Orð og tunga - 01.06.2002, Qupperneq 75
Margrét Jónsdóttir: Um sagnirnar virka og verka
65
(14) a. Hugarástandið verkaði annarlega á hann...
.. ./frosk.rit 1985
b. Sagan verkaði svo sterkt á mig...
.. ./bleos.txt 1986
c. ... og lyfið verkar því ekki jafn vel á alla.
.. ,/moggi/dag.gr. 1997
í þeim tíu dæmum sem eftir eru má í flestum tilvikum gera ráð fyrir því að forsetningin
á og nafnliður séu undanskilin, ekki sé óeðlilegt að bæta þeim við. Dæmi um það má
sjá í (15):
(15) Hún inniheldurefni sem verkar slævandi...
.. ./moggi/innl.gr. 1997
í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er að finna mikinn fjölda dæma um sögnina verka.
Þau spanna þriggja alda skeið; Þau elstu eru frá seinni hluta 16. aldar. 1 þeim má finna
dæmi um þær merkingar sem lýst er í (13).
í nútímamáli er líklega algengast að nota sögnina verka með forsetningunni á, sbr.
líka dæmin í (14). Þegar dæmin í ritmálssafninu eru skoðuð kemur í ljós að elstu dæmi
um þessa notkun eru frá fyrri hluta 19. aldar, það elsta úr orðabók Gunnlaugs Oddssonar
frá 1819. Það og nokkur önnur má sjá í (16). Merkingin er alltaf 'hafa áhrif á, orka á,
hrífa á’:
(16) a. imponere, [[•••]] uppáleggia; fá á, verka á.
OddsOrð, 87 19f
b. ekki man eg til, að nokkurt tilfelli hafi verkað svo sterklega á
mig.
IJHúsf, 101 (1826) 19f
c. Yms hljóð og hljómar verka þægilega á mörg dýr.
SkNátt 1895-96,36 19s
d. Það [:: brennivín] var bölvað á bragðið, oj! En það verkaði
vingjarnlega.
ÞórbÞStein, 134 20m
e. hlaut að vera hægt að leiða það [::loftið] eftir endilangri jám-
brautarlest og láta það síðan verka á hemlana.
AlfrAB 16,57 20m
Eins og sjá má í (16) em dæmin um verka + á í raun og vem ung en engin dæmi um
þetta er að finna t.d. hjá Fritzner (1896). Jafnframt ber að geta þess að til em dæmi (17)
um sögnina verka með þolfalli í sömu merkingu:
(17) a. Hvernenn verkar nu Hprmungenn þolennmædina?
VídPost II, 332 18f
b. Brönugrös hafa menn haldið [[...]] verkuðu frjóvunarkraft.
JÁþj2 IV, 22 19m
í Orðastað Jóns Hilmars Jónssonar (2001) em dæmi um verka þar sem sögnin er notuð
áhrifslaust en líka með forsetningunni á. Þetta má sjá í (18).