Morgunblaðið - 03.06.2016, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
750 kg álkerra opnast að fram og aftur-
gafli. Verð kr. 275.000 stgr. Gerð 1374.
Stærð 251x131 cm.
Einnig til með sturtum.
Gerð 1384. Verð kr. 298.000 stgr.
Vélavagnar og bílakerrur í
ýmsum stærðum og gerðum.
Ál og stál sturtukerru og flatvagnar,
margar gerðir og stærðir.
Létt og sterk 750 kg álkerra á frábæru
verði kr. 149.900 stgr.
Gerð 1380. Stærð 201x102 cm.
Fyrir bændur og iðnaðarmenn, 1300 kg álk-
erra á einum öxli frábæru verði. Gerð 1339.
Stærð 303x150 cm. Verð kr. 450.000 stgr.
2500 kg tveggja öxla kerra
fyrir bændur og iðnaðarmenn.
Gerð 2331. Stærð 303x150 cm.
Verð kr. 560.000 stgr.
Ál- og stálkerrur
Smiðjuvegi 40, gul gata, Kópavogi, sími 517 7718, topplausnir.is
Sýning laugardaginn 4. júní
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Frambjóðendurnir níu til forseta Íslands nota
ýmsar aðferðir til að vekja athygli á sér og
sínum málstað. Greina má sameiginlegar
áherslur milli kosningaherferða frambjóðend-
anna en jafnframt er margt ólíkt með þeim.
Það sem helst skilur á milli fjögurra fylgis-
mestu framboðanna og hinna fimm fylgis-
minni eru burðir til að halda úti kosninga-
skrifstofu og öflugu sjálfboðastarfi.
Morgunblaðið hafði samband við framboðin,
ýmist kosningastjórann eða frambjóðandann
sjálfan, og spurðist fyrir um helstu aðferðir
þeirra til að ná til kjósenda.
Öflugt sjálfboðastarf
„Það er gríðarlegur fjöldi fólks, sem er
tilbúið til að styðja við bak Guðna með einum
eða öðrum hætti,“ segir Friðjón Friðjónsson,
talsmaður framboðs Guðna Th. Jóhannes-
sonar. Guðni hefur verið á ferðalagi um allt
land til að funda með landsmönnum og sjálf-
boðaliðar hafa unnið hörðum höndum að því
að hringja út til að kynna fundina. Fjármögn-
un hefur gengið vel og segir Friðjón að fram-
boðinu berist mikið af smáum framlögum frá
venjulegu fólki og borist hafi mörg hundruð
framlög. Framboðið heldur úti tveimur kosn-
ingamiðstöðvum, einni á Akureyri og annarri
á Laugavegi í Reykjavík.
Framboð Davíðs Oddssonar notast við ný-
stárlegt kosningakerfi að sögn Erlu Gunn-
laugsdóttur kosningastjóra. „Nokkur hundr-
uð manns hafa haft beint samband og síðan
höfum við sett upp nýtt kosningakerfi sem er
það fyrsta sinnar tegundar í þessum bransa.“
Áhugasamir geta skráð sig á heimasíðu fram-
boðsins og tekið margvíslegan þátt í starfinu.
Á Facebook-síðuna hafa verið sett myndbönd,
þar sem Davíð veitir svör við algengum
spurningum. Nýlega þurfti að aflýsa ferðalagi
Davíðs um landið vegna veikinda móður hans.
Líflegt í kosningamiðstöðinni
Kosningabarátta Andra Snæs Magnasonar
hefur verið viðburðarík og skemmtileg að
sögn Gríms Atlasonar kosningastjóra. „Við
höfum haldið viðburði sem tengjast menn-
ingu, lýðræði og náttúru og mætingin er allt
frá 30 til 1.500 manns.“ Á döfinni eru tón-
leikar með valfrjálsum framlögum og lista-
verkauppboð þar sem annar helmingur upp-
hæðarinnar fer til framboðsins og hinn til
náttúrunnar. Samfélagsmiðlar hafa markvisst
verið notaðir til að kynna efni sem snýr að
Andra Snæ og málefnum sem hann setur á
oddinn.
Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar,
Björn Skúlason, fóru nýverið hringinn um
landið til að kynna stefnumálin. Hún hefur
lagt upp úr því að stunda heimsóknir til
vinnustaða, dvalarheimila og skóla. Vigdís Jó-
hannsdóttir kosningastjóri segir að framboðið
hafi nýtt sér samfélagsmiðla í miklum mæli.
„Halla hefur verið í beinni útsendingu á
þriðjudögum klukkan 13 á Facebook-síðu
sinni sem gefur fólki tækifæri til að hitta
hana og beina til hennar spurningum.“ Á
kosningaskrifstofunni hafa þau staðið að
heimboðum. Síðasta laugardag var vöfflukaffi
og næsta laugardag verður boðið upp á ban-
ana og skyrdrykk eftir kvennahlaupið.
