Morgunblaðið - 03.06.2016, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Hámarkaðu árangur þinn
Á milli þín og keppinauta þinna, þarf að jafna metin. Að brjóta tímamúra.
Kepptu við þá bestu með Edge 520, GPS reiðhjólatölva sem gefur þér færi á
að keppa við Strava tímakafla í rauntíma og þú sérð um leið árangurinn á skjánum.
Æfingin skapar
meistarann
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
Um 80% manns á Vestur-löndum geta átt von á aðfá verki í mjóbakið ein-hvern tímann á ævinni.
Góðu fréttirnar eru þær að með
reglulegum og sértækum æfingum
ættu flestir að geta komið í veg fyrir
að fá þá oftar en einu sinni. Sú er
a.m.k. niðurstaða umfangsmikillar
rannsóknar á því hvernig best megi
fyrirbyggja verki af þessu tagi.
Bakverkir eiga sér ýmsar skýr-
ingar. Lífsstíll, erfðir, starf, íþrótta-
meiðsl, snjómokstur eða einskær
óheppni koma oft við sögu. Fram
kom í The New York Times nýverið
að yfirleitt væri lítið vitað um undir-
liggjandi þætti.
Upp úr sófanum!
Þar segir að fyrsta verkjakastið
líði oftast hjá á um það bil viku, en í
75% tilvika taki verkirnir sig aftur
upp innan árs ef ekkert sé að gert og
geti þá verið mjög kvalafullir. Sá
bakveiki hafi tilhneigingu til að
leggjast upp í sófa, slaka á og
hvíla sig til að reyna að lina
kvalirnar. Slíkt sé afar mis-
ráðið því þar með lendi
viðkomandi í vítahring
sem erfitt sé að
rjúfa.
Að hreyfa hvorki
legg né lið kann því
ekki góðri lukku að
stýra þegar bakverk-
ir eru annars vegar. Bat-
inn verður hvort tveggja
hægari og sá bakveiki verr í
stakk búinn en ella til að takast á
við ýmsar daglegar athafnir þegar
hann loks kemst á ról. Kvalir og
hreyfingarleysi haldast þannig í
hendur og líkur eru á að æ styttra
verði á milli kastanna.
Fram til þessa virðast fáar rann-
sóknir markvisst hafa snúist um að
kanna hvað raunverulega gagnist til
að fyrirbyggja endurtekna bakverki
eða hvað sé annaðhvort gagnlaust
eða til óþurftar. Sú var að minnsta
kosti niðurstaða vísindamanna við
George Institute for Global Health í
rannsókn sem þeir gerðu í samstarfi
við Háskólann í Sydney í Ástralíu og
fleiri stofnanir. Rannsókn þeirra
fólst í að safna saman, greina og
draga ályktanir af rannsóknum sem
áður höfðu verið gerðar og þóttu
hvað marktækastar.
Niðurstöðurnar birt-
ust í læknatímaritinu
JAMA Internal Me-
dicine og fylgdi
sögunni að furðu
fáum hágæðarann-
sóknum hefði verið
hægt að byggja á.
Fræðsla
og forvarnir
Eftir að rann-
sókn-
ar-
teymið hafði farið í gegnum sex þús-
und rannsóknir á fyrirbyggjandi að-
gerðum gegn bakverkjum var niður-
staðan sú að einungis 23 reyndust
aðferðafræðilega fullnægjandi.
Samanlagt voru þátttakendur í
rannsóknunum rúmlega þrjátíu þús-
und bakveikar manneskjur, sem
höfðu fengið fræðslu um lífs-
tílsbreytingar, skóinnlegg,
bakbelti og margvíslegar
líkamsæfingar í forvarnar-
skyni.
Slíkar forvarnir voru
metnar árangursríkar ef
þátttakendur höfðu ekki
fengið annað verkjakast
innan árs og ekki þurft að
vera frá vinnu vegna bak-
verkja á þeim tíma.
Í ljós kom að sárafáir
náðu þeim ár-
angri.
Fræðsla ein og sér hafði ekkert að
segja, bakbelti og spelkur gerðu
sama og ekkert gagn og þátttakend-
ur sem ekki höfðu reynt annað til að
fyrirbyggja bakverki voru líklegir til
að fá annað kast innan árs.
Hins vegar reyndust líkams-
æfingar með eða án fræðslu árang-
ursríkasta forvörnin. Um 45% þeirra
sem gerðu æfingar höfðu ekki fundið
fyrir bakverkjum í ár frá því þeir
byrjuðu að æfa. Rannsóknarteyminu
kom á óvart að einu virtist gilda
hvers konar æfingar þátttakendur
gerðu. Sumir lögðu áherslu á að
styrkja búkinn og bakvöðvana, aðrir
á alhliða leikfimisæfingar til að auka
styrk og jafnvægi.
Flest ber að sama brunni
Í flestum rannsóknunum voru
þátttakendur beðnir um að æfa und-
ir faglegri leiðsögn tvisvar eða þrisv-
ar í viku í um tvo mánuði. Flest bar
að sama brunni; bakveikir sem
stunduðu reglulega líkamsrækt voru
umtalsvert ólíklegri til að fá verki
innan árs frá síðasta kasti en
þeir sem ekkert aðhöfðust.
