Morgunblaðið - 18.06.2016, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 18.06.2016, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016 ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 Útsalan er í fullum gangi 25-50% AFSLÁTTUR ● Kínversk einkaleyfastofnun hefur úrskurðað að Apple hafi brotið gegn hugverkarétti kínverska snjallsíma- framleiðandans Baili. Telur stofnunin að útlit nýju iPhone 6 -og iPhone 6 Plus-símanna sé of líkt 100C- símanum sem Baili framleiðir. Ef Apple áfrýjar ekki úrskurðinum þyrfti að taka umrædda síma úr sölu í Pek- ing. Úrskurðurinn nær aðeins til kín- versku höfuðborgarinnar en gæti haft áhrif á niðurstöðu svipaðra hug- verkaréttarmála annars staðar í land- inu, að því er Bloomberg greinir frá. Kína er næststærsti markaður heims fyrir Apple-vörur, næst á eftir Bandaríkjunum. Úrskurðurinn nú kemur í kjölfarið á þeirri ákvörðun kínverskra stjórnvalda í apríl að loka fyrir kvikmynda- og bókaveitu Apple vegna brota á reglum um er- lenda útgáfustarfsemi. Þá tapaði Apple einnig dómsmáli í maí þegar fyrirtæki sem framleiðir fylgihluti á borð við veski og handtöskur fékk viðurkenndan rétt sinn til að mega nota vörumerkið „iPhone“ á vörum sínum. ai@mbl.is Apple tapar hugverkamáli í Kína VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fólk í atvinnulífinu hefur lengi bent á ýmsa annmarka í umhverfi fjármögnunar og skatt- lagningu sprotafyrirtækja. Regluverk annarra landa hefur ýmsa kosti sem ekki hefur verið til að dreifa á Íslandi. Að sögn Davíðs Lúðvíks- sonar var tekið stórt framfaraskref með nýsam- þykktu frumvarpi sem gerir breytingar á „ýms- um lögum til að styðja við fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyr- irtækja í vexti,“ eins það er orðað í lagatext- anum. Davíð er forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins og segir hann að breytingarnar snúi einkum að fjórum þáttum. Geta dregið frá hluta fjárfestingar „Fyrst má nefna að einstaklingar fá nú heim- ild til að draga frá skattskyldum tekjum sínum hluta af fjárfestingu í fyrirtækjum sem uppfylla tiltekin skilyrði og eru á lista RSK. „Þetta er ekki ósvipað frádráttarheimild sem fest var í lög þegar verið var að byggja upp íslenska hluta- bréfamarkaðinn á sínum tíma. Einstaklingur- inn fær heimild til að draga frá skattskyldum tekjum sínum 50% af fjárfestingu að upphæð allt að 10 milljónir króna. Það samsvarar rúm- lega 23% endurgreiðslu í gegnum skattkerfið af þeirri fjárhæð sem fjárfest er fyrir, miðað við hæsta skattþrep.“ Fyrirtækið sem fjárfest er í má þó ekki hafa fleiri en 25 starfsmenn, né hafa veltu yfir 650 milljónum kr. á síðasta rekstrarári. Þá eru ákveðnar atvinnugreinar t.d. kvikmyndagerð, undanskildar án þess þó að gerð sé bein krafa um tiltekna nýsköpunarvirkni í þeim fyrirtækj- um sem geta nýtt sér lögin. Krafa er gerð til fjárfestis um að hann sé; ekki tengdur félaginu með meira en 30% eignarhlut, viðskiptahags- munum, stjórnarsetu og ekki starfsmaður eða með fjölskyldutengsl við framgreinda aðila. „Þetta gerir lögin þrengri en æskilegt er, enda mjög algengt að t.d. ættingjar leggi sprotafyrir- tækjum lið með fjárfestingu. Þessar takmark- anir eru langt umfram það sem ESA og ESB leggja til,“ segir Davíð sem segist þó vona að hægt verði að „sníða slíka agnúa af þessu ann- ars góða kerfi við fyrsta tækifæri“. Hærri