Orð og tunga - 01.06.2015, Side 59
Marion Lerner: Af „setubingum" og „hugvitsverkfærum"
47
skýra hugsun og færni til að tileinka sér þekkingu á hinum ýmsu
sviðum. Þetta gerði Tómas Sæmundsson líka. Hann hlýtur að hafa
punktað hjá sér allt sem honum fannst skipta máli og vert að segja frá.
Því miður eru slíkar heimildir ekki varðveittar.
I júní 1832 lagði hann af stað frá Kaupmannahöfn, sigldi til eyjunnar
Usedom í Norður-Þýskalandi og lagði leið sína til Berlínar þar sem
hann dvaldi í tvo mánuði. Afram hélt hann síðsumars í gegnum mið-
þýsku bæina Potsdam, Wittenberg, Leipzig og Dresden til Prag, það-
an til Waldmunchen, Regensburg og Munchen í Bæjaralandi. Eftir
vikudvöl í Múnchen lá leiðin til Vínarborgar með viðkomu í Salz-
burg og Linz. I nóvember 1832 kvaddi hann keisaraborgina Vín eftir
tveggja mánaða dvöl þar og ferðaðist í gegnum Tríest, Feneyjar,
Padúa, Ferrara, Bologna og Flórens til Rómarborgar. Öll þessi ferða-
leið var í góðu samræmi við hefðina, samkvæmt henni var best að
koma sér yfir Alpafjöllin að haustlagi og dvelja í Rómarborg u.þ.b. til
páska. I apríl 1833 fór Tómas til Napólí en hér tók óvenjulegur kafli
við. Unga íslendingnum bauðst tækifæri til að fara í fjögurra mánaða
skemmtiferð á Miðjarðarhafi með viðkomu á Sikiley, Möltu og ýmsum
stöðum í Grikklandi og Tyrkjaveldi. I ágúst 1833 kom hann aftur til
Napólí og hélt þaðan af stað snemma í september í gegnum Sviss til
Parísar. Frá nóvember 1833 til vors 1834 dvaldi hann í stórborginni.
Þegar hér var komið sögu var ferðalangurinn orðinn félaus og einnig
heilsulaus og þurfti á hjálp vina sinna að halda. Einhvern veginn tókst
honum þó að komast til London og síðan í gegnum Hamborg til baka
til Kaupmannahafnar þar sem hann hitti vini sína í maí 1834.
Eftir þeim heimildum að dæma sem liggja fyrir, þ.e. bréfum og
uppkasti að ferðabókinni, notaði Tómas tímann vel meðan á ferða-
laginu stóð. Hann fór yfirleitt hratt frá bæjum til bæja og dvaldi leng-
ur í þeim stórborgum sem tíðkaðist að skoða nánar. Þar fór hann á
lista-, fornminja- og náttúrufræðisöfn sem og í almenningsgarða,
konungshallir og annað í þeim dúr. Hann heimsótti skóla og háskóla,
skoðaði borgarskipulag og byggingarlist, fékk innsýn í iðnaðarfyrir-
tæki og vinnubrögð ýmissa stétta. Hann hlustaði á fyrirlestra og pre-
dikanir, fór í óperuhús, leikhús o.s.frv. Hann hitti menntamenn og
las bækur á sviði heimspeki, guðfræði, kennslufræði, bókmennta og
margs fleira. Lítið er vitað um aðrar skemmtanir.