Orð og tunga - 01.06.2015, Síða 155
Sigurður R. Helgason: Gullbrá og Menglöð
143
vilið því játa, þá munum vit bræðr trúa yðr sem aðrir menn.
En ef þit skjótið drambi á ok vilið ekki liðsinni veita okkr, þá
munum vit ekki tal af ykkr halda." [...] Þá snýr Helgi um þvert
gólf. Þar sátu þær Frigg ok Freyja. Hann mælti þessi hin sömu
orð við þær sem áðr. Kvaðst hann mundu veita þeim blíðu, ef
þær vildi veita betr honum. (Jón Jóhannesson (útg.) 1950: 295)
Lýsingin á hofi Bersa er augljóslega rétt mátulega trúverðug. At-
hyglisvert verður samt að teljast að Freyja er þar sett á bekk sem eitt
fjögurra goða Bersa og enn áhugaverðara er að þær stöllur Frigg og
Freyja sitja á hinum æðra bekk í hofinu samkvæmt sögunni. Hvort
tveggja gefur til kynna að Freyja hafi verið í hávegum höfð, a.m.k.
í sumum tilvikum. Enn er þess að geta, sem Ingunn Asdísardóttir
bendir á í hinu ágæta riti sínu um Frigg og Freyju (2007:284), að
Snorri Sturluson segir um Freyju: „Freyja helt þá upp blótum, því
at hon ein lifði þá eptir goðanna, ok varð hon þá in frægsta" (Bjarni
Aðalbjarnarson (útg.) 1941:24-25). Ingunn ályktar að þessi orð bendi
til þess að átrúnaður á Freyju hafi staðið lengur en á önnur goð.
Sé litið til íslenskra örnefna sem merki Freyjudýrkunar eru harla
fá sem koma til álita. Líklega eru þau ekki fleiri en fjögur sem bera
Freyjunafn, það er Freyjusund á Ströndum (Örnefnaskrá Kvísla),
Freyjuklöpp við Dalatanga (Örnefnaskrá Dalakálks í Mjóafirði), Freyju-
lækur í Fáskrúðsfirði (Ornefnaskrá Kolfreyju) og Freyjuhóll í Vopna-
firði (Ömefnaskrá Brunahvamms). Vegna kvennafnsins Freyju og
hugsanlega nafnorðsins húsfreyja er afar hæpið að draga nokkrar
ályktanir af þessum örnefnum, að minnsta kosti að þessum stöðum
óséðum og órannsökuðum. Freyjulækur er bæjarlækur í Kolfreyju, býli
sem kallað er Freyja, og fær lækurinn nafn af því. Helst væri það ör-
nefnið Freyjuhóll er minnir á Goðahólana sem kunna að tengjast goða-
dýrkun.
Örnefni, sem byrja á liðnum Sýr-, eru nokkuð mörg á Islandi. Sýr
er eitt nafn Freyju eins og áður sagði. Vandinn þar er svipaður og í
tilviki Freyjuörnefnanna þar sem Sýr- í örnefnum getur einnig merkt
'gylta' og bendir líklega oftast eða ávallt til svínaeldis.
4 Afskræming annarra goða og vætta
Eðlilegt er að kanna hvort önnur goð en Freyja hafi mögulega verið
afskræmd eða affærð eftir kristnitökuna. Ljóst er að kirkjunnar