Morgunblaðið - 03.06.2016, Side 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Brauð dagsins alla föstudaga
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
UR_ er fyrsta ópera Önnu Þorvalds-
dóttur tónskálds. Verkið, sem er
raunar kammerópera, verður frum-
flutt hér á landi á morgun, laug-
ardag kl. 20, á Listahátíð í Reykja-
vík. Að baki liggur rúmlega tveggja
ára vinna og fengu íslenskir áhorf-
endur forsmekkinn af óperunni á
Myrkum músíkdögum í fyrra.
„Segja má að þá hafi verið flutt smá
hugleiðing um verkið, meira eins og
vinnustofa,“ segir Anna. Kammer-
óperan var frumflutt í fullbúinni
mynd í Noregi og Þýskalandi í fyrra
og verður því frumflutt hér á landi á
Listahátíð.
Fjölbreyttur hópur listamanna
kemur að uppsetningunni, Þorleifur
Örn Arnarsson leikstýrir, Mette
Karlsvik er höfundur texta ásamt
Önnu og Anna Rún Tryggvadóttir
sér um leikmynd og búninga. Verk-
efnið er unnið af Far North undir
handleiðslu Arnbjargar Maríu Daní-
elsen, í samstarfi við Listahátíð í
Reykjavík, Theater Trier, Ultima
Oslo Contemporary Music Festival,
Norsku þjóðaróperuna og Græn-
lenska þjóðleikhúsið. Uppsetningin
hér á landi er unnin í samstarfi við
Íslensku óperuna.
Óræð veröld í tíma og rúmi
„Mér finnst mjög áhugavert að
kljást við óperuformið á þessum tím-
um, þetta gamla óperuform er búið
að slípast svo mikið í gegnum ár-
hundruðin og ég þurfti að hugsa mig
vandlega um hvað ég vildi gera. Mér
fannst strax mjög áhugavert að
vinna með karaktersköpun á annan
hátt,“ segir Anna, sem býður áhorf-
endum í íhugult ferðalag um óræða
veröld í tíma og rúmi þar sem hug-
leiðingum um leit að uppruna og
tengingu við rætur sjálfsins er velt
upp. „Óperuformið er svo stórt og
svo margt sem þarf að huga að sem
ekki er í hefðbundinni tónleika-
tónlist þannig maður þarf að hugsa á
svo mörgum plönum. Mér fannst
mjög gefandi listrænt að hugsa út
frá karakterum og sviðsetningu, það
skiptir allt svo miklu máli í óperu.“
Anna vinnur með þrjá söngvara
sem einn og sama karakterinn í
verkinu. „Þau túlka abstrakt per-
sónu sem er að kljást við sjálfa sig
og leita að grunnelementinu í sjálfu
sér sem er URið, það er grunnur
náttúrunnar í manninum,“ segir
Anna. Í óperunni má finna tvíþætta
stefnu. „Annars vegar hvernig
grunnurinn í manneskjunni dó og
hins vegar hvernig hann er á sama
tíma að fæðast með leitinni aftur að
URinu,“ segir Anna. Titill verksins
verður að teljast fremur óhefðbund-
inn, en UR er vísun í grunn element-
ið sem allar manneskjur hafa. „Í
þýsku er UR til dæmis forskeyti fyr-
ir grunn- eða frum-. Hugmyndin að
titlinum kom frá norska rithöfund-
inum Mette Karlsvik sem á hluta af
textanum í verkinu,“ segir Anna.
Flygill tekur þátt í öllu ferlinu
Í verkinu má einnig finna ýmsar
óvæntar uppákomur. „Flygillinn
gegnir fjölþættu hlutverki í óper-
unni, en píanóið fær yfirleitt ekki að
vera með í óperum en gegnir aftur á
móti algjöru lykilhlutverki í æfinga-
ferlinu. Svo er hann kóngur vest-
rænnar tónlistar, eða drottningin, og
flygillinn táknar í raun þetta móður
og verndar element í verkinu,“ segir
Anna.
Auk flygilsins má finna hefð-
bundnari flytjendur sem koma hvað-
anæva að. Mezzósópransöngkonan
Melis Jaatinen er frá Finnlandi,
Sofia Jernberg vókalisti er frá Sví-
þjóð, Joa Helgeson baritónn er einn-
ig sænskur og leikarinn Miké Phillip
Fencker Thomsen kemur frá Græn-
landi. „Hann gegnir hlutverki sem
tengir söngvarana þrjá saman,“ seg-
ir Anna. Þá sér Tinna Þorsteins-
dóttir um píanóleik í verkinu og
CAPUT tónlistarhópurinn sér um
annan hljóðfæraleik.
Fallegt samstarf
Þorleifur Örn Arnarson sér um
leikstjórn og segir Anna það hafa
komið skemmtilega á óvart hversu
vel þau unnu saman. „Við erum al-
veg gríðarlega ólík, en það kom af-
skaplega fallega saman hvernig okk-
ar listrænu persónuleikar áttu
fallega samleið. Auðvitað gengur
ýmislegt á í svona löngu ferli en það
var mikil virðing og góð samvinna.“
Þeir áhorfendur sem urðu vitni að
vinnustofunni á Myrkum músík-
dögum eiga von á algjörlega nýrri
sýn í Norðurljósasal Hörpu annað
kvöld að mati Önnu. „Það eru örugg-
lega sumir sem munu sjá einhverjar
tilvísanir frá því, en þetta er aftur á
móti alveg ofboðslega ólíkt, því á
þeim tímapunkti vorum við að hitta
söngvarana í fyrsta skipti. Þeir sem
sáu það sáu kveikjuna að fyrsta sam-
starfinu. Þetta er líka mjög ólíkt þar
sem við munum fá fulla sviðsetningu
og fullskrifaða tónlist.“
Anna mun halda til Bandaríkj-
anna þegar flutningi á UR_ lýkur
hér á landi, en kórinn The Crossing
Choir og tónlistarhópurinn ICE
munu frumflytja eitt nýtt verk eftir
Önnu 24. júní í Fíladelfíu í Banda-
ríkjunum. Anna er einnig að skrifa
verk fyrir Ensemble Intercontem-
porain í Frakklandi og Bang on a
Can All Stars sem frumflytja ný
verk eftir hana í haust. „Svo er ég að
skrifa verk fyrir New York Phil-
harmonic sem verður frumflutt á
næsta ári.“ Það er því ýmislegt í
gangi og segir Anna að ástríða henn-
ar fyrir hljómsveitartónlist hvetji
hana til að semja mörg stærri hljóm-
sveitarverk. „En mér þykir vænt um
að vinna að verkum fyrir ýmsar
hljóðfærasamsetningar.“
Íhugult ferðalag um óræða veröld
Fyrsta ópera Önnu Þorvaldsdóttur tónskálds frumflutt á Íslandi á Listahátíð á morgun
Morgunblaðið/Eggert
Tónskáld Anna Þorvaldsdóttir frumsýnir sína fyrstu óperu hér á landi á Listahátíð Reykjavíkur í Hörpu annað kvöld. „Óperuformið er svo stórt og svo
margt sem þarf að huga að sem ekki er í hefðbundinni tónleikatónlist og mér fannst mjög gefandi listrænt að hugsa út frá karakterum og sviðssetningu.“
Grunnur Í kammeróperunni UR_ er grunneðli mannsins skoðað og fram fer
leit að uppruna og tengingu við rætur sjálfsins. UR_ er vísun í grunninn.