Að mati dr. Chris Ma-
her, prófessors við
George-stofnunina,
sem fór fyrir rann-
sókninni er þó
ómögulegt að meta
langtímaáhrif líkams-
ræktar eða hvort ein teg-
und sé mælanlega betri en
önnur. Rannsóknarteymi hans
hyggst gera eigin rannsóknir á
mismunandi æfingakerfum og fylgja
þátttakendum eftir í mörg ár. Maher
segir að þrátt fyrir alls konar mögu-
leika sem boðið er upp á til að fyrir-
byggja bakverki séu aðeins sannanir
fyrir að einn virki – regluleg líkams-
rækt.
Að þessu sögðu skal þó áréttuð
nauðsyn þess að leita áður til læknis
og fá úr því skorið hvort brjósklos
eða annað slíkt valdi verkjunum og
fara að ráðum hans í einu og öllu.
Ekki hreyfa hvorki legg né lið
Um 80% Vesturlandabúa eru talin fá bakverki einhvern tímann á ævinni. Rannsóknarteymi í Ástralíu
safnaði saman og greindi rannsóknir sem gerðar hafa verið í áranna rás á leiðum til að fyrirbyggja
endurtekna verki af því taginu. Aðeins eitt virðist í stöðunni – ekki þó kyrrstaða.
GettyImages
Hjólreiðakeppnin KexReið, sem Kex
Hostel og Kria Cycles standa að,
verður haldin í fjórða sinn á morg-
un, laugardag 4. júní. KexReið fer
fram í Skuggahverfinu um braut
sem liggur um Skúlagötu og
Hverfisgötu. Hjólað verður niður
Hverfisgötu, Klapparstíg, Skúlagötu
og Barónsstíg.
Keppendur í B-flokki verða ræstir
út kl. 16 og A-flokkur klukkan 17
við almenningsgarð Kex Hostel,
sem í daglegu tali er kallaður Vita-
garður. Hringurinn í ár er 1,45 kíló-
metri, sem er örlítið styttra en
undanfarin ár, og er það vegna
framkvæmda á Hverfisgötu.
Skráning á heimasíðu
Hámarksfjöldi keppenda í Kex-
Reiðinni í ár er eitt hundrað. Hægt
er að skrá sig til leiks á heimasíðu
Hjólamóts, www.hjolamot.is, í síð-
asta lagi kl. 14 á morgun, laugardag.
Þáttökugjald er 4.000 kr. Veitt
eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í
kvenna- og karlaflokki.
Til að tryggja öryggi keppenda
sem og annarra vegfarenda á
keppnissvæði verður götum lokað
og öryggisgæsla á keppnishringnum.
Helstu samstarfsaðilar keppn-
innar eru Vodafone, Valitor, Hjálp-
arsveit skáta í Kópavogi, Kormákur
& Skjöldur, Farmers Market, Geysir,
JÖR, Hverfisgata 12 Veitingastaður,
Mikkeller & Friends Reykjavík, Reið-
hjólaverzlunin Berlín og Vífilfell.
Hjólreiðakeppni 2016
Fjórða KexReið-
in á morgun
Öryggi Skylda að vera með hjálm.
Hvað eigum við að borða íkvöld? Hvað eigum viðað horfa á í kvöld?“Þessar tvær spurningar
dynja á mér oft og svör mín eru yf-
irleitt jafn gáfuleg: „Ég veit það
ekki,“ er algengasta svarið við flestu
sem baunað er á mig. „Hvað sem er,
bara ekki fisk,“ er líka vinsælt svar
og „eigum við ekki að horfa á vin
minn hann Frasier?“ er oft svar við
áhorfsspurningunni.
Flestir kannast eflaust við þessi
risastóru vandamál. Ég fæ hnút í
magann við það eitt að hugsa um að
núna (klukkan 11.20 á fimmtudegi)
hef ég ekki hugmynd um hvað ég
ætla að borða í kvöldmat. Allt
nema fiskur er því
enn möguleiki. En
ég er að fara í bíó
þannig að ég slepp
við þá kvöl sem
fylgir því að velja
eitthvað til að horfa á.
Kannski ég ætti
bara að lesa bækur
á kvöldin?
Aðrar spurningar
hafa bæst við hefð-
bundna listann síðustu
vikur. „Hvern ætlarðu að
kjósa til forseta, hvað
finnst þér um þorska-
stríðin og hvern studdir
þú í bardögunum á Sturl-
ungaöld?“ Ég hef aðeins
klórað mér í kollinum yfir
þessum fyrri tveimur
spurningum en Sturla
Þórðarson í Hvammi í
Dölum var minn maður hér í den.
Þorskastríðin eru orðin jafn vinsælt
umræðuefni og þau voru árið 1975.
Það ár voru foreldrar mínir 16 ára
þannig að þetta gæti verið hluti af
Íslendingasögunum. Vonandi höfum
við eitthvað þroskast frá þorska-
stríðunum og Sturlungaöld.
Spurningunni hver verður næsti
forseti Íslands er enn ósvarað þó
að ég sé búinn að ákveða hvern/
hverja ég kýs. Annars þyrfti að
breyta dagsetningu forseta-
kosninganna. Helmingur
Íslendinga mun 25. júní
útskrifast úr Háskóla
Íslands og hinn
helmingurinn verð-
ur í Frakklandi að
hvetja strákana
okkar til dáða.
Það þarf allavega
að láta fólk blása áð-
ur en það kýs utan-
kjörfundar eftir útskrift-
irnar og í Frakklandi.
»Ég hef aðeins klóraðmér í kollinum yfir
þessum fyrri tveimur spurn-
ingum en Sturla Þórðarson
í Hvammi í Dölum var
minn maður hér í den.
HeimurJóhanns
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is