frádráttur vegna rannsókna Annað atriði í nýju lögunum er hækkun á stofni frádráttar fyrirtækja vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar. Hámark stofnsins var áð- ur 100 milljónir, en 150 milljónir ef fyrirtækið á í samvinnu við stofnun, s.s. háskóla eða sjúkra- hús. „Þessu kerfi var komið á 2009 að norskri fyrirmynd og geta fyrirtæki í öllum atvinnu- greinum nýtt það, séu þau með þróunarverkefni sem uppfylla tilteknar kröfur sem Rannís stað- festir. Nýja hámarkið er 300 og 450 milljónir með samstarfi. Endurgreiðslan getur numið allt að 20% af stofninum eða 60 til 90 milljónum. Uppgjörið fer fram í gegnum skattkerfið, en ef skattar af rekstrinum eru lægri en sem nemur endurgreiðslunni, er mismunurinn greiddur beint til fyrirtækisins,“ útskýrir Davíð. „Í okkar umsögn um þessa breytingu lögðum við til að afnema umrædd þök alveg og hækka endurgreiðsluhlutfallið til minni fyrirtækja í 25% til samræmis við sambærilegt fyrirkomu- lag í kvikmyndaiðnaði. Þetta myndi auka að- dráttarafl Íslands bæði fyrir stærri og smærri fyrirtæki í nýsköpun allverulega og um leið auka tekjur ríkissjóðs. Það má ekki gleyma því að endurgreiðsla rannsóknar- og þróunarkostn- aðar og skattalegir hvatar vegna fjárfestinga í hlutabréfum fela í sér mjög jákvætt greiðslu- flæði fyrir ríkissjóð og útgjöldin eru mun minni en tekjurnar auk þess að falla mun seinna til.“ Þriðja stóra breytingin er að erlendur sér- fræðingur með þekkingu sem ekki er fyrir hendi hér á landi nema í litlum mæli fær að draga frá 25% af skattskyldum tekjum fyrstu þrjú árin frá ráðningu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. „Þetta er hugsað til að skapa svig- rúm til að geta boðið erlendum sérfræðingum sambærileg kjör og í boði eru í samkeppnislönd- um okkar,“ segir Davíð. „Ísland hefur ekki verið nógu vel í stakk búið til að laða hingað topp- fólkið í vísinda- og tæknigreinum. Slík laga- heimild þekkist víða annars staðar og byggir á þeirri hugmyndafræði að með fólkinu sem tekst að laða til landsins komi ný þekking inn í hag- kerfið og leiði af sér nýja verðmætasköpun.“ Breytileg skuldabréf orðin valkostur Síðast en ekki síst eru gerðar ýmsar breyt- ingar á skattalegri meðferð kaupréttarsamn- inga og skattlagningu breytanlegra skulda- bréfa sem breytt hefur verið í hlutabréf. „Núna fer skattlagning ekki fram fyrr en við sölu hlutabréfanna og eru þá tekjurnar skattlagðar sem fjármagnstekjur hafi starfsmaðurinn átt bréfin í tiltekinn árafjölda. Áður voru reglurnar þannig að þegar t.d. starfsmenn nýttu sér kaup- rétt þá urðu þeir að greiða strax tekjuskatt af muninum á kaupverði og markaðsverði,“ segir Davíð. „Þetta gat m.a. leitt til þess að fólk gat ekki nýtt kaupréttinn ef það vildi eiga bréfin vegna þess t.d. að hafa ekki efni á skattgreiðsl- unum af bréfum, sem jafnvel gátu svo verið orð- in verðlítil eða verðlaus þegar þau loks voru seld.“ Þessar breytingar opna fyrir þann möguleika að fjármagna sprota með breytilegum skulda- bréfum. Breytileg skuldabréf eru algeng fjár- mögnunaraðferð í mörgum löndum, en þar leggur fjárfestir sprota til fjármagn sem síðan er breytt í hlutafé seinna meir, með ákveðnum margföldunarstuðli eða á ákveðnu markaðs- gengi. „Lögin leyfðu þessa fjármögnun, en í reynd var hún skattalega séð útilokuð því um leið og láninu var breytt í hlutabréf varð til hár skattareikningur.