Morgunblaðið - 03.06.2016, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 03.06.2016, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016 Forsetakosningar verða laugardaginn 25. júní. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 30. apríl. Sá sem kjörinn verður tekur við embætti við hátíðlega athöfn í Alþingis- húsinu 1. ágúst. Frambjóðendur eru að þessu sinni níu og hafa aldrei verið fleiri. Þeir eru Andri Snær Magnason, Ástþór Magnússon, Davíð Oddsson, Elísabet Jök- ulsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Halla Tómasdóttir, Hildur Þórðardóttir, Sturla Jónsson og Guðrún Margrét Pálsdóttir. Blaðamenn Morgunblaðsins hafa undan- farna daga hitt alla frambjóðendur að máli og birtist afraksturinn í heilsíðuviðtölum við hvern og einn hér á næstu síðum. Fram- bjóðendur völdu staði sér hugleikna til myndatöku. Með þessari kynningu vill blað- ið auðvelda lesendum að móta afstöðu sína til forsetaefnanna áður er gengið er til kosninga. Yfirleitt mikil þátttaka Kjörskrár forsetakosninganna eiga að liggja fyrir ekki síðar en 15. júní. Er líklegt að nærri 240 þúsund kjósendur hafi at- kvæðisrétt. Þeir voru um 236 þúsund fyrir fjórum árum. Þátttaka í forsetakosningum hefur yfirleitt verið mjög góð. Í fyrsta skipti sem kosið var, árið 1952, var kjör- sóknin 82% en um og yfir 90% í næstu kosn- ingum, 1968 og 1980. Kjörsókn var 86% árið 1996 en hrapaði niður í 63% árið 2004. Í kosningunum 2012 var hún rétt innan við 70%. Í kosningunum 1952 voru þrír í framboði; séra Bjarni Jónsson, Gísli Sveinsson og Ás- geir Ásgeirsson, sem var kjörinn. Í kosn- ingunum 1968 voru tveir í kjöri; Gunnar Thoroddsen og Kristján Eldjárn, sem var kjörinn. Árið 1980 voru forsetaefnin fjögur; Albert Guðmundsson, Guðlaugur Þorvalds- son, Pétur Thorsteinsson og Vigdís Finn- bogadóttir, sem var kjörin. Árið 1996 voru frambjóðendur fjórir; Ástþór Magnússon, Guðrún Agnarsdóttir, Pétur Hafstein og Ólafur Ragnar Grímsson, sem var kjörinn. Ólafur varð sjálfkjörinn árið 2000 en fjórum árum seinna buðu sig fram auk hans, sem var kjörinn, Ástþór Magnússon og Baldur Ágústsson. Hlutfall þeirra kjósenda sem skiluðu auðu hefur aldrei orðið jafn hátt í forsetakjöri og í þessum kosningum, rétt um 21%, og má rekja það til harðvítugra stjórnmáladeilna sem forsetaembættið dróst inn í á árinu. Loks voru sex í framboði 2012 auk Ólafs Ragnars, sem var kjörinn; Andrea J. Ólafsdóttir, Ari Trausti Guð- mundsson, Hannes Bjarnason, Herdís Þor- geirsdóttir og Þóra Arnórsdóttir. Forsetaembætti í 72 ár Forsetaembættið er jafngamalt lýðveld- inu, sem er 72 ára á þessu ári. Áður hafði danski kóngurinn verið þjóðhöfðingi Íslend- inga. Fyrsti forsetinn, Sveinn Björnsson, var kosinn af alþingismönnum á þingfundi 17. júní 1944. Kjörið var aðeins til eins árs og skyldi efnt til þjóðkjörs sumarið 1945. Enginn bauð sig fram gegn forsetanum og sama sagan endurtók sig fjórum árum seinna, 1949. Það var því ekki fyrr en 1952 sem forseti Íslands var í fyrsta sinn þjóð- kjörinn. Sú hefð mótaðist að forseti sæti í embætti meðan honum þóknaðist og kom ekki til mótframboðs við sitjandi forseta fyrr en árið 1988. Þá bauð Sigrún Þor- steinsdóttir sig fram gegn Vigdísi Finn- bogadóttur. Hlaut hún um 5% atkvæða en Vigdís um 95%. Forsetinn og stjórnarskráin Ákvæði um völd og verksvið forseta eru í stjórnarskránni. Þegar þau voru sett árið 1944 var byggt á orðalagi í eldri stjórnar- skrá um stöðu konungs í stjórnskipaninni. Skiptar skoðanir voru meðal þingmanna um hver eiginleg völd forseta lýðveldisins ættu að vera og hvort hann ætti að vera þing- kjörinn eða þjóðkjörinn. Niðurstöðuna sem fékkst átti að endurskoða við fyrsta tæki- færi. Það hefur hins vegar ekki verið gert. Hver og einn forseti hefur mótað emb- ættið og valdmörk þess á sinn hátt. Sveinn Björnsson og Ásgeir Ásgeirsson höfðu nokkur afskipti af stjórnmálum bak við tjöldin en afskipti Kristjáns Eldjárns og Vigdísar Finnbogadóttur voru sýnilegri og birtust einkum í því hvernig þau héldu á stjórnarmyndunum. Ekkert þeirra fjögurra beitti valdi til að synja lögum frá Alþingi staðfestingar og varð það smám saman ríkjandi skoðun að þetta ákvæði væri dauð- ur bókstafur. Það breyttist þegar Ólafur Ragnar Grímsson synjaði lögum staðfest- ingar 2004 og síðan tvívegis aftur nokkrum árum seinna. Nú er ekki deilt um að forseti hafi þetta vald en í umræðunum um breyt- ingar á stjórnarskránni hafa verið uppi hugmyndir um að tiltekinn fjöldi kjósenda geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um lög frá Alþingi, óháð afstöðu forseta. Fleiri breytingar á verksviði forseta hafa komið til umræðu en óljóst er hvort eða hvernig stjórnarskránni verður breytt í þessu efni. Sameiningartákn Flestir eru sammála um að hvað sem líð- ur völdum forseta Íslands eigi hann að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Hann talar til landsmanna á merkisdögum og á erfiðum stundum. Hann gegnir æðsta og virðuleg- asta embættinu, er andlit Íslands gagnvart umheiminum og fulltrúi þjóðarinnar meðal annarra þjóðhöfðingja. Þessu hlutverki þarf einhver að sinna, og þótt stundum komi upp umræður um að fela mætti t.d. forseta Alþingis þessi verkefni er afar ólík- legt að slíkar breytingar verði gerðar. Embættið hefur fest sig rækilega í sessi og mikið þarf til þess að einhverjar róttækar breytingar verði gerðar á því. gudmund- ur@mbl.is Forsetakjörið í sumar er hið átt- unda frá stofnun lýðveldis 1944  Fleiri frambjóðendur í boði en í nokkrum kosningum áður  Kjörsókn hefur yfirleitt verið góð Sveinn Björnsson Vigdís Finnbogadóttir Ásgeir Ásgeirsson Ólafur Ragnar Grímsson Kristján Eldjárn FORSETAKOSNINGAR 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.