Morgunblaðið - 18.06.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Ört hækkandi fasteignamat hefurþýtt ört hækkandi tekjur sveit-
arfélaga í gegnum fasteignaskatta,
sem eru annar stærsti tekjustofn
þeirra á eftir út-
svarinu. Við-
brögð sveitarfé-
laganna við
þessari þróun
eru ólík og end-
urspegla viðhorf
meirihluta þeirra
með skýrum
hætti.
Kópavogur og Seltjarnarnes hafalækkað álagningarhlutfallið til
að mæta hækkandi fasteignamati.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir
hækkanir á fasteignamati um næstu
áramót miklu meiri en almennar
verðlagshækkanir og hann telji víst
að álagningarhlutfallið verði lækk-
að þó að ákvörðun hafi ekki verið
tekin.
En þó að íbúar þessara sveitarfé-laga njóti skilnings meirihluta
sveitarstjórnar á að þeir séu annað
og meira en skattfé, þá gildir ekki
hið sama í Reykjavík.
S. Björn Blöndal, formaður borg-arráðs (sem svarar fyrir borg-
ina þegar borgarstjóri vill ekki
tengjast málum sem spillt gætu
ímynd hans), segir að borgin verði
að skoða vel alla tekjumöguleika
sína.
Borgin hefur ekki ákveðið álagn-ingarhlutfallið, en skilaboð
borgarstjóra í gegnum formann
borgarráðs eru skýr: Meirihlutinn í
Reykjavík ætlar að taka af borgar-
búum alla þá skatta sem frekast er
heimilt lögum samkvæmt.
Það er ekki ókeypis að búa viðstjórnarfar í boði Samfylk-
ingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri
grænna og Pírata.
Eru borgarbúar
einungis skattfé?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 11 súld
Akureyri 12 rigning
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 9 heiðskírt
Ósló 15 léttskýjað
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 20 alskýjað
Helsinki 19 léttskýjað
Lúxemborg 15 léttskýjað
Brussel 13 rigning
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 15 rigning
London 17 rigning
París 18 rigning
Amsterdam 18 rigning
Hamborg 19 alskýjað
Berlín 18 rigning
Vín 21 heiðskírt
Moskva 27 léttskýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 21 heiðskírt
Mallorca 26 heiðskírt
Róm 22 alskýjað
Aþena 34 heiðskírt
Winnipeg 17 rigning
Montreal 21 heiðskírt
New York 23 léttskýjað
Chicago 26 heiðskírt
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:55 24:04
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17
DJÚPIVOGUR 2:10 23:48
Forseti Íslands sæmdi í gær tólf Ís-
lendinga riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu. Þeir eru:
Anna Stefánsdóttir, fyrrverandi
hjúkrunarforstjóri, Kópavogi,
Björgvin Þór Jóhannsson, fyrrver-
andi skólameistari, Hafnarfirði,
Björn Sigurðsson, bóndi í Úthlíð,
Dóra Hafsteinsdóttir, fyrrverandi
ritstjóri, Reykjavík, Filippía Elís-
dóttir búningahönnuður, Reykjavík,
Geir Waage sóknarprestur, Reyk-
holti, Guðmundur Hallvarðsson,
fyrrverandi alþingismaður, Reykja-
vík, Jóhann Páll Valdimarsson bóka-
útgefandi, Reykjavík, Katrín Pét-
ursdóttir forstjóri, Seltjarnarnesi,
Kristjana Sigurðardóttir, fyrrver-
andi verslunarstjóri, Ísafirði, Lára
Björnsdóttir félagsráðgjafi, Reykja-
vík, og Stefán Svavarsson endur-
skoðandi, Reykjavík.
Tólf voru sæmd fálkaorðunni
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Orðuveiting Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á Bessastöðum í gær ásamt orðuhöfum og fulltrúum þeirra.
Orðuveiting við
hátíðlega athöfn
á Bessastöðum
Hjólreiðakeppninni WOW Cycloth-
on lauk í gær, en keppendur luku þá
hringferð sinni um landið. Keppt
var í einstaklingskeppni og liða-
keppnum skipuðum fjórum mönn-
um og einnig tíu mönnum. Auk
þessa fór fram áheitakeppni þar
sem landsmenn gátu heitið á liðin,
sem ánöfnuðu góðgerðarmálum
upphæðirnar.
Í flokki fjögurra manna liða kom
fyrst í mark lið Park Inn by Radison
á tímanum 39:39:31, í flokki tíu
manna liða kom fyrst í mark lið Olís
á tímanum 36:54:21. Sigurvegari í
einstaklingskeppninni var Eiríkur
Ingi Jóhannsson, en hann kom í
mark á tímanum 63:52:32.
Þegar þetta var skrifað höfðu
safnast vel yfir tíu milljónir króna í
keppninni, sem verða gefnar til góð-
gerðarmálefna, líkt og áður sagði.
Auk flokkanna sem taldir eru
upp að ofan, hjóluðu hringinn kepp-
endur í flokknum Hjólakraftur, en
undir hann falla allra yngstu kepp-
endur keppninnar.
Aftur sigraði Eiríkur
í WOW Cyclothon
Morgunblaðið/Eggert
WOW Eiríkur Ingi Jóhannsson að
lokinni keppni í gærmorgun.