Morgunblaðið - 03.06.2016, Side 76
76 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Antík
Antíkhúsgögn og munir í úrvali.
Skoðið heimasíðuna.
Erum á Facebook.
Opið frá kl. 10 til 18 virka daga.
Þórunnartúni 6,
sími 553 0755 – antiksalan.is
Dýrahald
Maltese hvolpar til sölu
3 maltese-rakkar, fæddir 08.04.2016
til sölu. Verða tilbúnir til afhendingar
17. júní 2016. Þeir verða með ættbók
frá HRFÍ, bólusettir, heilsuskoðaðir,
tryggðir hjá VÍS, örmerktir. Startpakki
fylgir einnig með. Fleiri upplýsingar
má fá í síma 8464221 eða e-mail
laudia92@hotmail.com
Hljóðfæri
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
VAÐNES - sumarbústaðalóðir
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár,
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Bílar
SKODA OCTAVIA AMBIENTE
COMBI 5 dyra. Árg. 7/2012,
Ek: 102þ Sk:2018, 1600 Diesel-bsk.
Ný sumardekk og nagladekk
fylgja. Dráttarbeisli. Ný tímareim og
vatnsdæla. Nýlegir diskar og klossar.
Þjónustubók. Bíllinn er til sýnis hjá
Bílasölunni Bílfang Malarhöfða 2.
Uppl. í síma: 615-8080.
Til sölu Toyota Yaris 2008 1300cc.
Ekin 119.þús km. Heilsársdekk og
skoðaður til 2017. Verð 1.175.þús.
Bílinn er til sýnis hjá Toyota Reykja-
nesbæ S:4206600 Raðnúmer:111148
Smáauglýsingar
Þjónustu-
auglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð
✝ Nanna HalldóraJónsdóttir
fæddist á Smyrla-
björgum í Suð-
ursveit 13. janúar
1923. Hún lést 22.
maí 2016.
Foreldrar hennar
voru Lucia Guðný
Þórarinsdóttir frá
Breiðabólsstað, og
Jón Jónsson frá
Smyrlabjörgum.
Halldóra var næstelst átta systk-
ina. Ingunn, Sigurjón og Jör-
undur eru látin, Guð blessi minn-
ingu þeirra. Lifa nú þau Þóra
Guðleif, Þorbjörg, Snorri og
Baldur systur sína.
Halldóra ólst upp hjá for-
eldrum sínum á Smyrlabjörgum
og hlaut sína barnamenntun í
Sigurgeir, hans kona er Hólm-
fríður Traustadóttir. Þeir tví-
burabræður er fæddir 1946. 3)
Næstur er Guðni Gunnar, f.
1947, kona hans er Jóna Sig-
urjónsdóttir. 4) Þá er Einar
Bjarni, f. 1949, kona hans er
Guðbjörg Halldóra Ingólfsdóttir.
Þau búa öll á Höfn. 5) Næst er
Jóhanna Sigurborg, f. 1956 en
hún lést aðeins átta mánaða
gömul. Blessuð sé minning henn-
ar. 6) Sigurbjörn Jóhann, f. 1957,
hans kona er Laufey Helgadótt-
ir. Þau búa á Smyrlabjörgum. 7)
Næstyngst er Ingibjörg, f. 1961,
maður hennar er Sigurður Ey-
þór Benediktsson. Þau búa á
Höfn. 8) Yngstur er Haukur, f.
1967, kona hans er Hafey Lind
Einarsdóttir. Þau búa einnig á
Höfn. Barnabörn Halldóru og
Karls eru 17, langömmubörnin
eru 25 og eitt langalang-
ömmubarn.
Útför Halldóru hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu, frá Kálfafellsstaðarkirkju.
Suðursveit,
snemma tók hún að
taka til hendinni
við bústörfin. 17
ára gömul fór hún í
vist til Jóns Ívars-
sonar kaupfélags-
stjóra og konu hans
á Höfn og var þar í
níu mánuði.
Einn vetur
dvaldi hún í
Reykjavík og þar
giftist hún Karli Ágúst Bjarna-
syni þann 6. maí 1945. Karl
Ágúst var fæddur í Holti á Mýr-
um. Þau Halldóra og Karl Ágúst
bjuggu allan sinn búskap á
Smyrlabjörgum. Þau eignuðust
átta börn: 1) Elstur er Helgi
Hilmar, kona hans er Jóhanna
Guðmundsdóttir. 2) Þá er Jón
Halldóru kynntist ég sumarið
1979 og varð hún síðar tengda-
mamma mín.
