Morgunblaðið - 03.06.2016, Side 87

Morgunblaðið - 03.06.2016, Side 87
MENNING 87 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016 Bæjaryfirvöld í Feneyjum hafa ákveðið að framlengja sýningu á verki myndlistartvíeykisins Ólafs Ólafssonar og Libiu Castro, „The Partial Declaration of Human Wrongs – Temporary Public Square (Venice)“. Verkið hefur verið til sýnis í al- menningsrými í borginni sem hluti af sýningunni From the City, sem var stýrt af þátttakandi sýningarstjórum í verkefninu School for Curatorial Studies Ve- nice sem er skipulagt og rekið af galleríinu A plus A Gallery, undir forstöðu Aurora Fonda og Sandro Pignotti í samstarfi við bæjaryfirvöld Feneyja, Murano og Burano. Sýningin stóð yfir samhliða 15. alþjóðlega byggingarlistatvíær- ingi Feyneyja, Reporting From the Front, og lauk henni 31. maí. Ólafur og Libia voru fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum ár- ið 2011 og hafa sýnt verk sín víða um heim. Ljósmynd/Ólafur og Libia Í Feneyjum Hluti af verki Ólafs og Libiu sem sýnt verður áfram í Feneyjum. Sýning framlengd á verki Ólafs og Libiu í Feneyjum Þrír nýir höfundar hljóta Nýræktarstyrki Miðstöðvar ís- lenskra bókmennta í ár til útgáfu á verkum sínum, en styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rithöfunda- sambandsins, í gær. Verkin sem um ræðir eru Einsamræður eftir Birtu Þórhallsdóttur, Smáglæpir eftir Björn Halldórsson og Afhending eftir Vilhjálm Bergmann Bragason. Hver styrkur nemur 400.000 kr. Samkvæmt upplýsingum frá Mið- stöð íslenskra bókmennta er þetta í níunda skipti sem Nýræktarstyrkj- um er úthlutað. „Samtals hafa yfir 40 höfundar hlotið þessa viðurkenn- ingu frá upphafi. Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Styrkjunum er ætlað að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda og er þar átt við skáldverk í víðri merkingu þess orðs, sögur, ljóð, leikrit, eða eitt- hvað allt annað,“ segir í tilkynningu. Í ár bárust 35 umsóknir um Ný- ræktarstyrki. Verkin sem sótt var um fyrir eru af ýmsum toga s.s. skáldsögur, leikrit, ljóð, barna- og ungmennabækur, smásögur og glæpasögur. Í umsögn bókmenntaráðgjafa Miðstöðvar íslenskra bókmennta um verkið Einsamræður eftir Birtu Þórhallsdóttur segir: „Kröftugar ör- sögur skrifaðar í afgerandi og ög- uðum stíl sem höfundur hefur einkar gott vald á. Textinn grípur lesandann með spennandi mögu- leikum og mótsögnum þar sem kunnuglegar aðstæður umbreytast og taka á sig hrífandi ævintýrablæ.“ Birta er MA-nemandi í Ritlist við Háskóla Íslands, verkið er hluti af lokaverkefni hennar, sem hún hefur unnið undir leiðsögn Óskars Árna Óskarssonar. Um smásagnasafnið Smáglæpir eftir Björn Halldórsson segir: „Vel skrifaðar og fagmannlega mótaðar smásögur. Höfundur þekkir smá- sagnaformið augsýnilega vel og kann þá list að segja ekki of mikið en skapa á sama tíma forvitnilega stemningu og andrúmsloft í sögum sem ná gríðarföstu taki á lesandan- um.“ Björn er með BA-gráðu í enskum og amerískum bókmenntum frá Há- skóla East Anglia-héraðs í Norwich, Englandi, og MFA-gráðu í skapandi skrifum frá Háskólanum í Glasgow. Um leikritið Afhendingu eftir Vil- hjálm Bergmann Bragason segir: „Athyglisverður og ögrandi leik- texti sem fyllir lesandann óhug og efasemdum um þá þróun sem er sýnd í samskiptum persónanna. Höfundurinn þekkir leikhúsið og leikritun og sýnir athyglisvert vald á forminu, eins og sést mæta vel á snörpum og vel skrifuðum sam- tölum þar sem dansað er á mörkum súrrealisma og óþægilegs raunsæ- is.“ Vilhjálmur hefur nýlokið MA- námi í leikhúsbókmenntum og leik- ritun frá RADA, Royal Academy of Dramatic Arts, í London. Samkvæmt upplýsingum frá Mið- stöð íslenskra bókmennta hefur um- sóknum um Nýræktarstyrki fjölgað verulega frá því þeim var fyrst út- hlutað hjá Bókmenntasjóði, forvera Miðstöðvar íslenskra bókmennta, árið 2008, en þá bárust níu umsóknir og fimm styrkir voru veittir, hver að upphæð 200.000 krónur. „Árið 2009 bárust 27 umsóknir og sex hlutu styrki, árið 2010 bárust 39 umsóknir og voru fimm styrkir veittir og árið 2011 bárust 30 um- sóknir og þá var úthlutað fimm styrkjum. Árið 2012 bárust 23 um- sóknir og voru fimm styrkir veittir að upphæð 200.000 kr., 2013 bárust 49 umsóknir og fjögur verk hlutu styrk. Árið 2014 barst 31 umsókn um Nýræktarstyrkina og hlutu fjór- ir styrk að upphæð 250.000 kr. Árið 2015 voru umsóknirnar 51 og styrk- upphæðin var hækkuð í 400.000 kr.“ silja@mbl.is Þrír nýir höfundar styrktir Gleðiefni Styrkþegarnir Björn Halldórsson , Birta Þórhallsdóttir og Vil- hjálmur Bergmann Bragason voru að vonum áægð við afhendingu verð- launanna sem fór fram í Gunnarshúsi við Dyngjuveg í blómlegum garði.  Nýræktar- styrkir Miðstöðvar íslenskra bók- mennta afhentir Morgunblaðið/Ófeigur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.