Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Útsalan
er í fullum gangi
25-50%
AFSLÁTTUR
● Kínversk einkaleyfastofnun hefur
úrskurðað að Apple hafi brotið gegn
hugverkarétti kínverska snjallsíma-
framleiðandans Baili. Telur stofnunin
að útlit nýju iPhone 6 -og iPhone 6
Plus-símanna sé of líkt 100C-
símanum sem Baili framleiðir. Ef
Apple áfrýjar ekki úrskurðinum þyrfti
að taka umrædda síma úr sölu í Pek-
ing. Úrskurðurinn nær aðeins til kín-
versku höfuðborgarinnar en gæti
haft áhrif á niðurstöðu svipaðra hug-
verkaréttarmála annars staðar í land-
inu, að því er Bloomberg greinir frá.
Kína er næststærsti markaður
heims fyrir Apple-vörur, næst á eftir
Bandaríkjunum. Úrskurðurinn nú
kemur í kjölfarið á þeirri ákvörðun
kínverskra stjórnvalda í apríl að loka
fyrir kvikmynda- og bókaveitu
Apple vegna brota á reglum um er-
lenda útgáfustarfsemi. Þá tapaði
Apple einnig dómsmáli í maí þegar
fyrirtæki sem framleiðir fylgihluti á
borð við veski og handtöskur fékk
viðurkenndan rétt sinn til að mega
nota vörumerkið „iPhone“ á vörum
sínum. ai@mbl.is
Apple tapar
hugverkamáli í Kína
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fólk í atvinnulífinu hefur lengi bent á ýmsa
annmarka í umhverfi fjármögnunar og skatt-
lagningu sprotafyrirtækja. Regluverk annarra
landa hefur ýmsa kosti sem ekki hefur verið til
að dreifa á Íslandi. Að sögn Davíðs Lúðvíks-
sonar var tekið stórt framfaraskref með nýsam-
þykktu frumvarpi sem gerir breytingar á „ýms-
um lögum til að styðja við fjármögnun og
rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyr-
irtækja í vexti,“ eins það er orðað í lagatext-
anum.
Davíð er forstöðumaður stefnumótunar og
nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins og segir
hann að breytingarnar snúi einkum að fjórum
þáttum.
Geta dregið frá hluta fjárfestingar
„Fyrst má nefna að einstaklingar fá nú heim-
ild til að draga frá skattskyldum tekjum sínum
hluta af fjárfestingu í fyrirtækjum sem uppfylla
tiltekin skilyrði og eru á lista RSK. „Þetta er
ekki ósvipað frádráttarheimild sem fest var í lög
þegar verið var að byggja upp íslenska hluta-
bréfamarkaðinn á sínum tíma. Einstaklingur-
inn fær heimild til að draga frá skattskyldum
tekjum sínum 50% af fjárfestingu að upphæð
allt að 10 milljónir króna. Það samsvarar rúm-
lega 23% endurgreiðslu í gegnum skattkerfið af
þeirri fjárhæð sem fjárfest er fyrir, miðað við
hæsta skattþrep.“
Fyrirtækið sem fjárfest er í má þó ekki hafa
fleiri en 25 starfsmenn, né hafa veltu yfir 650
milljónum kr. á síðasta rekstrarári. Þá eru
ákveðnar atvinnugreinar t.d. kvikmyndagerð,
undanskildar án þess þó að gerð sé bein krafa
um tiltekna nýsköpunarvirkni í þeim fyrirtækj-
um sem geta nýtt sér lögin. Krafa er gerð til
fjárfestis um að hann sé; ekki tengdur félaginu
með meira en 30% eignarhlut, viðskiptahags-
munum, stjórnarsetu og ekki starfsmaður eða
með fjölskyldutengsl við framgreinda aðila.
„Þetta gerir lögin þrengri en æskilegt er, enda
mjög algengt að t.d. ættingjar leggi sprotafyrir-
tækjum lið með fjárfestingu. Þessar takmark-
anir eru langt umfram það sem ESA og ESB
leggja til,“ segir Davíð sem segist þó vona að
hægt verði að „sníða slíka agnúa af þessu ann-
ars góða kerfi við fyrsta tækifæri“.
