Morgunblaðið - 18.06.2016, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 141. tölublað 104. árgangur
EINSTAKT FRAM-
LAG TIL LISTA
OG MENNINGAR KAJAKRÓÐUR MILLI SKERJA
VATNSLEYSUSTRÖND 12HJÁLMAR HEIÐURSDOKTOR 47
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
6
1
6
0
3
0
Terbinafin
Actavis
10mg/g
15 g krem
TA
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
iss
6
1
6
0
3
0
„Það verður mikið partý hjá Íslend-
ingum í Marseille í kvöld [gær-
kvöldi] og vonandi getum við öll
fagnað meira á morgun [í dag],“
sagði Kolbeinn Sigþórsson á blaða-
mannafundi í Marseille í gær vegna
landsleiksins gegn Ungverjum á EM
í dag. Leikurinn hefst kl. 16.
Hátt í 10 þúsund Íslendingar eru
mættir til Marseille til að styðja
landsliðið. Fjöldi fólks var þegar
mættur á svæðið í gær. Meðal þeirra
var 80 manna hópur á vegum Hús-
víkingsins Hólmfríðar Garðars-
dóttur, sem rekur litla ferðaskrif-
stofu. Allur hópurinn tengist
Húsavík meira og minna.
Sálfræðingar, sem rætt er við í
Morgunblaðinu í dag, segja árangur
landsliðsins hafa mikil og góð áhrif á
þjóðarsálina og jafnist á við stóran
skammt af geðlyfjum. Mót sem þessi
sameini fólk, líkt og þorskastríðin.
»2, 6, 22, Íþróttir og Sunnudagur
„Vonandi getum við
öll fagnað meira“
Ísland mætir Ungverjalandi í dag
Morgunblaðið/Golli
Evrópumótið Íslenskir stuðningsmenn í Frakklandi eru litríkir. Í Sunnu-
dagsblaðinu er birt myndasyrpa eftir Golla, ljósmyndara Morgunblaðsins.
Hin víðfræga hljómsveit Radiohead gerði gott mót í
Laugardalshöll í gærkvöldi þegar tónlistarhátíðin
Secret Solstice fór fram í Laugardal. Eftirvænting
var mikil meðal tónleikagesta, en mikil röð mynd-
aðist fyrir utan höllina í aðdraganda tónleikanna.
Radiohead á rætur að rekja til Bretlands og hefur
selt yfir 30 milljónir platna um heim allan. Meðal
frægustu laga sveitarinnar eru lögin Creep, Karma
Police og Paranoid Android. Var hljómsveitin eitt
aðalatriða hátíðarinnar, sem hófst á fimmtudag og
lýkur á sunnudagskvöld. Hér er aðalsöngvarinn
Thom Yorke í ham á sviðinu. »46
Morgunblaðið/Ófeigur
Tónlistarhátíðin Secret Solstice stendur yfir um helgina
Radiohead fór mikinn í höllinni
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Dagvöruverslun í maí var 4,1% meiri en í
sama mánuði á síðasta ári. Þetta kemur
fram í nýjustu vísitölum Rannsóknaseturs
verslunarinnar. Mikil verslun var með bygg-
ingavörur og hefur
sú vísitala ekki ver-
ið hærri síðan mæl-
ingar hófust 2012.
„En hún hlýtur
einnig að vera í
methæðum frá því
fyrir hrun, eða það
myndi maður
ætla,“ segir Árni
Sverrir Hafsteins-
son, hagfræðingur
hjá Rannsókna-
setrinu, við Morg-
unblaðið.
Verslun með
byggingavörur var
22% meiri nú en í maímánuði á síðasta ári á
föstu verðlagi, en 23,7% meiri á breytilegu
verðlagi. Þá jókst verslun með húsgögn um
á bilinu 18,3 til 18,9% frá sama mánuði í
fyrra. Segir í skýrslu Rannsóknasetursins
að hún hafi verið lífleg undanfarna mánuði.
Ef síðustu sex mánuðir séu þannig bornir
saman við sama tímabil á síðasta ári, sé
aukningin um 27%.
Ekki á sama stað og fyrir bankahrun
„Húsgagnaverslunin hefur þó ekki náð
þeim hæðum sem hún gerði fyrir hrun,“ seg-
ir Árni og bætir við að verslun með varan-
legar neysluvörur sé almennt ekki komin á
sama stað og fyrir hrun bankanna.
„Neysla óvaranlegra vara, svo sem matar
og drykkjar, er hins vegar komin á sama
stað og áður. Það virðist vera sem Íslend-
ingar séu örlítið ragari við að kaupa þessar
varanlegu neysluvörur, húsgögn, föt og þess
háttar.“
Blómleg
verslun í
dagvöru
22% aukning í maí í
byggingavöruverslun
Aukin velta
» Verslun með
húsgögn jókst
um tæp 19% frá
maímánuði í
fyrra.
» Verslun með
byggingavörur
jókst um 23,7%
á breytilegu
verðlagi.
Þórgnýr Thoroddsen, formaður
Þjóðhátíðarnefndar Reykjavíkur-
borgar, segist undrast aðgerðir lög-
reglu í gær, en skert aðgengi og sýn
almennings við hátíðahöldin á
Austurvelli í gær virtust koma
mörgum gestum í opna skjöldu.
Vakti viðbúnaður lögreglu athygli
margra sem þangað lögðu leið sína.
„Það virðast allir hafna því að
bera ábyrgð á breikkun bilsins á
milli athafnarinnar og almennings,“
segir Þórgnýr í samtali við Morgun-
blaðið. „Það er eðlilegt að auka
öryggisgæslu vegna boðaðra mót-
mæla, en í ár var ekkert slíkt, öfugt
við það sem var í fyrra. Ég hef fulla
trú á fólki til að hegða sér.“
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlög-
regluþjónn, sem fór með aðgerða-
stjórn á vettvangi í gær, segir ná-
kvæmlega sama viðbúnað hafa verið
í ár og í fyrra, utan þess að girðingin
vestan megin hafi verið færð fimm
metrum utar. Aðspurður telur hann
ólíklegt að fyrirkomulagið muni
breytast nokkuð að ári liðnu.
Morgunblaðið sagði í gær frá því
að rætt hefði verið um það innan for-
sætisráðuneytisins að takmarka að-
gang almennings að þjóðhátíðar-
höldunum.
„Ég tel persónulega að girðingar
séu af hinu illa og við eigum að vera
tilbúin að treysta fólki,“ sagði Sig-
urður Ingi Jóhannsson forsætisráð-
herra í blaðinu í gær en ekki náðist í
hann í gærkvöldi. sh@mbl.is »10
Undrast lok-
anir lögreglu
á Austurvelli
Öryggisgæsla Lögregluverðir
stóðu vörð innan girðingarinnar.
Skert aðgengi
kom gestum á óvart
Ljósmynd/Rannveig Tenchi