“ Ágætis byrjun en þörf á meiru Að sögn Davíðs voru ýmsar tillögur fulltrúa atvinnulífsins sem ekki rötuðu í frumvarpið. Vantar til dæmis að sprotar geti greitt starfs- mönnum sínum laun í formi eignarhluta, þó ekki væri nema upp að tilteknu marki. „Það myndi meðal annars losa frumkvöðla úr þeim skatta- lega skollaleik sem fylgir því að vinna baki brotnu í uppbyggingu fyrirtækja sinna en geta hvergi gefið upp laun í samræmi við vinnufram- lagið, en lenda svo í þeim sporum að geta ekki sýnt nýjum hluthöfum svart á hvítu þann kostn- að og virði sem liggur í fyrirtækinu.“ Davíð hrósar stjórnvöldum og Alþingi fyrir að hafa náð að koma þessum breytingum í gegn fyrir þinghlé og að þær séu nauðsynlegar til að halda í við þróun og harða samkeppni frá nær- liggjandi löndum. „Við erum með þessu að stíga stærri skerf í að jafna samkeppnistöðu fólks og fyrirtækja í nýsköpun hér á landi en við höfum séð áður og erum nú komin með góðan grunn, sem þó þarf vissulega að straumlínulaga enn betur. Við vonum að það verði áberandi stefnu- mál í næstu kosningum því við þurfum í framtíð- inni að tryggja áhugaverð og vel launuð störf fyrir ungt og menntað fólk hér á landi. Það eru líka óteljandi þarfir og viðfangsefni á sviði heil- brigðis-, mennta-, orku- og umhvefismála sem við getum leyst í góðu samstarfi stjórnvalda og fyrirtækja á grunni þekkingar og tækni. Okkar samkeppnisforskot í starfsumhverfinu á Íslandi getur meðal annars legið í því að vera með kerfi sem er skilvirkara og einfaldara en í öðrum löndum.“ Bætir umgjörð nýsköpunar  Einstaklingar geta dregið frá tekjuskattstofni fjárfestingu í smærri fyrirtækjum  Endurgreiðsla vegna rannsókna og þróunar hækkar  Breytileg skuldabréf nú raunhæfur valkostur við fjármögnun Tækifæri „Okkar samkeppnisforskot í starfsumhverfinu á Íslandi getur meðal annars legið í því að vera með kerfi sem er skilvirkara og einfaldara en í öðrum löndum,“ segir Davíð. Ljósmynd / SI Samkomulag náðist á fimmtudag um kaup snyrtivörurisans Revlon Inc. á keppinautnum Elizabeth Ar- den Inc. Greindi Wall Street Journal fyrst frá kaupunum en Revlon mun reiða af hendi 420 milljónir dala og taka yfir skuldir Elizabeth Arden. Að sögn BBC er kaupsamningurinn samtals 870 milljóna dala virði. Revlon hefur í dag sterka stöðu á sviði andlitsfarða og hárvöru á með- an Elizabeth Arden stendur hvað best að vígi í fínni húðvörum og ilm- um. Framleiðir Elizabeth Arden meðal annars ilmi í samvinnu við dægurstirni á borð við Taylor Swift og Justin Bieber. WSJ segir kaupin líka styrkja Revlon á alþjóðlegum mörkuðum en Elizabeth Arden hef- ur náð að koma sér vel fyrir á Asíu- og Kyrrahafssvæðinu. Þá skapa kaupin svigrúm fyrir hagræðingu sem nemur 140 milljónum dala yfir þriggja til fimm ára tímabil. Kaup- verðið er 14 dollarar á hlut sem er 50% yfir hlutabréfaverði Elizabeth Arden við lokun markaða á fimmtu- dag. Hafa bæði fyrirtækin glímt við erfiðan rekstur að undanförnu. Há- ar skuldir hafa íþyngt Revlon en Elizabeth Arden ekki gengið nógu vel á ilmmarkaði. Revlon skipti um forstjóra í mars og tók Fabian Garcia við starfinu, en hann var áð- ur forstjóri Colgate-Palmolive. ai@mbl.is AFP Máluð Með kaupunum gefst svig- rúm til mikillar hagræðingar. Revlon kaupir Elizabeth Arden

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.