Dóra amma, eins og við kölluð-
um hana alltaf, var með stórt
hjarta og hlýtt faðmlag enda feng-
um við öll að njóta þess sem hana
þekktum. Dóra var einstaklega
glaðlynd kona, létt um hlátur, öf-
undaði aldrei neinn, hún var af-
skaplega ánægð og þakkað guði oft
fyrir það allt sem hún átti.
Hún var húsmóðir af lífi og sál,
það var alltaf fullt borð af alls kon-
ar kræsingum og oft heyrði ég af
fólki sem hafði komið í hlaðið á
Smyrlabjörgum og var drifið inn til
hennar og Kalla: „Þegar ég sá
kræsingarnar á borðinu hélt ég að
það væri fermingarveisla.“ Svona
var Dóra, enginn fór svangur.
Samskiptin við alla afkomendur
hennar voru alltaf góð og eru þeir í
dag 50 fyrir utan tengdabörn.
Dóra tók virkan þátt í kven-
félaginu Ósk um langt árabil.
Henni féll aldrei verk úr hendi.
Eftir að degi tók að halla hjá henni
voru prjónarnir alltaf við hlið
hennar og ekki ófá sokkapörin sem
við öll fengum að njóta. Dóra
minntist oft á þá tíma þegar hún
var ung og var að vinna á Höfn.
Dóra var rík af réttlætiskennd
og fannst sárt að hugsa til þess
hvað réttlætinu er misskipt á milli
manna.
Dóra fæddist og var alin upp á
Smyrlabjörgum: Hún giftist Karli
Bjarnasyni 1945 í Reykjavík en
þau komu árið 1946 að Smyrla-
björgum og hófu búskap þar. Þau
eignuðust átta börn en misstu eina
dóttur átta mánaða. Þau bjuggu
rausnarbúi með kýr og kindur.
Dóra var höfðingi heim að
sækja, hafði ákveðnar skoðanir á
öllu. Henni var létt um að gera grín
að sjálfri sér. Hún hafði afskaplega
gaman af börnum og fengu börnin
mín að njóta ástríki hennar þar
sem þau ólust upp hér á hlaðinu í
faðmi ömmu og afa .
Dóra var afskaplega ónísk kona
og lét sjálfa sig sitja á hakanum
meðan við nutum gjafmildi hennar.
Dóra kenndi mér margt um mann-
leg samskipti, enginn maður er
eins og öll höfum við ólíkar skoð-
anir og þarfir en Dóra gat alltaf
greitt úr því og bera virðingu fyrir
sjálfum okkur og öllum sem við
umgengumst.
Ég mun sakna þess að þú hring-
ir ekki lengur og spyrð frétta að
heiman.
Nú þegar er komið að leiðarlok-
um að sinni,elskulega tengda-
mamma, vil ég þakka þér fyrir allt
og allt.
Með virðingu og þökk.
Laufey Helgadóttir,
Smyrlabjörgum.
Elsku amma, brosið þitt, hlát-
urinn þinn, mjúki faðmurinn þinn.
Margs er að minnast og margs
er að sakna, það er alltaf sárt að
kveðja en ég samgleðst þér að vera
komin til hans afa, þú varst búin að
biðja um það í langan tíma og þinn
tími kom loksins. Ég á óteljandi
góðar og skemmtilegar minningar
um ykkur bæði og geymi þær vel.
Þú varst frábær karakter, þol-
inmóð, hress, forvitin og alltaf
stutt í hláturinn þinn. Þú gerðir
mikið grín að sjálfri þér og fólkinu í
kringum þig og hlóst að því manna
hæst sjálf. Þér var annt um alla í
kringum þig og settir alla í fyrsta
sæti nema sjálfa þig, passaðir að
öllum liði vel.
Ég er einstaklega heppin að
hafa alist upp með ykkur í næsta
húsi. Auðvitað hljóp maður til ykk-
ar oft á dag, en helsti tilgangurinn
var að koma og spila og fá eitthvað
gott í gogginn. Því aldrei fór maður
svangur út frá þér og mátti maður
fá það sem maður vildi. Það kom jú
nokkrum sinnum fyrir að maður
sofnaði á bekknum á ganginum því
þú talaðir svo lengi í símann.
Öll sú þolinmæði sem þú hefur
sýnt mér í gegnum árin er ómet-
anleg, þú átt stóran þátt í kennsl-
unni við spil og bakstur, að fá að
hengja þvott út á snúrurnar þínar
fannst manni skemmtilegt því að
snúrurnar þínar voru svo lágar að
maður náði ungur að teygja sig
upp í þær.
