Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Betri ferð
- vita.is
fyrir betra verð
Verð frá:
69.900 kr.
Á mann m.v. 4 í íbúð með 1
svefnherbergi á Buenavista.
Alicante
28. JÚNÍ,
7 NÆTUR
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Byrjað var að hífa Jón Hákon BA upp af botni
Ísafjarðarhafnar í gærkvöldi og kom hann fljót-
lega úr kafi. Sigurður Ásgrímsson, stjórnandi
aðgerða, sagði að fargið sem þyrfti að lyfta væri
um 40 tonn. Spilið á Þór var notað til að lyfta
annarri hliðinni og á hina síðu bátsins voru settir
stórir belgir. Göt á skrokknum voru þétt og sjó
dælt úr bátnum í gærkvöldi. Til stendur að taka
bátinn í slipp á Ísafirði eftir helgi. gudni@mbl.is
Jón Hákon BA aftur upp á yfirborðið
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Björgunaraðgerðir héldu áfram í gær í Ísafjarðarhöfn
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Erfitt er að uppræta spánarsnigil
hafi hann einu sinni náð fótfestu.
Erling Ólafsson, skordýrarfræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands,
sagði að nágrannaþjóðir okkar hafi
lengri sögu að segja en við af spán-
arsniglinum. „Þær hafa ekki fundið
ráðið gegn honum,“ sagði Erling.
Hann sagði að spánarsnigillinn
geti átt bæði slæm og góð ár. „Í fyrra
sáust engir spánarsniglar fyrr en í
október af því það kom ekki sumar
fyrr en seint og um síðir. Nú kom
sumarið ef til vill of snemma og hann
nýtur góðs af því.“
Spánarsnigill er hér á sínum
nyrstu útbreiðslumörkum og er háð-
ur því að fá góðan meðbyr af og til.
Hins vegar væsir ekki um hann í
upphituðum gróðurhúsum eða þar
sem jarðvegur er volgur.
Erling sagði að ýmsir hefðu spurt
hann hvað ætti að gera til að útrýma
spánarsnigli. Í þeim efnum er fátt um
svör annað en að eyða þeim spánar-
sniglum sem finnast. Líklega er
mannúðlegasta leiðin að setja dýrið í
box og svæfa svefninum langa með
því að frysta það og farga svo
hræinu.
Pardussnigillinn sestur að
„Spánarsnigillinn á hér einn
náttúrulegan óvin, pardussnigilinn,“
sagði Erling. „Pardussnigill fannst
hér fyrst í Grafarvogi sumarið 1997.
Honum hefur fjölgað mest í efri
byggðum höfuðborgarsvæðisins.“
Pardussnigill hefur einnig fundist í
Hveragerði og á Seyðisfirði.
Erling sagði að pardussnigill væri
ekki skaðvaldur. Hann lifir aðallega á
rotnandi plöntuleifum og sveppum
en er líka sólginn í sniglaegg og getur
jafnvel drepið litla snigla. Pardus-
snigillinn er langur og teygir sig í allt
að 20 sentimetra lengd.
„Ef hann skríður yfir slímrönd
spánarsnigils þá tekur hann 90 gráðu
beygju og eltir spánarsnigilinn. Par-
dussnigillinn er miklu hraðskreiðari
og eltir spánarsnigilinn uppi. Ég
mæli með því að fólk leyfi pardus-
sniglinum að vera. Þetta er nýbúi og
menn eiga að taka vel á móti þeim á
meðan þeir eru ekki með nein leið-
indi,“ sagði Erling.
Spánarsnigillinn á einn óvin
Erfitt er að útrýma spánarsnigli þar sem hann hefur komið sér fyrir Annar
nýbúi, pardussnigillinn, er eini náttúrulegi óvinur spánarsnigils hér á landi
Pardussnigill Hann er til bæði dökkur og ljós og getur verið 20 sm langur.
Ljósmyndir/Erling Ólafsson
„Listin, umfram önnur vísindi er
byggja á glímu hugaraflsins við
raunveruleika mannskepnunnar, er
því eitthvert sterkasta mótunarafl
heimssögunnar. Í listinni geymum
við andrými hvers tíma; menn-
inguna og mennskuna,“ sagði Fríða
Björk Ingvarsdóttir, rektor
Listaháskóla Íslands, við útskriftar-
athöfn skólans í gær. Gerði hún að
umtalsefni sínu pólitík og list og
áhrif þeirra hvorrar á aðra.