Bein útsending hvern sunnudag
Ástþór Magnússon hefur notfært sér sam-
félagsmiðla með ýmsu móti. Á Facebook-síðu
framboðsins setur hann reglulega inn mynd-
bönd þar sem hann gerir stefnumálum sínum
skil og heimasíðan er full af kynningar- og
fræðsluefni. Á sunnudögum klukkan 8 er
hann í beinni útsendingu á Facebook -síðu
sinni þar sem hann situr fyrir svörum og
kynnir málstað sinn betur.
Elísabet Kristín Jökulsdóttir hefur að-
allega miðlað upplýsingum um kosninga-
framboð sitt gegnum Facebook en langar til
að ferðast um landið og gera því betri skil.
Hún segist hafa þannig stíl að hún kveðji sér
hljóðs þegar við á. „Framboðið byrjaði þann-
ig að ég stóð upp í banka og kvaddi mér
hljóðs. Það var ekki auglýst eða skipulagt
heldur sjálfsprottið. Þannig er minn stíll, ég
stend ekki fyrir framan fólk heldur meðal
þess,“ segir Elísabet.
Síðustu tvær vikur hafa einkennst af stöð-
ugum fjölmiðlafundum hjá Sturlu Jónssyni
en nú stefnir hann á að hefja fundaherferð.
„Ég set myndbönd og skriflega pistla á
Facebook-síðuna. Í gær birtist pistill um um-
fjöllun RÚV, sem 2.300 manns hafa horft á
og 90 hafa deilt.“ Spurður um sjálfboðastörf
segir Sturla að þrír einstaklingar hjálpi hon-
um við framboðið.
Hildur Þórðardóttir hefur heimsótt fyrir-
tæki og sinnt viðtölum í útvarpi og sjónvarpi.
Í samstarfi við tvo kvikmyndagerðarmenn
hefur hún sett saman um tveggja mínútna
kynningarmyndband, sem er í dreifingu á
Facebook og mun birtast á RÚV fyrir kosn-
ingar. Hildur segir að litadýrð sé hluti af
kosningaherferðinni. „Ég geng í litríkum
klæðnaði, það er mín leið til að vekja at-
hygli.“ Hún bætir við að greinaskrif sín hafi
haft áhrif, hún skrifi frá hjartanu og fólk
skynji það.
„Ég hef verið að bera bæklinga í blokkir
og raðhús. Ég hef einnig sent þá út á land
þar sem ég þekki til og veit að fólk er tilbúið
að hjálpa,“ segir Guðrún Margrét Pálsdóttir.
Bæklingarnir, sem eru þrjátíu þúsund tals-
ins, voru gjöf frá velvildarmanni en annars
hefur hún afþakkað framlög. „Við ákváðum
að biðja engan um neitt og gefa ekki upp
reikningsnúmerið á heimasíðunni.“ Auk
bæklinganna hefur Guðrún mætt í fjölmiðla-
viðtöl og heldur úti vefsíðu fyrir framboðið.
Framboð beita ólíkum aðferðum
Forsetaframbjóðendur nota litrík klæði, fundahöld og menningarviðburði til að ná til kjósenda
Misjafnt er milli frambjóðenda hvort haldið er úti kosningaskrifstofu og skipulögðu sjálfboðastarfi
Embætti Níu manns eru í framboði til forseta íslenska lýðveldisins í kosningunum sem fara fram 25. júní. Þar með lýkur 20 ára setu núverandi forseta, Ólafs Ragnars Grímssonar.
Morgunblaðið/Ómar
Leikir íslenska landsliðsins á Evr-
ópumeistaramótinu í knattspyrnu
verða sýndir jafnhliða á RÚV og í
Sjónvarpi Símans. Þetta segir í til-
kynningu frá Símanum.
„Draumur okkar hjá Símanum
hefur frá upphafi verið að bjóða
öllum landsmönnum að sjá þegar
íslenska karlalandsliðið spilar í
fyrsta sinn á stórmóti. Við fögnum
því að RÚV geri þennan draum
okkar að veruleika,“ segir Orri
Hauksson, forstjóri Símans.
Síminn og Vodafone sömdu í
gær um dreifingu á bæði Síman-
umSport og Sjónvarpi Símans,
sem áður hét SkjárEinn.
Samningar náðust ekki
Þeirri fyrrnefndu, áskriftarstöð-
inni að Evrópumeistaramótinu,
verður dreift til 99,9% lands-
manna. Hins vegar þótti ljóst, eftir
að samningar náðust ekki um
dreifingu um svokallað UHF-kerfi
fyrir Sjónvarp Símans, að hluti
þjóðarinnar gæti ekki séð lands-
leikina í opinni dagskrá. RÚV
bauðst þá til að sýna landsleiki Ís-
lands.
„Markmið okkar hjá RÚV er að
stuðla að því að sameina þjóðina
og því er það okkur ánægja að
bjóða Símanum samstarf um þenn-
an merkilega viðburð,“ segir
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri.
RÚV mun sýna
íslensku leikina á
EM í knattspyrnu