Allar þær símhringingar sem
maður hefur fengið frá þér og sein-
ustu ár hringdirðu alltaf á kvöldin
þegar maður var búinn að koma
börnunum í háttinn. Ég á eftir að
sakna þess að fá ekki þær hring-
ingar og heyra í þér röddina. En ég
veit að þú fylgist með mér að ofan.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku amma, nú kveð ég þig í
hinsta sinn, farðu í friði, ég mun
alltaf sakna þín.
Heiða Vilborg.
Í dag ætlum við að minnast
ömmu okkar í örfáum orðum. Það
er með söknuði sem við kveðjum
hana en minningarnar ylja og
munu fylgja okkur um ókomna tíð.
Í æsku vorum við oft á Smyrla-
björgum hjá ömmu og afa enda
vorum við þar alltaf velkomin.
Amma var húsmóðir af gamla skól-
anum og sinnti heimilinu sem var
fjölmennt og gestakomur tíðar.
Hún dró alla að eldhúsborðinu og
þar var hver sortin á eftir annarri
því hún vildi ekki senda neinn
svangan í burtu. Á milli þess sem
hún sinnti húsverkum prjónaði
hún ullarsokka og vettlinga á alla
sem að henni stóðu og hún prjónaði
nánast til síðasta dags. Mikið eig-
um við og börn okkar eftir að
sakna hlýju ullarleistanna.
Með söknuði kveðjum við ömmu
okkar og geymum góðar minning-
ar í hjörtum okkar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð
(Vald. Briem.)
Ingólfur Guðni,
Ragnhildur og Þórhildur.
Eftir nokkur sumur í sveit á
eystri bænum á Smyrlabjörgum
hjá bræðrum Dóru og móður
hennar, Lúllu, var ávallt tekið á
móti manni eins og syni sem snýr
heim þegar maður kom til þeirra
eða Dóru og Kalla. Dóra fór ekki
langt þegar hún flutti að heiman,
því hún og Kalli bjuggu í Lækjar-
húsunum um 50 metra frá mömmu
Lúllu. Systur hennar þrjár fóru
heldur ekki langt, allar þrjár
bjuggu í sömu sveit í nokkurra
kílómetra fjarlægð sem segir
kannski sitt um tengsl milli systk-
inanna og móður þeirra, Lúllu á
Smyrlabjörgum.
Dóra og Kalli átt sjö börn og
heilan haug af afkomendum sem
þau sýndu manni gjarnan á mynd-
um sem héngu á heilum vegg í stof-
unni hjá þeim. Á veggnum var
fjöldi ljósmynda af því sem þau
voru mjög stolt af og sögðu bros-
andi út að eyrum frá hverjum og
einum. Langflestir afkomendanna
búa í heimsóknarfæri í innan við 50
km fjarlægð og skreppa enn í
sveitina til Bjössa og Laufeyjar að
hjálpa til á álagstímum, að hætti
Suðursveitunga. „Hvað, það held
ég sé nú ekki mikið mál að hjálpa
þér,“ var algengt viðmót Dóru í
garð náungans og gesta. Hjálp-
semin og hæverskan var þeim á
Smyrlabjörgum eðlileg og sjálf-
sögð, en þetta viðmót var öðruvísi
og vinalegt fyrir barn úr bænum
sem kom í sveit til þessa ágæta
fólks sem taldi sig aldrei hafa gert
nóg fyrir þig.
Sveitirnar undir Vatnajökli voru
afskekktar fyrir tilkomu brúar á
Skeiðará og Hornafjarðarfljót,
sem vafalaust hefur mótað mann-
lífið svona. Fyrir tíma Skeiðar-
árbrúarinnar var þessi fallegasti
hluti landsins um 1100 km frá
Reykjavík eftir malarvegi og því
sjaldgæft að sjá ferðamenn á þess-
um slóðum, en þeir þekktust oft á
yfirbreiddum farangri á topp-
grind. Nú fara þarna um tugþús-
undir ferðamanna með viðkomu á
Smyrlabjörgum. Ferðamenn ná að
virða fyrir sér náttúrufegurðina,
en mannlífið þarna undir Vatna-
jökli er ekki síðra og þrífst enn
þrátt fyrir fjölda gesta. Þetta er
kannski ekki augljóst þeim sem
koma þarna við til næturdvalar en
blasir við þeim sem kynnst hafa.
Ég er þakklátur fyrir góðar
minningar um Dóru og votta öllum
aðstandendum mína samúð.
Páll Ólafsson.
Nanna Halldóra
Jónsdóttir