Hærri frádráttur vegna rannsókna
Annað atriði í nýju lögunum er hækkun á
stofni frádráttar fyrirtækja vegna rannsóknar-
og þróunarkostnaðar. Hámark stofnsins var áð-
ur 100 milljónir, en 150 milljónir ef fyrirtækið á í
samvinnu við stofnun, s.s. háskóla eða sjúkra-
hús. „Þessu kerfi var komið á 2009 að norskri
fyrirmynd og geta fyrirtæki í öllum atvinnu-
greinum nýtt það, séu þau með þróunarverkefni
sem uppfylla tilteknar kröfur sem Rannís stað-
festir. Nýja hámarkið er 300 og 450 milljónir
með samstarfi. Endurgreiðslan getur numið allt
að 20% af stofninum eða 60 til 90 milljónum.
Uppgjörið fer fram í gegnum skattkerfið, en ef
skattar af rekstrinum eru lægri en sem nemur
endurgreiðslunni, er mismunurinn greiddur
beint til fyrirtækisins,“ útskýrir Davíð.
„Í okkar umsögn um þessa breytingu lögðum
við til að afnema umrædd þök alveg og hækka
endurgreiðsluhlutfallið til minni fyrirtækja í
25% til samræmis við sambærilegt fyrirkomu-
lag í kvikmyndaiðnaði. Þetta myndi auka að-
dráttarafl Íslands bæði fyrir stærri og smærri
fyrirtæki í nýsköpun allverulega og um leið
auka tekjur ríkissjóðs. Það má ekki gleyma því
að endurgreiðsla rannsóknar- og þróunarkostn-
aðar og skattalegir hvatar vegna fjárfestinga í
hlutabréfum fela í sér mjög jákvætt greiðslu-
flæði fyrir ríkissjóð og útgjöldin eru mun minni
en tekjurnar auk þess að falla mun seinna til.“
Þriðja stóra breytingin er að erlendur sér-
fræðingur með þekkingu sem ekki er fyrir
hendi hér á landi nema í litlum mæli fær að
draga frá 25% af skattskyldum tekjum fyrstu
þrjú árin frá ráðningu að uppfylltum tilteknum
skilyrðum. „Þetta er hugsað til að skapa svig-
rúm til að geta boðið erlendum sérfræðingum
sambærileg kjör og í boði eru í samkeppnislönd-
um okkar,“ segir Davíð. „Ísland hefur ekki verið
nógu vel í stakk búið til að laða hingað topp-
fólkið í vísinda- og tæknigreinum. Slík laga-
heimild þekkist víða annars staðar og byggir á
þeirri hugmyndafræði að með fólkinu sem tekst
að laða til landsins komi ný þekking inn í hag-
kerfið og leiði af sér nýja verðmætasköpun.“
Breytileg skuldabréf orðin valkostur
Síðast en ekki síst eru gerðar ýmsar breyt-
ingar á skattalegri meðferð kaupréttarsamn-
inga og skattlagningu breytanlegra skulda-
bréfa sem breytt hefur verið í hlutabréf. „Núna
fer skattlagning ekki fram fyrr en við sölu
hlutabréfanna og eru þá tekjurnar skattlagðar
sem fjármagnstekjur hafi starfsmaðurinn átt
bréfin í tiltekinn árafjölda. Áður voru reglurnar
þannig að þegar t.d. starfsmenn nýttu sér kaup-
rétt þá urðu þeir að greiða strax tekjuskatt af
muninum á kaupverði og markaðsverði,“ segir
Davíð. „Þetta gat m.a. leitt til þess að fólk gat
ekki nýtt kaupréttinn ef það vildi eiga bréfin
vegna þess t.d. að hafa ekki efni á skattgreiðsl-
unum af bréfum, sem jafnvel gátu svo verið orð-
in verðlítil eða verðlaus þegar þau loks voru
seld.“
Þessar breytingar opna fyrir þann möguleika
að fjármagna sprota með breytilegum skulda-
bréfum. Breytileg skuldabréf eru algeng fjár-
mögnunaraðferð í mörgum löndum, en þar
leggur fjárfestir sprota til fjármagn sem síðan
er breytt í hlutafé seinna meir, með ákveðnum
margföldunarstuðli eða á ákveðnu markaðs-
gengi. „Lögin leyfðu þessa fjármögnun, en í
reynd var hún skattalega séð útilokuð því um
leið og láninu var breytt í hlutabréf varð til hár
skattareikningur.“
Ágætis byrjun en þörf á meiru
Að sögn Davíðs voru ýmsar tillögur fulltrúa
atvinnulífsins sem ekki rötuðu í frumvarpið.