„Þrátt fyrir þessi óumdeildu
sannindi um vægi listanna, á list-
sköpun sem og varðveisla og fram-
setning menningararfleifðarinnar
mjög undir högg að sækja hér á
landi. Listir njóta ekki sannmælis;
ekki sem skapandi vísindi, ekki sem
fræðasvið, ekki sem atvinnugrein
eða sem forsenda nýsköpunar. Til
lista er horft í orði en ekki á borði.
Listir njóta ekki
skilnings þeirra
sem bera hitann
og þungann af
því að móta
samfélagsmynd-
ina,“ sagði
Fríða.
Hún sagði
stjórnmálin hafa
þrengt svo skil-
greininguna á
hinu pólitíska að einungis skamm-
tímasjónarmið eða þröngir hags-
munir þeirra sem séu frekir til
valdsins ráði ríkjum.
„Skilningsleysi gagnvart há-
skólastiginu er þó sýnu alvarlegast
hvað viðkemur háskólanámi í list-
um. Listaháskóli Íslands, sem í dag
útskrifar 140 nemendur sem allir
stóðust einhver ströngustu inntöku-
skilyrði háskólanáms á Íslandi og
erfitt nám í kjölfarið, ber til að
mynda ábyrgð á því að viðhalda
einni stærstu atvinnugrein þjóðar-
búsins og skákar þar áliðnaði, fisk-
vinnslu og landbúnaði hvað fjölda
ársverka varðar,“ sagði Fríða og
vísaði þar til skapandi atvinnu-
greina sem sköpuðu 15 til 20 þús-
und manns atvinnu. Með þeim störf-
um sé stuðlað að verkefnum sem
aðrar greinar byggi sína afkomu á,
og nefndi þá ferðaþjónustu sem
dæmi.
„Það er ykkar sem farið héðan út
í dag, sem vel menntaðir listamenn,
að glíma við það viðhorf sem ég hef
lýst í þessu ávarpi og vinna á því
bug. Halda áfram að rækta pólitísk
eigindi listarinnar og samþætta þau
þjóðfélagsmyndinni, samfélaginu
til heilla.“
Listir njóti ekki sannmælis
Fríða Björk
Ingvarsdóttir
Horft til lista í orði en ekki á borði, sagði rektor LHÍ í ávarpi
Icelandair leitaði
á nýjar slóðir á
dögunum þegar í
skoskum fjöl-
miðlum birtist
auglýsing félags-
ins sem beinist að
Skotum, nánar
tiltekið Tartan
Army, áhangend-
um skoska lands-
liðsins í knatt-
spyrnu.
Í auglýsingunni er óskað eftir því
að Skotarnir styðji hið íslenska
landslið og geri sér ferð til Frakk-
lands með Icelandair, til að styðja
liðið enda hafi Skotar sjálfir ekki
komist upp úr undankeppninni.
Vísað er til ýmissa líkinda milli
þjóðanna tveggja, bæði lið spili í
bláum og hvítum búningum, hái
harðar rimmur á vellinum og spili
með hjartanu. Einnig er tekið fram
að fyrsta alþjóðaflug Icelandair hafi
„að sjálfsögðu“ verið til Skotlands.
Auglýsingunni fylgir liðsmynd
landsliðsins við brottförina til
Frakklands, þar sem því var stillt
upp í stiga upp í flugvél Icelandair.
Vilja sjá
Skota í
stúkunni
Liðið Myndin sem
birt var í Skotlandi.
Leita fleiri stuðn-
ingsmanna fyrir EM
Spánarsniglar fylgdu blóma-
bökkum með stjúpum sem seld-
ar voru á Norðurlandi. Morgun-
blaðið hefur ekki fengið
upplýsingar um hver ræktaði
stjúpurnar sem um ræðir.
„Bæði gróðrarstöðvar og
garðeigendur þurfa að vera á
varðbergi gagnvart spánarsnigl-
inum,“ sagði Vernharður
Gunnarsson, formaður Félags
garðplöntuframleiðenda. Hann
taldi að enginn framleiðandi
dreifði spánarsniglum viljandi.
Vernharður sagði það slæmt ef
spánarsnigill næði að grassera
hjá einhverjum sem dreifir hon-
um, væntanlega óafvitandi, um
landið. Það sé eðli sniglanna að
skríða í skjól, t.d. undir blóma-
bökkum, og þar geti þeir falist.
Þarf að vera
á varðbergi
VÁGESTUR Í GRÓÐRI