg að Félag grunnskólakennara muni einn- ig gera slíkt hið sama á næstu dögum. Gagnrýna skort á samráði  Skólastjórar og kennarar gagnrýna fyrirkomulag samræmdra prófa Morgunblaðið/Eyþór Nemendur Prófið verður rafrænt. Hæstiréttur staðfesti í gær þriggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tveimur karl- mönnum sem frömdu vopnað bankarán í útibúi Landsbankans í Borgartúni í Reykjavík í lok desember á síðasta ári. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar og krafðist þess að refsing ákærðu yrði þyngd. Mennirnir stukku yfir afgreiðslu- borð þar sem fimm starfsmenn bankans voru og ógnaði Ólafur Ingi Gunnarsson, annar ræningjanna, gjaldkera bankans með eftirlíkingu af skammbyssu sem hann hélt að höfði gjaldkerans. Skipaði hann gjaldkeranum að opna þrjár sjóðs- vélar sem hann tæmdi peningana úr á meðan Jóel Maron Hannesson, hinn ræninginn, tók peninga sem voru á afgreiðsluborði og setti í poka sem hann hafði meðferðis. Menn- irnir höfðu 588 þúsund kr., 1.080 evrur, 10 þúsund japönsk jen, 500 danskar krónur og 20 pund með sér af vettvangi. Bankaræningjunum var gert að greiða allan áfrýjunarkostnað máls- ins, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna fyrir Hæstarétti, eða um 700 þúsund krónur hvor um sig. Banka- ræningjar í þriggja ára fangelsi  Hæstiréttur stað- festi dóm héraðsdóms Kirkjukór Húsavíkurkirkju heldur í kvöld tónleika um borð í skonnortunni Opal, sem þá verður úti á Skjálfanda. Áheyrendur verða í hvalaskoð- unarbátunum Garðari og Náttfara, sem eru eins og Opal í eigu Norðursigl- ingar. Lagt verður úr höfn frá Húsavík kl. 20.30. „Við ætlum að syngja nokkur lög í anda sumarsins og þetta á að verða skemmtilegt,“ segir for- maður kórsins, Pétur Helgi Pétursson. Það sem gerir tónleikana í kvöld óvenjulega, auk staðsetningarinnar, er að reynt verður að lokka hvalina að með söng. Vatnsheldir hátalarar verða settir í sjó og allt sett á hæsta styrk þegar kórfélagarnir, sem eru alls 35, hefja upp raust sína svo ómar um sæinn. Einsöngvarar á tónleikunum í kvöld eru Baldur Baldvinsson og Aðalsteinn Júlíusson og stjórnandi er Jörg Sönderman. Kirkjukórinn á Húsavík syngur fyrir hvali Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.