Vantar til dæmis að sprotar geti greitt starfs-
mönnum sínum laun í formi eignarhluta, þó ekki
væri nema upp að tilteknu marki. „Það myndi
meðal annars losa frumkvöðla úr þeim skatta-
lega skollaleik sem fylgir því að vinna baki
brotnu í uppbyggingu fyrirtækja sinna en geta
hvergi gefið upp laun í samræmi við vinnufram-
lagið, en lenda svo í þeim sporum að geta ekki
sýnt nýjum hluthöfum svart á hvítu þann kostn-
að og virði sem liggur í fyrirtækinu.“
Davíð hrósar stjórnvöldum og Alþingi fyrir
að hafa náð að koma þessum breytingum í gegn
fyrir þinghlé og að þær séu nauðsynlegar til að
halda í við þróun og harða samkeppni frá nær-
liggjandi löndum. „Við erum með þessu að stíga
stærri skerf í að jafna samkeppnistöðu fólks og
fyrirtækja í nýsköpun hér á landi en við höfum
séð áður og erum nú komin með góðan grunn,
sem þó þarf vissulega að straumlínulaga enn
betur. Við vonum að það verði áberandi stefnu-
mál í næstu kosningum því við þurfum í framtíð-
inni að tryggja áhugaverð og vel launuð störf
fyrir ungt og menntað fólk hér á landi. Það eru
líka óteljandi þarfir og viðfangsefni á sviði heil-
brigðis-, mennta-, orku- og umhvefismála sem
við getum leyst í góðu samstarfi stjórnvalda og
fyrirtækja á grunni þekkingar og tækni. Okkar
samkeppnisforskot í starfsumhverfinu á Íslandi
getur meðal annars legið í því að vera með kerfi
sem er skilvirkara og einfaldara en í öðrum
löndum.“
Bætir umgjörð nýsköpunar
Einstaklingar geta dregið frá tekjuskattstofni fjárfestingu í smærri fyrirtækjum Endurgreiðsla
vegna rannsókna og þróunar hækkar Breytileg skuldabréf nú raunhæfur valkostur við fjármögnun
Tækifæri „Okkar samkeppnisforskot í starfsumhverfinu á Íslandi getur meðal annars legið í því
að vera með kerfi sem er skilvirkara og einfaldara en í öðrum löndum,“ segir Davíð.
Ljósmynd / SI
Samkomulag náðist á fimmtudag
um kaup snyrtivörurisans Revlon
Inc. á keppinautnum Elizabeth Ar-
den Inc. Greindi Wall Street Journal
fyrst frá kaupunum en Revlon mun
reiða af hendi 420 milljónir dala og
taka yfir skuldir Elizabeth Arden.
Að sögn BBC er kaupsamningurinn
samtals 870 milljóna dala virði.
Revlon hefur í dag sterka stöðu á
sviði andlitsfarða og hárvöru á með-
an Elizabeth Arden stendur hvað
best að vígi í fínni húðvörum og ilm-
um. Framleiðir Elizabeth Arden
meðal annars ilmi í samvinnu við
dægurstirni á borð við Taylor Swift
og Justin Bieber. WSJ segir kaupin
líka styrkja Revlon á alþjóðlegum
mörkuðum en Elizabeth Arden hef-
ur náð að koma sér vel fyrir á Asíu-
og Kyrrahafssvæðinu. Þá skapa
kaupin svigrúm fyrir hagræðingu
sem nemur 140 milljónum dala yfir
þriggja til fimm ára tímabil. Kaup-
verðið er 14 dollarar á hlut sem er
50% yfir hlutabréfaverði Elizabeth
Arden við lokun markaða á fimmtu-
dag. Hafa bæði fyrirtækin glímt við
erfiðan rekstur að undanförnu. Há-
ar skuldir hafa íþyngt Revlon en
Elizabeth Arden ekki gengið nógu
vel á ilmmarkaði. Revlon skipti um
forstjóra í mars og tók Fabian
Garcia við starfinu, en hann var áð-
ur forstjóri Colgate-Palmolive.
ai@mbl.is
AFP
Máluð Með kaupunum gefst svig-
rúm til mikillar hagræðingar.
Revlon kaupir
Elizabeth Arden